Fréttablaðið - 30.01.2013, Page 36
30. janúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 24
Kaffipúðarnir passa í venjulegar skeiðar Senseo vélanna
E
M
M
E
N
N
E
E
N
N
E
/
S
ÍA
/
N
M
5
5
7
9
2
NÝTT
MEIRI FYLLING
& MEIRImunaður
UPPGÖTVAÐU NÝJAN BRAGÐHEIM SENSEO
„Kaffipúðarnir
passa í allar
tvöfaldar skeiðar
sem fylgja með
Senseo vélum“
MENNING
BÆKUR ★★★★ ★
Kamilla vindmylla og bull-
orðna fólkið
Hilmar Örn Óskarsson. Erla María
Árnadóttir myndskreytti.
BÓKABEITAN
Hvað er til ráða þegar pabbar fara
að ganga í rósóttum skyrtum, spila
lúftgítar í gríð og erg og segja grúví
í öðru hverju orði? Eða þegar líf-
fræðikennarar taka upp á því að
kalla frumur fiðlur og segja nem-
endum sínum að byggingareining-
ar fiðla kallist umfrymi, rigning
og María Kvaran? Hvað er til ráða
þegar hinir fullorðnu verða bull-
orðnir?
Kamilla Vindmylla og bullorðna
fólkið eftir Hilmar Örn Óskarsson
er með skemmtilegri barnabókum
sem ég hef lesið undanfarna mán-
uði. Með þessari bók stígur Hilm-
ar Örn sín fyrstu skref á ritvell-
inum. Bókin segir frá skelfilegri
plágu sem geisar um landið en full-
orðna fólkið virðist hafa smitast af
bullsjúkdómi og hegðar sér eins og
börn. Björgun íslensks samfélags
er í höndum barnanna sem þurfa
að komast að því hvað það er eigin-
lega sem herjar á foreldra þeirra.
Hin ellefu ára Kamilla Vind-
mylla hóar saman hóp skólafélaga
og með aðstoð Felix, ungsnillings,
komast þau að því að í útjaðri borg-
arinnar býr brjálaður vísinda-
maður að nafni Elías Emil. Hann
hefur byggt mikið dómsdagstól
sem sendir út geisla á hverri nóttu
og breytir þankagangi hinna full-
orðnu. Kamilla, Felix og félagar
leggja af stað í mikla svaðilför til
bækistöðva brjálaða vísindamanns-
ins til að koma í veg fyrir ógurleg
áform hans.
Ég frussaði af hlátri við lestur
bókarinnar, svo illilega að á blað-
síðu 47 er nú risastór kaffiblett-
ur. Hann varð til þegar ég las um
nágrannakonu Kamillu sem raðar
litríkum leikfangahestum ofan í
vatnspoll, sáldrar sóleyjarblöðum
yfir og syngur lofsöng með skærri
óperurödd. „Töfralaugin ykkar er
tilbúin, litlu folar“. Við hlið henn-
ar málar gaur úr nágrenninu bíl-
inn sinn svartan, með fjólubláum
eldingum. „Minns var bara að gera
geimskipið sitt klárt til flugtaks“
tilkynnir hann strákaþyrpingu sem
fylgist með, og býður þeim að fljúga
með sér til plánetunnar Úríel.
Bókin er vel skrifuð, eilítið
absúrd, og bráðfyndin. Söguþráður
hennar er kannski ekki flókinn en
sagan líður vel áfram. Ekki er djúpt
kafað ofan í sálarlíf söguhetjanna
en þær eru skemmtilegar og vinna
vel saman. Orðaleikirnir sem verða
til þegar fullorðna fólkið byrjar að
bulla vekja börn til umhugsunar
um eðli tungumálsins og merkingu
orðanna. Uppsetning texta er til
fyrirmyndar og leturgerð sérlega
auðlæsileg. Bókin er fallega mynd-
skreytt af Erlu Maríu Árnadóttur
en teikningar hennar eru líflegar og
nýmóðins. Þær bæta kannski ekki
neinu sérstöku við söguna en þær
styðja ágætlega við hana.
Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir
NIÐURSTAÐA: Stórskemmtileg og
bráðfyndin bók ætluð lesendum
10-14 ára.
Bullukollar, barnaskapur
og brjálaðir vísindamenn
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
MIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAR 2013
Fundir
20.00 Framsóknarfélag Reykjavíkur
boðar til fundar um afnám verðtrygg-
ingar á Grand Hóteli. Flutt verða
framsöguerindi og boðið upp á opnar
umræður og spurningar að þeim
loknum. Allir velkomnir.
20.00 Fyrsti fundurinn í fræðslu-
fundaröð Félags heimspekikennara
verður haldinn í Verzlunarskóla Íslands.
Páll Skúlason flytur þá erindi undir yfir-
skriftinni Hvað er heimspekikennsla.
Allir velkomnir og aðgangur ókeypis.
Kvikmyndir
16.30 Konfúsíusarstofnunin Norðurljós
sýnir Villta Kína I, 1. hluta af 6, þáttaröð
BBC um ýmis landsvæði Kína. Myndin
er sýnd í stofu 132 í Öskju, Háskóla
Íslands. Enskt tal og aðgangur ókeypis.
Bókmenntir
20.00 Bókakaffi verður haldið í Menning-
armiðstöðinni Gerðubergi í samstarfi við
Borgarbókasafn Reykjavíkur. Jón Björns-
son fer með umsjón kaffisins þar sem
kynntar verða áhugaverðar bókmenntir
og rætt um þær á óformlegan hátt.
Dans
14.00 Síðdegisdans verður hjá Félagi
eldri borgara í Reykjavík, Stangarhyl 4.
Stjórnendur eru Matthildur og Jón Freyr.
Tónlist
12.00 Grímur Helgason klarínettu-
leikari og Hrönn Þráinsdóttir píanó-
leikari spila á fyrstu tónleikum ársins
á tónleikaröðinni Líttu inn í Salnum,
Kópavogi. Miðaverð er kr. 1.000.
21.00 Hljómsveitin Robert the Room-
mate heldur tónleika á Café Rosenberg.
Aðgangseyrir er kr. 1.500.
„Við verðum vör við aukinn
áhuga á hverju ári; bæði frá tón-
skáldum, flytjendum, almenn-
ingi og erlendum tónlistarhá-
tíðum,“ segir Pétur Jónasson,
framkvæmdastjóri Myrkra mús-
íkdaga, sem hefjast á morgun og
standa fram á mánudag. Hátíðin
er helsti vettvangur framsæk-
innar nútímatónlistar á Íslandi,
þar sem frumsköpun og tilrauna-
starfsemi eru í aðalhlutverki.
Algengt er að verk séu frumflutt
á hátíðinni og segir Pétur að slík
verk séu óvenjumörg í ár, eða um
sjötíu prósent af efnisskránni.
Á dagskránni í ár kennir
ýmissa grasa. Boðið verður upp
á sinfóníutónleika, sinfóníettu-
tónleika, kammertónleika, kór-
tónleika, raftónleika, einleiks-
tónleika og tónleika með börnum.
Meðal flytjenda eru nokkrar af
helstu hljómsveitum, kammer-
hópum og einleikurum þjóðar-
innar, þar á meðal Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands. Þá mun kínversk
samtímatónlist hljóma á sér-
stökum tónleikum. Fyrirlestrar
og námskeið verða haldin í sam-
starfi við Listaháskóla Íslands
og ber hæst heimsókn prófess-
ora og nemenda Brandon-háskól-
ans í Kanada sem auk þess munu
koma fram á tvennum tónleikum
á hátíðinni sjálfri í Hörpu.
Pétur segir af nógu að taka
fyrir tónlistarunnendur og
bendir meðal annars á opnunar-
tónleikana sem haldnir verða í
húsakynnum RÚV í Efstaleiti og
sendir út í beinni útsendingu.
„Þar verða frumflutt nokk-
ur ný sönglög eftir Atla Heimi
Sveinsson. „Slíkur viðburður
sætir auðvitað tíðindum enda
erum við með landslið tónlistar-
fólks sem sér um flutninginn.“
Pétur segir hátíðina ekki skipu-
lagða með neitt sérstakt þema í
huga.
„Við bregðumst fyrst og fremst
við óskum frá tónskáldum og
flytjendum, sem eru alltaf ótrú-
lega spenntir fyrir þessari hátíð.
Við fáum líka sífellt fleiri fyrir-
spurnir frá erlendum tónskáldum
og flytjendum sem vilja taka þátt
í hátíðinni, eins og sést á dag-
skránni í ár.“
Þá segir Pétur að almenn
aðsókn á hátíðina sé meiri en
gengur og gerist á sambæri-
legum hátíðum í nágrannalönd-
um.
„Það þykir mjög óvenjulegt að
í svona fámennu landi sé leikið
fyrir nánast fullum sal á hátíð
sem þessari. Erlendir gestir
standa í forundran yfir þessu
og ekki að ástæðulausu. Ég er
nýkominn af norrænum tónlistar-
dögum í Stokkhólmi og þar léku
hljómsveitir fyrir nokkrar hræð-
ur í hálftómum sölum.“
Pétur grunar að ástæðuna
megi rekja til tónsmíðadeild-
ar Listaháskóla Íslands. „Þaðan
hafa verið að útskrifast fjölmarg-
ir ungir og flottir músíkantar
með breiða menntun, til dæmis
Högni Egilsson í Hjaltalín, sem
er poppstjarna og fæst líka við
tónsmíðar, og Hafdís Bjarna-
dóttir, sem er djassgítarleikari
en hefur látið rækilega að sér
kveða sem tónskáld. Þetta leggst
allt á eitt.“
Nánari upplýsingar um dag-
skrá Myrkra músíkdaga má finna
á heimasíðu hátíðarinnar, www.
myrkir.is. bergsteinn@frettabladid.is
Á dimmum nótum
Hin árlega tónlistarhátíð Myrkir músíkdagar hefst á morgun og stendur fram á sunnudag. Hátíðin hefur
verið einn mikilvægasti vettvangur framsækinnar nútímatónlistar hér á landi allt frá stofnun árið 1980.
PÉTUR JÓNASSON Segir erlenda gesti jafnan verða hissa þegar þeir sjá hversu góð
aðsókn er á Myrka músíkdaga. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN