Fréttablaðið - 30.01.2013, Page 38
30. janúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 26
Þrír hafa verið handteknir vegna
eldsvoðans á næturklúbbnum
Kiss í háskólaborginni Santa
Maria syðst í Brasilíu í fyrrinótt.
Í það minnsta 233 fórust í elds-
voðanum. Hinir handteknu eru
einn af eigendum staðarins, yfir-
maður öryggismála á staðnum og
söngvari hljómsveitarinnar Gur-
izada Fandangueira, en eldurinn
kviknaði út frá blysum og flug-
eldum sem liðsmenn hljómsveit-
arinnar kveiktu í uppi á sviði.
Leit stendur nú yfir að öðrum
eiganda staðarins. Samkvæmt
þarlendum fréttum mun örygg-
isvottorð næturklúbbsins hafa
runnið út á síðasta ári. Þá er
talið að um tvö þúsund manns
hafi verið á staðnum, sem hefur
einungis leyfi fyrir eitt þús-
und gesti, aðfaranótt sunnu-
dags þegar hörmungarnar átti
sér stað. Verið var að fagna inn-
göngu nýnema í háskólann UFSM
og kviknaði í eftir að Gurizada
Fandangueira hafði leikið fimm
lög.
Flestir hinna látnu voru á aldr-
inum sextán ára til tvítugs. Fimm
meðlimir Gurizada Fandangueira
komust undan eldinum en harm-
óníkuleikari sveitarinnar, Danilo
Jacques, lést.
Söngvari sveitarinnar
var handtekinn
Þrír hafa verið handteknir vegna mannskæðs elds-
voða á næturklúbbi í Brasilíu á sunnudagsnótt.
Hljómsveitin Dúndurfréttir ætlar
að flytja eitt helsta meistaraverk
rokksögunnar, Dark Side of the
Moon með Pink Floyd, í heild sinni
á tvennum tónleikum í apríl. Til-
efnið er fjörutíu ára afmæli plöt-
unnar.
Fyrri tónleikarnir verða í Eld-
borgarsal Hörpu 20. apríl og hinir
síðari í Hofi á Akureyri 24. apríl.
Dark Side of the Moon er vinsæl-
asta plata heims og hefur selst í
yfir fimmtíu milljónum eintaka.
Engu verður til sparað til að gera
þessa tónleika sem glæsilegasta,
enda var Pink Floyd þekkt fyrir
mikið sjónarspil á sínum tónleik-
um. Meðal annars verður fjöldi
aðstoðarmanna Dúndurfrétta-
mönnum til halds og trausts á tón-
leikunum. Hljómsveitin hefur áður
flutt Dark Side of the Moon í heild
sinni og einnig aðra plötu með Pink
Floyd, The Wall, en aldrei í Hörpu.
Miðasala hefst þriðjudaginn 12.
febrúar kl 12 á Midi.is.
Flytja Dark Side of the Moon
Dúndurfréttir fl ytja Dark Side of the Moon á tvennum tónleikum í apríl.
Í dag verður stuttmyndin Fáðu
já frumsýnd samtímis í öllum
grunn- og framhaldsskólum hér á
landi. Um stuttmynd er að ræða
þar sem fjallað er um mörkin
milli ofbeldis og kynlífs en leik-
stjóri er Páll Óskar Hjálmtýsson.
Ætlunin með myndinni er að
brjóta ranghugmyndir á bak
aftur og vega upp á móti áhrifum
klámvæðingarinnar. Auk þess að
leikstýra myndinni sá Páll Óskar
um handritagerð ásamt þeim
Brynhildi Björnsdóttur og Þór-
dísi Elvu Þorvaldsdóttur.
Verkefnið er styrkt af mennta-
og menningarmálaráðuneytinu,
innanríkisráðuneytinu og vel-
ferðarráðuneytinu í vitundar-
vakningu um kynferðisofbeldi
gagnvart börnum og unglingum.
Páll Óskar frumsýnir
BÍÓ ★★★★ ★
Hvellur
Leikstjórn: Grímur Hákonarson
Árið 1970 tóku bændur í Mývatns-
sveit sig saman og sprengdu upp
stíflu í Laxá sem ógnaði lífríki
á svæðinu. 113 lýstu verkinu á
hendur sér, og í dag er talað um
atburðinn sem eins konar upp-
hafspunkt í sögu náttúruverndar
á Íslandi.
Heimildarmyndin Hvellur
segir þessa mögnuðu sögu frá
hlið bændanna, en samstaða
þeirra, auk innherjaupplýsinga
frá skæruliðahreyfingum í Suður-
Ameríku, varð til þess að erfitt
var að draga einhvern til ábyrgð-
ar. Nú er nægilega langt liðið frá
atburðinum til þess að sekir og
meðsekir geti sagt söguna með
glott á vörum. Enda er margt við
þessa sögu bráðfyndið.
Ekki er neitt sérlega mikið til
af myndefni frá þessari deilu, en
harðmæltir og frásagnarglaðir
viðmælendur brúa það bil í nýleg-
um viðtölum. Flestir voru þeir
viðstaddir sprenginguna, eða eru
að öðru leyti tengdir atburðarás-
inni. Eins og ávallt þegar hlustað
er á góða sögumenn fer áhorfand-
inn að myndskreyta frásagnirnar
í huganum, svo eftir stendur mun
meira „myndefni“ en í raun og
veru er í myndinni.
Leikstjórinn Grímur pakkar
efninu smekklega inn og skreytir
sögurnar með landslagsmyndum
frá svæðinu og því fréttaefni sem
til er. Þetta gerir hann afar vel en
hann er fyrir löngu orðinn einn
af okkar allra fremstu heimildar-
myndagerðarmönnum.
Falleg tónlist Valgeirs Sigurðs-
sonar stingur þó eilítið í stúf, og
passar á köflum illa við glað-
hlakkalegt myndefnið. Það er
dramatík í sögunni um stíflu-
sprengjuna, en kannski ekki alveg
svona mikil. Haukur Viðar Alfreðsson
NIÐURSTAÐA: Þrælskemmtileg og
fróðleg mynd um stórmerkilegan
atburð.
Sameinaðir sprengdu þeir
HVELLUR „Leikstjórinn Grímur pakkar efninu smekklega inn og skreytir sögurnar
með landslagsmyndum frá svæðinu og því fréttaefni sem til er.“
DÚNDURFRÉTTIN Hljómsveitin flytur plötuna Dark Side of the Moon í heild sinni
á tvennum tónleikum í apríl. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HÖRMUNGAR Talið er að í það minnsta
233 hafi farist í eldsvoðanum á
skemmtistaðnum Kiss. NORDICPHOTOS/AFP
STUTTMYND Páll Óskar Hjálmtýsson
frumsýnir í dag tuttugu mínútna for-
varnamynd sem fjallar um mörkin milli
ofbeldis og kynlífs. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SÖLU LÝKUR KL. 17
250.000.000
+850.000.000
ÞÚ TALDIR RÉTT 1.100.000.000
Tvöfaldur fyrsti vinningur stefnir í 250
milljónir, Ofurpotturinn í 850 milljónir.
Ekki gleyma að vera með! Fáðu
þér miða fyrir klukkan fimm í dag
á næsta sölustað eða á lotto.is
ALLTAF Á MIÐVIKUDÖGUM!
MIÐINN GILDIR 30. JANÚAR 2013
A. 12 14 17 21 41 48
B. 05 16 23 36 37 38
C. 07 09 13 22 34 38
D. 03 06 19 24 25 31
E. 11 19 21 25 38 42
F. 01 25 35 36 39 46
G. 18 19 20 23 28 46
H. 22 27 29 39 40 42
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
1100 MILLJÓNIR
FYRSTI VINNINGURTVÖFALDUR