Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.01.2013, Qupperneq 28

Fréttablaðið - 30.01.2013, Qupperneq 28
KYNNING − AUGLÝSINGÚtfarir MIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAR 20138 Gu f u ne s k i rk jug a rðu r í Grafar vogi í Reykjavík er eini kirkjugarður lands- ins sem er skipulagður með þeim hætti að sérstök grafarsvæði eru þar fyrir ólík trúarbrögð og þá sem standa utan trúfélaga. Kirkjugarð- urinn var vígður árið 1980 og segir Þórsteinn Ragnarsson, forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófasts- dæma, að á þeim tíma hafi menn einfaldlega verið með þá heimssýn að nauðsynlegt væri að bjóða ólík- um trúarbrögðum ákveðið svæði í kirkjugarðinum nýja. „Kirkjugarð- ar eru fyrir alla. Svipuð þróun hafði áður átt sér stað erlendis auk þess sem íslenskt samfélag var tekið að breytast á þeim tíma og orðið fjöl- breyttara, til dæmis þegar kemur að trúar brögðum fólks.“ Í dag er Gufuneskirkjugarður sá eini hérlendis sem býður upp á slíkt skipulag eins og fyrr segir. Þórsteinn segir þó að nú liggi frumvarp fyrir Alþingi sem gerir ráð fyrir að nýir kirkjugarðar og jafnvel þeir kirkjugarðar sem bæta við nýjum grafarsvæðum geri ráð fyrir þess háttar skipulagi. Hann segist eiga von á því að það verði samþykkt á næsta þingi. „Nú eru til dæmis Akureyri og Hafnarfjörð- ur að huga að nýjum grafarsvæð- um. Ef frumvarpið verður sam- þykkt þarf því að gera ráð fyrir samskonar svæðum þar.“ Trúfélög nýta aðstöðuna Víða erlendis tíðkast bæði bland- aðir kirkjugarðar og sérstakir garð- ar fyrir ákveðin trúarbrögð. Áður en Gufuneskirkjugarður var vígð- ur var fólk af öðrum trúarbrögðum grafið í kirkjugörðum hér á landi en þá innan um aðrar grafir. Þór- steinn segir fylgjendur f lestra stærri trúarbragða heims vera grafna í garðinum en eðlilega séu langflestir kristinnar trúar. „Engu að síður er gert ráð fyrir þessum hópum í garðinum. Grafir annarra trúarbragða lúta líka sumar öðrum lögmálum en í kristinni trú. Þann- ig liggja til dæmis grafir múslíma öðruvísi en hjá kristnu fólki og lúta þannig ekki sama skipulagi. Því er gott að hafa sérsvæði fyrir slíkar grafir og það vilja þessir hópar líka sjálfir.“ Þórsteinn segir önnur trú- félög en kristin nota athafnarým- in í Fossvoginum en þar er bæði kirkja, kapella og bænahús. „Foss- vogskirkja er ekki sóknarkirkja og tilheyrir því engum sérstökum trúarsöfnuði. Þannig geta önnur trúfélög nýtt sér aðstöðuna hér. Í tilfelli múslíma er Biblían bara tekin af altarinu og Kóraninn sett- ur í staðinn. Ef athöfnin tengist búddatrú koma þeir inn með sína siði innan ákveðins ramma og svo framvegis.“ Ekki stúkað af Hin mismunandi svæði í Gufunes- kirkjugarði eru ekki stúkuð sér- staklega af og var það gert viljandi að sögn Þórsteins. „Þannig vildum við hafa þetta í stað þess að ramma trúfélögin inn. Starfsmenn kirkju- garðsins þekkja auðvitað svæðin og félagar viðkomandi trúfélags. Í dag hlaupa þessar grafir á nokkr- um tugum, sjálfsagt nálgast þær hundrað grafir.“ Fyrirkomulagið í Gufuneskirkju- garði hefur ekki valdið neinum deil- um eða óánægju, að sögn Þórsteins, heldur þvert á móti. „Ég er búinn að starfa hér í átján ár og aldrei hafa nein mál komið inn á borð til mín. Þvert á móti hef ég bara upplifað mikið þakklæti frá aðstandendum og trúarhópum.“ Ólík trúarbrögð í sátt og samlyndi Fylgjendur ólíkra trúarbragða eru jarðsettir í Gufuneskirkjugarði í Reykjavík. Kirkjugarðurinn er sá eini sinnar tegundar hérlendis. „Grafir annarra trúarbragða lúta líka sumar öðrum lögmálum en í kristinni trú,“ segir Þórsteinn Ragnarsson, forstjóri Kirkjugarða Reykja- víkurprófastsdæma. MYND/GVA Útför er kveðjuathöfn samfélagsins. Þá sýnir fólk hinum látna þakk- læti sitt og virðingu og aðstandendum samúð. Útför getur verið tvenns konar: Annars vegar greftrun eða jarðar- för. Þá er kistan borin til grafar og jarðsett í kirkjugarði eða óvígðum reit að lokinni útfararathöfn. Hins vegar bálför. Þá er kistan brennd að lokinni útfararathöfn og aska hins látna sett í duftker sem ýmist er jarðsett í duftreit eða ofan á leiði. Útför getur ekki farið fram nema staðfesting sýslumanns á viðtöku dánarvottorðs liggi fyrir. Þegar útför fer fram í kyrrþey eru aðeins nánustu aðstandendur og vinir viðstaddir. Ekki er þá tilkynnt um andlát fyrr en að lokinni útför. Útfarir á vegum þjóðkirkjunnar fara fram í samræmi við helgisiða- bók og handbók íslensku kirkjunnar. Útfarir í þéttbýli og strjálbýli eru í grundvallaratriðum með svipuðu sniði, í samræmi við hefð- ir. Hefðbundin útför kristins manns gæti samkvæmt Handbók kirkj- unnar farið fram sem hér segir: ■ Forspil, leikið á orgel og/eða önnur hljóðfæri. ■ Bæn. ■ Sálmur. ■ Ritningarlestur. ■ Sálmur eða tónlistarflutningur. ■ Guðspjall. ■ Sálmur eða tónlistarflutningur. ■ Minningarorð. ■ Sálmur, einsöngur, einleikur eða upplestur. ■ Bænir. ■ Faðir vor. ■ Sálmur eða tónlistarflutningur. ■ Moldun – fer ýmist fram í kirkju eða kirkjugarði. ■ Sé moldað í kirkju fylgir sálmur og síðan blessun. ■ Verði moldað í kirkjugarði fylgir aðeins blessun. ■ Eftirspil og útganga. Þegar um útfarir þeirra sem tilheyra öðrum trúfélögum er að ræða gilda siðir og venjur viðkomandi trúfélags. Borgaraleg útför fer fram án þátttöku prests eða annars fulltrúa kirkjunnar. Ef hinn látni tilheyrði ekki neinu trúfélagi er það aðstandenda að ákveða hvernig athöfn er háttað. Kveðjuathöfn samfélagsins Grand Hótel Reykjavík Sigtún 38 105 Reykjavík Sími : 514 8019 E-mai l : er f idr ykkjur@grand. is Samvera í nota legu umhverf i Á Grand Hótel Reykjavík færðu faglega og persónulega þjónustu. . Fjölbreytilegt úrval sala sem henta vel til erfidrykkju . Fyrirmyndaraðstaða fyrir allt að 400 manna erfidrykkjur . Veitingar eru allar búnar til á staðnum, ávallt úr fersku og hágæða hráefni . Dekkuð borð með rósum og kertum . Sérstakt borð til heiðurs hinum látna með gestabók, ljósmynd, blómum og kertum . Fagleg þjónusta og hlýlegt viðmót . Frábært aðgengi að hótelinu ásamt nægum bílastæðum Hlýlegt og gott viðmót á Grand ERFIDRYKKJUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.