Fréttablaðið - 30.01.2013, Síða 4

Fréttablaðið - 30.01.2013, Síða 4
30. janúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 4 EFNAHAGSMÁL Tæplega tíu prósent af nafnverðshækkun íbúðalána frá byrjun árs 2009 og til loka árs 2012 eru vegna skattkerfisbreytinga sem stjórnvöld hafa ráðist í. Alls hafa skattkerfisbreyt- ingarnar hækkað skuldir vegna íbúða lána um 21,6 milljarð króna. Þetta kemur fram í svari Katr- ínar Júlíus dóttur, fjármála- og efnahagsráðherra, við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þing- manns Sjálfstæðisflokksins, um áhrif aukinnar skattaálagning- ar ríkisstjórnarinnar á hækkun höfuð stóls íbúðalána. Í svarinu kemur fram að skuld- ir vegna íbúðakaupa nemi 1.124 milljörðum króna í lok árs 2011. Stærstur hluti þeirra skulda er verðtryggður. Frá byrjun árs 2009 og fram til loka árs 2012 hækkaði vísi- tala neysluverðs um 20,1 prósent. Það hefur hækkað höfuðstól verð- tryggðra íbúðalána um 226 millj- arða króna. Af þeirri nafnverðs- hækkun íbúðalána má rekja 9,6 prósent, eða 21,6 milljarða króna, til skattkerfisbreytinga. Ráðherrann segir í svarinu að taka verði tillit til fleiri þátta. Meginmarkmið stjórnvalda væri að bæta afkomu ríkissjóðs, meðal annars með skattbreytingum, „til þess að draga úr skuldasöfnun og þar með vaxtakostnaði en hann er nú stærsti einstaki gjaldaliðurinn í rekstri ríkissjóðs[…]Hefði ekki verið gripið til þeirra aðgerða sem ríkisstjórnin hefur gert er mjög líklegt að geta heimilanna til að greiða húsnæðislán væri minni en hún er nú“. Samkvæmt fjárlögum ársins 2013 mun vanta 3,7 millj- arða króna upp á að tekjur ríkis- sjóðs dugi fyrir gjöldum hans. Vaxtakostnaður vegna lántöku er áætlaður 84,7 milljarðar króna. Þá segir Katrín að ríkisstjórnin hafi meðal annars beitt sér fyrir aðgerðum sem bætt hafi getu lán- takenda til að greiða af íbúðalánum sínum, einkum þeirra sem eru með lágar tekjur og þunga vaxtabyrði. „Frá árinu 2008 og til ársins 2011 hækkuðu vaxtabætur og sérstök vaxtaniðurgreiðsla samkvæmt álagningu um 4,6 milljarða,“ segir í svarinu. thordur@frettabladid.is Skattar hækkuðu lán um 21 milljarð Vísitala neysluverðs hækkaði verðtryggð íbúðalán um 226 milljarða frá 2009 og fram að síðustu áramótum. Tíu prósent hækkunarinnar tilkomin vegna skattkerfis- breytinga. Nauðsynlegar hækkanir til að bæta afkomu ríkissjóðs, segir ráðherra. RÁÐHERRA Í svari Katrínar Júlíusdóttur við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar kemur fram að meginmarkið stjórnvalda sé að bæta afkomu ríkissjóðs, meðal annars með skattbreytingum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Hollandsdrottning hættir 1HOLLAND Beatrix Hollandsdrottning skýrði frá því á mánudag að hún ætlaði að hætta í lok apríl. Um sjö milljónir manna fylgdust með ávarpi hennar í beinni sjónvarpsútsendingu. Elsti sonur hennar, Willem-Alexander krónprins, verður þá næsti konungur Belgíu og eiginkona hans Maxima verður drottning. Lík fundust í brunni 2MEXÍKÓ Tíu vopnaðir menn réðust inn í geymsluhús við búgarð í Mexíkó fyrir helgi, þar sem hljómsveitin Kombo Kolombia lék fyrir dansi, og fóru burt með hljómsveitina og aðstoðarmenn hennar. Einn hljómsveitarmanna birtist svo hjá lögreglu á sunnudaginn, og sagði að hópurinn hefði verið myrtur og líkunum kastað ofan í brunn. Hann einn hefði lifað af. Lögreglan hélt á staðinn og að minnsta kosti tólf lík höfðu fundist á mánudagskvöld. Fundabanni aflétt í Búrma 3BÚRMA Búrmastjórn hefur aflétt banni við útifundum, sem hefur verið í gildi í landinu síðan 1988, eða allar götur frá því herforingjastjórn hrifsaði völdin í landinu. Þetta er nýjasta skrefið í lýðræðisátt í Búrma, en áður hefur ritskoðun að mestu verið aflétt og samviskuföngum verið sleppt úr fangelsi. Í desember síðastliðnum ákvað stjórnin að leyfa útgáfu dagblaða í einkaeigu frá og með apríl. Presturinn tali grænlensku 4 GRÆNLAND Nauðsynlegt er að prestur Grænlendinga í Danmörku tali grænlensku, segir Doris Jakobsen þingmaður fyrir Siumut-flokksins í sam- tali við fréttavef Sermitsiaq. Staðan var búin til fyrir skemmstu, en yfirvöld lýstu nýlega yfir að tungumálakunnátta væri ekki skilyrði. Jakobsen segir annað fráleitt en að viðkomandi kunni málið, enda séu tungumálaörðug- leikar ein helsta hömlun Grænlendinga við iðkun trúar sinnar í Danmörku. Kirkjan segir að ráðning velti á umsækjendum og því sé óljóst hvernig fari á endanum. 1.124 milljarðar eru skuldir vegna íbúðakaupa í lok árs 2011. 21,6 milljarðar er sú upphæð sem skattkerfisbreytingar hafa hækkað lánin frá 2009. 84,7 milljarðar er áætlaður vaxtakostnaður ríkissjóðs í ár. 0 er fjöldi þeirra ára sem ríkissjóður hefur verið rekinn með hagnaði síðan frá hruni. EFNAHAGSMÁL Skapa þarf tíu þús- und störf á næstu árum til að koma á fullri atvinnu hér á landi og mæta vaxandi fjölda einstaklinga á vinnu- markaði. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýju tímariti Samtaka atvinnulífsins (SA) sem verður til umræðu á opnum morgunverðar- fundi SA í Hörpu á morgun. Í riti SA kemur fram að til þess að Íslendingar njóti sambærilegra lífs- kjara og nágrannaþjóðirnar þurfi árlegur hagvöxtur á næstu árum að vera yfir 3,5% og verðbólga lág. Þá þurfi að skapa tíu þúsund ný störf til að sjá þeim fyrir störfum sem misstu vinnuna á árunum 2008 til 2012. SA reiknast til að takist að skapa fimmtán þúsund ný störf á næstu fimm árum nemi árleg- ur ávinningur samfélagsins um 60 milljörðum króna. Á fundinum á morgun munu fjöl- margir stjórnendur úr íslensku atvinnulífi ræða um leiðir til að fjölga störfum á Íslandi á næstu árum. Í þeim hópi verða Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkj- unar, og Ásdís Halla Bragadóttir, stjórnar formaður Sinnum. - mþl Samtök atvinnulífsins með opinn fund um atvinnumál: Hagkerfið vantar 10.000 störf HÖRÐUR ARNAR- SON ÁSDÍS HALLA BRAGADÓTTIR 234,8823 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 128,65 129,27 202,27 203,25 172,82 173,78 23,161 23,297 23,238 23,374 20,028 20,146 1,4214 1,4298 197,59 198,77 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR GENGIÐ 29.01.2013 AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Bókamarkaður 2013 Soff ía Sveinsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá Föstudagur Hæg breytileg átt. KÓLNAR Í dag verður strekkingur eða allhvasst á annesjum NV- og SA-lands en hægari vindur inn til landsins. Á morgun verður víða nokkuð hægur vindur og það kólnar heldur í veðri. Á föstudaginn gæti sést til sólar í einhverjum landshlutum! 0° 8 m/s 1° 10 m/s 3° 7 m/s 5° 13 m/s Á morgun Strekkingur syðst, annars hægari. Gildistími korta er um hádegi 2° -3° X° -4° -4° Alicante Aþena Basel 21° 14° 11° Berlín Billund Frankfurt 11° 5° 12° Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn 10° 5° 5° Las Palmas London Mallorca 23° 12° 16° New York Orlando Ósló 14° 28° 2° París San Francisco Stokkhólmur 13° 16° 2° 1° 3 m/s 3° 14 m/s 0° 7 m/s 1° 7 m/s -1° 5 m/s -1° 7 m/s -4° 4 m/s 1° -3° 0° -4° -3° VIÐSKIPTI Um 30 prósentum færri íslensk fyrirtæki fóru í þrot á síð- asta ári en árið 2011. Þetta kemur fram í tölum Hagstofu Íslands. Alls voru 1.109 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta í fyrra en 1.579 fyrirtæki árið áður. Flest gjald- þrot voru í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, 227 talsins. 1.752 fyrirtæki voru nýskráð árið 2012, sem er tæplega þriggja prósenta aukning frá árinu 2011 þegar 1.700 fyrirtæki voru skráð. - þj Tölur Hagstofunnar: Þriðjungi færri gjaldþrot í fyrra HEIMURINN 1 2 3 4

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.