Fréttablaðið - 30.01.2013, Qupperneq 29
| FÓLK | 3
Mig langaði til að sameina áhuga minn á „hinum ódauðlegu“ og Íslandi,“ segir Þjóðverjinn
Monika Jaedig, en hún er að leggja loka-
hönd á sína fyrstu skáldsögu, Silbernes
Band, sem fjallar um íslenska vampíru.
Bókin kemur út á þýsku í lok mars á
Neobooks.com. Monika féll fyrir Ís-
landi eftir að hún heimsótti landið fyrir
nokkrum árum og skráði sig í framhald-
inu á íslenskunámskeið.
Hún segist alltaf hafa verið heilluð af
vampírum og segir að hugmyndin að
bókinni hafi kviknað fljótlega eftir fyrstu
Íslandsheimsóknina. En þó dimmur ís-
lenskur vetur gæti talist ákjósanlegt um-
hverfi fyrir vampírur þá sest sólin ekki á
sumrin. Hvernig fer það með ljósfælnar
blóðsugurnar?
„Ísland er reyndar ekki ákjósanlegur
staður fyrir vampírur,“ viðurkennir
Monika hlæjandi. „Hér eru eldspúandi
fjöll, allt of fáar manneskjur til að sjúga
úr blóð og nánast engir skógar til að
fela sig í undan sólarljósinu. Þá er Ís-
land langt frá öðrum löndum. En sólar-
ljósið drepur reyndar ekki vampírurnar
í sögunni minni heldur dregur úr þeim
mátt. Þær geta klætt af sér birtuna.
Söguhetjan mín ferðast einnig til Noregs
og Þýskalands á sumrin, þar sem hún
getur falið sig í dimmum skógunum.“
Monika las sér til um íslenska drauga
og forynjur við vinnslu bókarinnar og
fann þar ýmislegt sem hún gat nýtt sér
við skrifin.
„Íslenskar fornsögur og draugasögur
heilluðu mig upp úr skónum. Í Íslend-
ingasögunum eru margar yfirnáttúru-
legar verur, eins og Kveld-Úlfur, völvur
og berserkir og ég tengi til dæmis eina
söguhetjuna við Kveld-Úlf. Þá finnst mér
frábært hve sögurnar eru Íslendingum
mikilvægar enn í dag. Ég er ekki viss
um að Svisslendingar tali jafn mikið um
Wilhelm Tell og Íslendingar tala um Njál
og Gunnar, Gretti og Egil,“ segir Monika.
En hvað gerist í sögunni hennar?
„Þetta er fyrst og fremst rómantísk
ástarsaga en auðvitað rennur smá blóð
og hálsar eru ristir. Aðalsöguhetjan,
Heiðar Kristínarson, er blendingur, al-
inn upp af dauðlegri móður sinni og átti
erfitt í æsku. Blóðþorstinn og eirðar-
leysið ágerist og 12 ára fær hann að vita
að faðir hans er vampíra. Hann lærir að
hemja hvatir sínar og vinnur sem kenn-
ari í Fjölbraut í Breiðholti, er hress og
aðlaðandi gaur, hálfgerður kvennabósi.
Vampíran í honum vaknar þegar hann
hittir Rúnu, konuna sem hann þráir,
og þegar hann hittir föður sinn, hinn
írska Fionn, upphefjast átakatímar í lífi
hans,“ útskýrir Monika en fæst svo ekki
til að segja meir. Hún er þó þegar búin
að skrifa þrjár framhaldssögur af Silb-
ernes Band og því ekki annað hægt en
að spyrja hana hvað heilli hana svo við
vampírur.
„Ódauðleikinn heillar mig, valdið og
skörp skilningarvit þeirra. Vampírur eru
eins og ofurrándýr, hafa lifað að eilífu
og fylgst með þróun mannkyns. Svo
eru þær auðvitað alltaf gullfallegar og
því fullkomnar í rómantískar fantasíur,“
segir Monika sposk.
Silbernes Band verður fáanleg á
Amazon, iBookstore og í þýskum vef-
bókabúðum svo sem Thalia og Weltbild.
Kápa bókarinnar verður myndskreytt af
íslenskum hönnuði, Fanneyju Sizemore.
■ heida@365.is
VAMPÍRUR Í
BREIÐHOLTINU
ÞÝSK SKÁLDSAGA Monika Jaedig heillaðist af Íslandi eftir heimsókn til
landsins og fór að læra íslensku. Hún skrifar nú skáldsögu um vampírur í
Breiðholtinu sem kemur út á rafbók í lok mars.
ÍSLENSKAR BLÓÐ-
SUGUR Monika Jaedig
er að leggja lokahönd
á fyrstu skáldsögu sína
en hún fjallar um blóð-
þyrstan framhaldsskóla-
kennara í Breiðholtinu.
MYND/GVA
Éljagangur vetrar- og útivistarhátíð
verður haldin á Akureyri dagana 14. til
17. febrúar 2013. Markmið hátíðarinnar
er að kynna fjölbreytni í vetrarútivist
fyrir íbúum bæjarins og ferðafólki.
Ferðaþjónustuaðilar og áhugafélög
á svæðinu standa fyrir sérstökum
ferðum og viðburðum af ýmsum toga,
sleðaspyrnu, snjóbrettakeppni og -sýn-
ingu, íscrosskeppni, vélsleðaferðum
og snjótroðaraferðum, dorgveiði, fjall-
gönguferðum og skíðanámskeiðum.
Í fyrsta sinn verður boðið upp á ferðir
með þyrlu í útsýnisflug eða með skíðin
upp á fjallstopp. Ógleymanleg upp-
lifun!
Stærstu viðburðir helgarinnar eru án
efa flóðlýst snjóbrettasýning á Ráðhús-
torgi seinnipartinn á föstudag og DC-
brettakeppni og -session í Hlíðarfjalli,
skipulögð af brettadeild Skíðafélags
Akureyrar.
Fyrir fjölskylduna er Vasa-ljósa-
gangan í Hlíðarfjalli á fimmtudagskvöld
ómissandi viðburður en þar sjá skíða-
menn sjálfir um að lýsa upp brautina
og verðlaun verða veitt fyrir frumleg-
asta ljósabúnaðinn.
Þetta er hátíð þar sem reynt er
að höfða til sem flestra sem leggja
stund á útivist. Hátíðinni fylgir
snjókarlinn Frosti sem kemur sér
fyrir á Ráðhústorgi auk þess sem þar
verður búin til aðstaða fyrir ungt
brettaáhugafólk.
FJÖLBREYTT VETRARHÁTÍÐ Á AKUREYRI
ÚTIVIST Margt verður
um að vera á vetrarhá-
tíðinni á Akureyri um
miðjan febrúar.
MYND/ÞÓRIR TRYGGVASON Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS
Ferðaáæ
tlun FÍ 2
013
er komi
n út
Námskeið í vetrarfjallamennsku
9. febrúar
Ferðafélag Íslands býður upp á námskeið í vetrarfjalla-
mennsku laugardaginn 9. febrúar nk.
Á námskeiðinu er farið yfir grundvallaratriði vetrar-
fjallamennsku, búnað til fjallamennsku, leiðaval og
snjóflóðahættu.
Leiðbeint er um göngu í snjó og notkun ísaxar og
ísaxarbremsu, göngu á mannbroddum og snjó- og
ístryggingar. Fjallað um hnúta, línumeðferð, sig
og létt snjó- og ísklifur.
Skyndihjálp og óhöpp í óbyggðum
19., 21. og 26. febrúar
Tími: Kl.18-22 í sal FÍ, Mörkinni 6.
Ferðafélag Íslands býður upp á námskeið í skyndihjálp
og óhöpp í óbyggðum.
Verklegt námskeið fyrir göngufólk í skyndihjálp og
viðbrögðum við óhöppum í óbyggðum. Eftir stutta
upprifjun á grunnatriðum skyndihjálpar er lögð aðal-
áhersla á raunhæf verkefni og fræðslu og frásagnir af
slysum á Íslandi og þannig reynt að æfa viðbrögð við
óhöppum. Námskeiðið endar á verklegri útiæfingu þar
sem björgunarfólkið þarf að fást við slasaða sjúklinga.
Ferðafélag Íslands
Skráning á námskeiðin eru í síma 568 2533 eða í
netpóst fi@fi.is
Skráðu þig inn – drífðu þig út
Námskeið í febrúar