Fréttablaðið - 30.01.2013, Page 19
NÝIR STAÐIR
Stærstu lággjaldaflugfélögin í Evrópu,
Ryanair, Easyjet og Norwegian, eru sífellt að
bæta við sig nýjum áfangastöðum. Þeir sem
ætla að fara á nýjar slóðir í sumar ættu að skoða
heimasíður þessara félaga því ódýrustu sætin
fást oft með löngum fyrirvara.
Ég varð alveg heillaður af kletta- og ísklifri eftir ferðina á Mont Blanc. Fljótlega fór ég að draga
fólk með mér í þetta og þar á meðal
Arnar Jónsson og Óðin Árnason. Við
stofnuðum svo síðuna Climbing.is
þar sem við setjum inn ýmislegt tengt
ferðum okkar,“ segir Guðmundur.
Ís- og klettaklifur er ekki eitthvað
sem maður hendir sér út í á einum
degi. Það krefst æfingar, þekkingar
og reynslu. „Fljótlega keypti ég mér
ísklifuraxir eftir Mont Blanc-ferðina.
Við félagarnir fórum á tvö ísklifurnám-
skeið hjá Alpaklúbbnum og erum svo
búnir að lesa okkur helling til. Svo
erum við bara búnir að vera duglegir
að æfa okkur.“
Spurður um áhættuna sem fylgir
klifrinu segir Guðmundur að hann
hafi ekki dottið neitt alvarlega. „Ef
maður gerir hlutina rétt og gætir að
örygginu þá er þetta nokkuð öruggt.
Klifur byggir líka á mikilli samvinnu og
maður þarf að treysta félögunum. Ef
það er ekki til staðar þá geturðu bara
verið heima.“
Climbing.is er hugarsmíð þeirra
félaga og eru þeir mjög ánægðir með
útkomuna. Þar er að finna ferðasögur,
myndir, pistla, fróðleik um klifur og
vandað útivistarkort með upplýsing-
um um útivistarsvæði víða um land.
Með einum smelli á stað á kortinu má
sjá ítarlegar upplýsingar um göngu-
og klifurleiðir, erfiðleikastig, myndir
og fleira. „Við byrjuðum með síðuna
mjög fljótlega og höfum uppfært hana
reglulega. Arnar er hönnuður og sá
um hönnunina og ég sá um forrit-
unina enda er ég forritari. Við munum
svo setja kortið inn á Alpaklúbbssíð-
una í framtíðinni. Þá er hún er líka á
ensku og planið er að reyna að koma
konseptinu út fyrir landsteinana.“
Útivistarkortið er lifandi kort í stöð-
ugri vinnslu og sífellt bætast við nýjar
leiðir. Hægt er að velja um sjö flokka
og sjá þannig einungis þá útivist sem
notandinn kýs. „Í framtíðinni munu
svo fleiri flokkar rata inn á kortið.“ Á
síðunni er líka að finna mikinn fjölda
fallegra mynda af náttúru Íslands og
sjá þeir um að útvega fallegt prentverk
til fólks á góðu verði.
■ vidir@365.is
Á TOPPI TILVERUNNAR
MEÐ BAKTERÍU Guðmundur Jónsson fékk útivistar- og klifurbakteríu árið
2005 eftir að honum var boðið í ferð á Mont Blanc. Hann heldur úti útivistar-
síðunni Climbing.is ásamt félögum sínum.
Á HRAUNDRANGA Í
ÖXNADAL Hraundrangi
gnæfir yfir Öxnadal og
Hörgárdal í Eyjafjarðar-
sýslu í 1.075 metra hæð
yfir sjó.
TÆKIFÆRISGJAFIR
Laugaveg i 178 - S ím i : 568 9955
www.tk.is
- mikið af frábærum tilboðum
OPERA
DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI
SÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS
Taka 12 Kg · Hljóðlát
Stórt op > auðvelt að hlaða
Sparneytin amerísk tæki.
<Þvottvélin tekur
heitt og kalt vatn Afkastamikill
þurrkari >
Þvottavél Þurrkari12 kg
Amerísk
gæðavara
Amerísk
gæðavara
Vertu vinur
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Vandaðir, þýskir, herrakuldaskór úr leðri,
ullarfóðraðir. Góður sóli Teg: 456703
Stærðir: 42 - 47
Verð: 24.500.-
Sími 551 2070. Opið mán.-fös. 10-18.
Laugardag 10-14.
MorGUnþÁT
turinn Ómar
alLa vIRka
dagA kl. 7
Sími 585 8300 | www.postdreifing.is
Við flytjum þér
góðar fréttir