Fréttablaðið - 30.01.2013, Page 6
30. janúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 6
PI
PA
R\
TB
W
A
W
A
TB
W
A
R\
T
PI
PA
SÍ
A
SÍ
A
S
1
22
73
9
73
9
12
2
Skeifunni 11B Reykjavík Sími 519 7550 promennt@promennt.is promennt.is
Námskeið sérstaklega ætlað 60 ára og eldri sem litla sem enga tölvukunnáttu
hafa. Hæg yfirferð með reglulegum upprifjunum og endurtekningum í umsjá
þolinmóðra og reyndra kennara. Tölvugrunnur, internetið og tölvupóstur.
Hefst: Kennt: (sjö skipti) frá
Verð: (Kennslubók á íslensku innifalin)
Hentar þeim sem lokið hafa byrjendanámskeiðinu eða hafa sambærilega undir-
stöðu. Byrjað er á upprifjun tölvugrunns áður en haldið er lengra í ritvinnslu.
Frekari æfingar í notkun internets (t.d. Facebook o.fl.) og í allri meðferð tölvupósts.
Hefst: Kennt: (sjö skipti) frá
Verð: (Kennslubók á íslensku innifalin)
Vinsælt og gagnlegt námskeið þar sem tekið er fyrir það helsta sem
almennir notendur þurfa að kunna um stafrænar myndavélar. Yfirfærsla
mynda í heimilistölvuna, skipulag myndasafns, einfaldar lagfæringar,
myndir prentaðar og sendar í tölvupósti.
Hefst: Kennt: (fjögur skipti) frá
Verð: (Kennsluhefti á íslensku innifalið)
1. Hvað heitir aðallögfræðingur Ís-
lands í Icesave-málinu?
2. Hvaða lið hefur keypt knattspyrnu-
kappann Alfreð Jóhannsson?
3. Hvað hét verslun Júlíusar Þorbergs-
sonar á Rauðarárstíg?
SVÖR
1. Tim Ward 2. AZ Alkmaar 3. Draumurinn.
FJARSKIPTI Vodafone mun fljótlega geta boðið upp á
sjónvarpsútsendingar um ljósnet Símans, í samræmi
við úrskurð Póst- og fjarskiptastofnunar (PFS) frá því
í desember.
Ljósnetið, sem Síminn hyggst leggja til 53 þéttbýlis-
staða á landinu til viðbótar á þessu ári, hefur hingað
til verið boðið öðrum netþjónustufyrirtækjum í heild-
sölu.
Vodafone kvartaði hins vegar til PFS yfir því að
fá ekki aðgang að kerfinu til sjónvarpsútsendinga.
Niðurstaða PFS var að Síminn skyldi veita Vodafone
aðganginn, og að verð og kostnaðaráætlun fyrir slík-
an aðgang skyldi vera tilbúið af hálfu Símans fyrir
1. febrúar.
Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans, segir að
Síminn muni verða við því í tíma.
Að því loknu, og að því gefnu að Vodafone muni
greiða fyrir slíkan aðgang, munu líkast til líða nokkr-
ir mánuðir áður en Vodafone getur hafið sjónvarps-
útsendingar um ljósnet Símans. - sh
Síminn þarf að leyfa Vodafone að senda út sjónvarp um ljósnet sitt:
Vodafone fær fljótlega aðgang
HLÝÐIR PFS Sævar Freyr Þráinsson segir að verð og
kostnaðar áætlun verði til reiðu fyrir 1. febrúar.
BANDARÍKIN, AP Öldungadeildar-
þingmaðurinn John Kerry mætti
engri mótstöðu í utanríkismála-
nefnd deildarinnar í gær þegar
hún samþykkti einróma að hann
yrði næsti utanríkisráðherra
Bandaríkjanna.
Búist var við því að síðar í gær
myndi öldungadeildin leggja
blessun sína yfir að hann taki
við af Hillary Clinton, sem hefur
verið utanríkisráðherra frá því
Barack Obama tók við embætti
forseta fyrir fjórum árum.
Oba ma er
að gera fleiri
mannabreyt-
ingar í stjórn
si n n i þessa
dagana, þegar
seinna kjör-
tímabil hans er
nýhafið.
Hvorki Chuck
H a gel , sem
Obama ætlar að gera að varnar-
málaráðherra, né John Brennan,
sem til stendur að verði yfirmað-
ur leyniþjónustunnar CIA, eiga
þó von á jafn góðum stuðningi
meðal öldungadeildarþingmanna.
Báðir hafa sætt töluverðri gagn-
rýni meðal repúblikana í deild-
inni.
Kerry bauð sig fram til forseta
Bandaríkjanna árið 2004 en tap-
aði fyrir George W. Bush. Kerry
sóttist aftur eftir því að verða
forsetaefni Demókrataflokksins
árið 2008 en Obama hafði betur,
varð forsetaefni flokksins og
vann sigur í kosningunum. - gb
Öldungadeild Bandaríkjanna greiðir atkvæði um nýjan utanríkisráðherra:
Kerry tekur við af Clinton
JOHN KERRY
LÖGREGLUMÁL Tveir Litháar á
fertugsaldri hafa setið í gæslu-
varðhaldi frá því í byrjun janúar
vegna fjölda innbrota á höfuð-
borgarsvæðinu í desember og
fram yfir áramót.
Þýfi úr nítján innbrotum
fannst á dvalarstað mannanna, að
því er segir í tilkynningu frá lög-
reglu. Málin séu upplýst.
Búið var að pakka þjófstolnum
skartgripum niður og telur lög-
regla að þýfið hafi verið á leið úr
landi. - sh
Skartgripir á leið úr landi:
Í haldi grunaðir
um 19 innbrot
ATVINNUMÁL Ef áform Laxa fisk-
eldis ganga eftir mun framleiðsla
fyrirtækisins á eldislaxi í Reyðar-
firði og Fáskrúðsfirði verða ríf-
lega tuttugu þúsund tonn á ári.
Fyrirtækið hefur þegar starfs-
leyfi fyrir sex þúsund tonna fram-
leiðslu í Reyðarfirði sem hefja á
vorið 2014 en vill bæta tíu þúsund
tonnum við. Í Fáskrúðsfirði vill
fyrirtækið leyfi fyrir fjögur þús-
und tonna ársframleiðslu.
„Með auknu eldismagni skapast
meira hagræði í rekstri, betri sam-
keppnisstaða og traustari grund-
völlur fyrir starfsemina. Með
tilkomu laxeldis af þessari stærð-
argráðu munu stoðir atvinnulífs
í Fjarðabyggð styrkjast,“ segir í
greinargerð Laxa fiskeldis.
Skipulagsstofnun hefur óskað
eftir áliti Fjarðabyggðar á því
hvort framkvæmdin eigi að vera
háð mati á umhverfisáhrifum.
Sú umsögn er í vinnslu og verður
lögð fram á bæjarstjórnarfundi á
fimmtudag í næstu viku.
Páll Björgvin Guðmundsson
bæjarstjóri segir að þótt menn
fagni allri nýrri atvinnustarfsemi
þurfi að líta til fleiri þátta.
„Við horfum til framtíðarupp-
byggingar á hafnarstarfsemi á
Reyðarfirði, ekki síst með þjón-
ustu við olíuleitarfyrirtæki á
Drekasvæðinu í huga. Það er því
afar mikilvægt að sjókvíar verði
ekki til að teppa siglingaleiðir í
firðinum,“ nefnir Páll sem dæmi
um þætti sem séu til skoðunar hjá
heimamönnum.
Í greinargerð Laxa fiskeldis
segir um þetta að kvíunum sé val-
inn staður „vel utan siglingaleiða“.
Landssamband veiðifélaga mót-
mælti á sínum tíma þegar sex
þúsund tonna starfsleyfið var til
umfjöllunar. Haft var eftir Óðni
Sigþórssyni, formanni sambands-
ins, í ríkisútvarpinu í nóvember
2011 að eiga mætti von á því að
einn lax úr hverju tonni myndi
sleppa úr sjókvíunum. Þannig
myndu sex þúsund laxar sleppa
árlega og leita upp í ár til hrygn-
ingar. Um væri að ræða norskætt-
aðan lax og menn óttuðust áhrif
hans á íslenska laxastofna.
Laxar efh. telja hins vegar ekki
hættu á ferðum að þessu leyti.
„Reynslan sýnir að í fullkomn-
ustu kvíunum, sem eru sömu
gerðar og Laxar ehf. munu nota,
hefur enginn lax sloppið út,“ segir
í greinargerð fyrirtækisins þar
sem vísað er til þess að þegar
mikið af eldislaxi og hafbeitarlaxi
hafi gengið í Elliðaárnar á níunda
og tíunda áratugnum hafi engin
blöndun við náttúrulega stofninn
þar greinst. Þar að auki séu engar
laxveiðiár í Reyðarfirði.
gar@frettabladid.is
Risalaxeldi má ekki
hindra olíuleitarskip
Laxar fiskeldi ehf. vill bæta tíu þúsund tonnum ofan á starfsleyfi upp á sex þúsund
tonna ársframleiðslu af laxi í sjókvíum í Reyðarfirði. Heimamenn óttast að fjöldi
sjókvía loki á siglingaleiðir vegna þjónustu við olíuleitarfyrirtæki á Drekasvæðinu.
Save the Children á Íslandi
SJÓKVÍAR Í REYÐARFIRÐI Laxar fiskeldi ehf. áforma að ársframleiðsla af eldislaxi í
Reyðarfirði verði sextán þúsund tonn en segja fjörðinn geta borið 35 þúsund tonna
framleiðslu. Kvíar verða beggja vegna fjarðarins „vel utan siglingaleiða“, segja for-
svarsmenn fyrirtækisins. MYND/LAXAR FISKELDI.
Það er
því afar
mikilvægt að
sjókvíar verði
ekki til að teppa
siglingaleiðir í
firðinum.“
Páll Björgvin Guðmundsson,
bæjarstjóri í Fjarðabyggð
VEISTU SVARIÐ?