Fréttablaðið - 30.01.2013, Qupperneq 2
30. janúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 2
HEILBRIGÐISMÁL Ólík virkni heila
kynjanna leiðir til þess að karl-
ar verða veikari en konur af
umgangspestum ýmiss konar.
Þetta er niðurstaða Amöndu Elli-
son, prófessors í lífeðlisfræði við
Durham-háskóla í Bretlandi.
Breska dagblaðið Telegraph
hefur eftir Ellison, sem einnig er
hluti af teymi sem stundar rann-
sóknir á taugakerfi mannsins, að
ástæða þess að karlar verði veik-
ari en konur sé að stöð heilans
sem stýrir margvíslegri virkni
líkamans, þar á meðal hitastigi,
sé öðruvísi í þeim en í konum.
Ellison byggir niðurstöðu sína á
samantekt margvíslegra nýrra
rannsókna á mannsheilanum. Hún
birtir niðurstöður sínar í bókinni
Getting Your Head Around the
Brain, en í henni er áhersla lögð á
muninn á milli
kynjanna.
„Rannsóknir
mí na r snúa
að því hvern-
ig ólíkir hlut-
ar heilans hafa
samskipti hver
v ið a nna n,“
segir Ellison.
Kynin segir
hún þó byrja
ævina jafnfætis
hvað umgangspestir varðar, þar
sem umrætt svæði heilans (preop-
tic-kjarninn) sé jafnstórt í piltum
og stúlkum. Við kynþroska verði
hins vegar breytingar í undir-
stúku heilans vegna testósterón-
framleiðslu drengja sem leiði til
þess að svæðið stækki.
„Þegar fólk fær kvef þá bregst
líkaminn við árásinni með hita,“
hefur Telegraph eftir Ellison.
„Karlar hafa hins vegar fleiri
hitanema þar sem þetta svæði
heilans er stærra hjá þeim en í
konum. Vegna þessa fá karlar
hærri hita og líður verr. Og kvarti
þeir undan slæmri líðan sinni er
það ef til vill ekki að ástæðu-
lausu,“ segir hún.
Þórir B. Kolbeinsson, fyrrver-
andi formaður Félags íslenskra
heimilislækna og yfirlæknir
Heilsugæslustöðvarinnar á Hellu,
segist ekki hafa áður heyrt af
þessum kenningum. Með fyrir-
vara um að hafa ekki skoðað nið-
urstöður eða frumgögn telur hann
þær þó ekki endilega út í bláinn.
„Ég leyfi mér bara að vitna í
að löngum hefur því verið hald-
ið fram, sérstaklega af kvenþjóð-
inni, að karlar beri sig lakar og
séu kvartsárari þegar þeir veikj-
ast,“ segir Þórir, en kveðst til
þessa fremur hafa skrifað slíkar
kenningar á togstreituna á milli
kynjanna. „En kannski er eitthvað
annað að koma í ljós.“
olikr@frettabladid.is
ÞÓRIR B.
KOLBEINSSON
KVEINKAR SÉR UNDAN SPRAUTUNNI Kenningar eru uppi um að heilar karla og
kvenna nemi og stýri hitabreytingum í líkamanum á ólíkan hátt og því verði karlar
veikari en konur þegar þeir fá kvef eða flensu. NORDICPHOTOS/AFP
Karlaflensan virðist
til eftir allt saman
Breskur prófessor í lífeðlisfræði segir karla upplifa einkenni kvefpesta og flensu
sterkar en konur. Karlar hafa stundum verið sagðir kvartsárari en konur í veikind-
um. Mögulega ekki að ástæðulausu. Ólík virkni heila kynjanna skýrir muninn.
DÓMSMÁL Lárus Welding, fyrr-
verandi forstjóri Glitnis, hefur
áfrýjað fangelsisdómnum sem
hann hlaut í Vafningsmálinu til
Hæstaréttar.
Lárus var dæmdur í níu
mánaða fangelsi, þar af voru
sex mánuðir skilorðsbundnir,
eins og Guðmundur Hjaltason.
Guðmundur hefur ekki tekið
ákvörðun um áfrýjun síns
dóms en hefur frest til þess til
4. febrúar.
Tvímenningarnir voru dæmd-
ir fyrir umboðssvik með því að
láta Glitni lána Milestone tíu
milljarða í ársbyrjun 2008. - sh
Vafningsmálinu ekki lokið:
Lárus áfrýjar til
Hæstaréttar
EFNAHAGSMÁL Alþjóðlegu mats-
fyrirtækin Moody‘s og Fitch eru
sammála um að sigur Íslands í
Icesave-málinu fyrir EFTA-dóm-
stólnum feli í sér mjög góð tíðindi
fyrir lánshæfi landsins. Fyrirtækin
birtu í gær viðbrögð við dóminum
en ekki var þó gerð breyting á láns-
hæfiseinkunum ríkissjóðs.
Í umfjöllun Moody‘s segir að
úrskurður EFTA-dómstólsins eyði
mikilli lagalegri og fjárhagslegri
óvissu sem íslensk stjórnvöld hafi
búið við. Þá kemur þar fram að
áhættan á óhagstæðri niðurstöðu
í Icesave-deilunni hafi verið einn
helsti áhættuþátturinn sem fyrir-
tækið hafi litið til við mat sitt á
lánshæfi landsins.
Í umfjöllun Fitch segir að dóm-
urinn sé jákvæður fyrir lánshæfi
Íslands þótt gjaldeyrishöftin hafi
enn mikil áhrif á lánshæfieinkunn
ríkissjóðs. Dómurinn er sagður
fjarlægja áhættuþátt sem hefði
getað haft umtalsverð neikvæð
áhrif á stöðu ríkisfjármála.
Þriðja stóra matsfyrirtækið,
Standard & Poor‘s, hefur enn ekki
birt viðbrögð við dóminum. Banda-
ríska fréttaveitan Bloomberg hafði
þó eftir sérfræðingi hjá fyrirtæk-
inu á mánudag að dómurinn myndi
til skemmri tíma ekki valda breyt-
ingum á lánshæfismati Íslands.
Ísland er sem stendur í lægsta
fjárfestingarflokki hjá öllum þrem-
ur fyrirtækjunum, með neikvæðar
horfur hjá Moody‘s en stöðugar hjá
hinum tveimur.
Þá lækkaði fimm ára skulda-
tryggingarálag Íslands um tvo
punkta á mánudag og er nú tæplega
170 stig. Hefur skuldatryggingar-
álagið ekki mælst lægra síðan fyrir
bankahrun. - mþl
Skuldatryggingarálag ríkissjóðs batnaði lítillega í kjölfar Icesave-dómsins á mánudag:
Icesave-dómur bætti horfur um lánshæfi
Þórir, áttu ekki von á að selja
fleiri plötur en þú seldir?
„Ef allt fer þá munu fleiri eintök
seljast af minni plötu en ég þurfti
að selja til að búa hana til.“
Tónlistarmaðurinn Þórir Georg seldi 50 til
100 vínylplötur úr safni sínu til að borga
útgáfu á nýju plötunni sinni I Will Die and
You Will Die and It Will Be Alright. Þórir fékk
reyndar útgáfusamning á lokasprettinum.
STJÓRNSÝSLA Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands, fundaði
í gær með Tim Ward og Kristjáni
Andra Stefánssyni úr málflutn-
ingsteyminu sem flutti Icesave-
málið við EFTA-dómstólinn fyrir
hönd Íslands.
Í tilkynningu segir að þeir hafi
meðal annars rætt um niðurstöðu
EFTA-dómstólsins, sterkan mál-
stað Íslands og afleiðingar fyrir
umræður og stefnumótun innan
ESB og á vettvangi alþjóðlegs fjár-
málasamstarfs.
Ólafur Ragnar hefur ekki viljað
ræða við fjölmiðla frá því að niður-
staða dómstólsins lá fyrir. - mþl
Ekki rætt við fjölmiðla:
Forsetinn hitti
Tim Ward í gær
170
Fimm ára skuldatryggingar-
álag Íslands stendur nú í
170 stigum og hefur ekki
mælst lægra síðan fyrir
bankahrun.
PARÍS, AP Ríkisstjórn François Hollande, forseta Frakklands, hefur
kynnt umdeilt frumvarp þess efnis að hjónaband samkynhneigðra verði
gert löglegt í landinu.
Franska þjóðin er klofin í afstöðu sinni til frumvarpsins, ekki síst
kaþólski meirihlutinn í landinu. Bæði stuðningsmenn og andstæðingar
frumvarpsins hafa haldið fjöldafundi á götum Parísar á síðustu dögum.
Hafa hundruð þúsunda Parísarbúa sótt fundina til að sýna vilja sinn í
verki.
Umræður um frumvarpið í franska þinginu eiga að taka tvær vikur en
stjórn og stjórnarandstaða eiga í viðræðum um framgang frumvarpsins.
- mþl
Frakkar deila um hjónabönd samkynhneigðra:
Þjóðin klofin í afstöðu sinni
PARÍS Á SUNNUDAG Stuðningsmenn lögleiðingar hjónabands samkynhneigðra
hafa verið áberandi á götum Parísar síðustu daga. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
TÆKNI Örbloggsíðan vinsæla Twitter hefur neyðst
til þess að ritskoða leitarverkfæri síðunnar síðustu
daga eftir að stutt klámmyndbönd urðu skyndilega
fyrirferðarmikil á síðunni.
Myndböndin má rekja til nýrrar þjónustu sem
Twitter kynnti í síðustu viku og nefnist Vine. Vine
gerir notendum kleift að taka sex sekúndna löng
myndbönd sem birtast síðan í samnefndu appi og
auðvelt er að birta líka á Twitter.
Á mánudag birti Vine fyrir slysni gróft klám-
myndband í hópi myndbanda sem þjónustan mælir
sérstaklega með. Í kjölfarið dreifðist myndbandið
eins og eldur í sinu um bæði Vine og Twitter sem
og fleiri klámmyndbönd sem sami aðili hafði birt á
Vine.
Fyrir vikið hefur Twitter ritskoðað leitarmögu-
leika Vine og Twitter til að sjá til þess að klámið
verði ekki á vegi venjulegra notenda nema ein-
beittur vilji liggi þar að baki. Það er nefnilega ekki
bannað að taka upp klámmyndbönd á Vine en Twitt-
er vill forðast að venjulegir notendur eigi sífellt á
hættu að sjá þau.
Í tilkynningu frá Twitter segir að ekki standi til
að ritskoða leitarverkfæri síðunnar til frambúðar.
Fyrirtækið ætli sér hins vegar að breyta því hvern-
ig notendur nálgist og skoði viðkvæmt efni. - mþl
Óvænt vandamál komið upp hjá nýrri myndbandaþjónustu Twitter :
Twitter glímir við klámfaraldur
TWITTER Twitter kynnti í síðustu viku nýja þjónustu sem
nefnist Vine og gerir notendum kleift að dreifa stuttum
myndböndum á síðunni. NORDICPHOTOS/AFP
SPURNING DAGSINS