Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.01.2013, Qupperneq 46

Fréttablaðið - 30.01.2013, Qupperneq 46
30. janúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 34 „Við bjóðum bara upp á ferskan og hollan mat og eng- inn þarf að óska eftir yfirdráttarheimild til að geta borðað hjá okkur,“ segir Jón Arnar Guðbrandsson sem ásamt Jóni Gunnari Geirdal opnar nýjan stað að Suðurlandsbraut 4 í mars. Staðurinn ber heitið Lemon og verður samblanda af stöðunum Joe & the Juice, sem er geysivinsæll í Dan- mörku, og Pret A Manger, sem er stærsti skyndibita- sali í Bretlandi. „Við verðum með grillaðar sælkera- samlokur, safaríka hollustudjúsa, hafragrauta, salöt, skyr-smoothies og fleira og ætlum að búa til sama andrúmsloft og er á þessum stöðum þar sem fólki líður svo vel að það gleymir stund og stað,“ segir Jón Arnar. „Við verðum með alls kyns nýja strauma og blöndum saman framandi hráefnum sem eiga eftir að trylla bragðlaukana,“ bætir hann við. DJ Margeir sér um tónlist staðarins og parið Hálf- dán Pedersen og Sara Jónsdóttir sér um hönnun hans, en þau hönnuðu meðal annars Geysisbúðirn- ar og KEX Hostel. „Það er svo undir mér komið að maturinn standi undir væntingum,“ segir Jón Arnar og hlær. Spurður hvort afgreiðslan verði full af vel útlítandi og daðrandi strákum eins og þekkist á Joe & the Juice segir Jón Arnar það vera hluta af þemanu. „Við verðum auðvitað með stelpur í vinnu líka, til að hjálpa okkur að láta þetta ganga upp, en stefnum á að vera með afgreiðsluna fulla af flottum strákum,“ segir hann. - trs Daðrandi töff arar í afgreiðslunni Heilsustaðurinn Lemon verður opnaður í mars á Suðurlandsbraut. Hann á að fyrirmynd staðina Joe & the Juice í Danmörku og Pret A Manger í Bretlandi. NÝIR STRAUMAR Jón Gunnar og Jón Arnar eru mennirnir á bak við Lemon, þar sem hollustan verður í fyrirrúmi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI „Maður á aldrei von á að lenda í einhverju svona. Mér varð nátt- úrulega brugðið og það var mjög óþægilegt að lenda í þessu,“ segir grínistinn Daníel Geir Moritz. Brotist var inn í rauða Mazda- bifreið hans fyrir utan Útvarps- húsið aðfaranótt sunnudags og stolið þaðan tveimur kössum. Í þeim var gestabók úr ferming- arveislunni hans, útskriftargjöf frá afa hans og ömmu, verð- launapeningar úr æsku, minn- ingarbók sem var skrifað í eftir fæðingu hans og fleira. „Ég var fyrir austan, í Neskaupstað þar sem ég er fæddur og uppal- inn, um jólin. Ég var að fara yfir gamalt dót með pabba því það var kominn tími á að finna annan stað fyrir það. Þarna er ekkert sem nýtist þjófnum eða þjófunum en þetta hefur mikið gildi fyrir mig,“ segir Daníel Geir, sem var kjörinn fyndnasti maður Íslands árið 2011. Hann setti stöðu á Facebook í fyrradag sem hann hvatti fólk til að deila. Þar biðlaði hann til þjófsins eða þjófanna að skila mununum. „Viðbrögðin urðu mögnuð. Það var rosalega margt fólk sem tók við sér á mínum vinalista og líka fullt af fólki sem ég þekki ekki neitt. Það er gaman að sjá svona stuðning og þetta gefur manni von um að þetta komist til skila.“ Þeir sem geta aðstoðað Daníel Geir við að fá persónulega muni sína aftur geta sent honum póst á Danielgeirmoritz@gmail.com eða hringt í síma 868-5460. - fb Fermingargestabókinni stolið Persónulegum munum var stolið úr bíl grínistans Daníels Geirs Moritz. HJÁ BÍLNUM Daníel Geir Moritz hjá Mazda-bifreið sinni sem brotist var inn í um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA „Þessa dagana hef ég lítinn tíma fyrir sjónvarpsáhorf, en þess utan er Homeland númer eitt hjá mér. Svo horfi ég alltaf á Project Runway.“ Guðrún Guðjónsdóttir, fatahönnuður hjá Hugin Munin. SJÓNVARPSÞÁTTURINN Guðmundur Jörundsson fata- hönnuður hefur fært út kvíarn- ar og sýnir fyrstu dömulínu sína á Reykjavík Fashion Festival í mars. Guðmundur hefur áður getið sér gott orð fyrir herralínur sínar en hann hannar bæði undir eigin nafni og fyrir Herrafataverslun Kormáks og Skjaldar. Samkvæmt Guðmundi verður dömulínan gæjaleg og mikið lagt upp úr sníðagerðinni. „Við erum nýbyrjuð í sniða- og munsturgerð. Litapallettan verður einföld og sniðin gæjaleg. Hingað til hef ég einbeitt mér alfarið að herrafatn- aði og þetta er því svolítið nýtt fyrir mér, en ég er mjög spennt- ur fyrir þessu,“ segir Guðmundur sem á merkið JÖR by Guðmundur Jörundsson ásamt Gunnari Erni Petersen. Guðmundur mun áfram hanna línur fyrir Herrafataverslun Kor- máks og Skjaldar en segir þær línur ekki koma jafn ört út og hans eigin. „Vörurnar þeirra eru mjög klassískar og koma ekki út á hverri önn eins og mínar. Það er vissulega mikið í gangi þessa stundina, en mér finnst gott að geta kúplað mig úr herralínun- um með dömulínunni og öfugt,“ útskýrir Guðmundur sem stefnir á að opna eigin verslun við Laugaveg 89 sömu helgi og RFF stendur yfir. „Þetta er rúmgott og fínt hús- næði og er við hliðina á Atmo. Við Gunnar fengum það afhent um helgina sem leið og erum nú að hefjast handa við að pæla, hanna og innrétta. Til að byrja með verð- ur aðeins herralína JÖR by Guð- mundur Jörundsson fáanleg í versluninni en við ætlum líka að bjóða upp á ódýrari og klassískari vörur á borð við jakkaföt, boli og skyrtur, sem ég mun einnig sjá um að hanna. Ég er einn í þessu núna, en vonin er að geta sett saman gott hönnunarteymi í framtíðinni,“ segir hinn vinnusami hönnuður að lokum. sara@frettabladid.is Hannar á dömurnar Guðmundur Jörundsson frumsýnir fyrstu dömulínu sína á Reykjavík Fashion Festival og opnar nýja verslun við Laugaveg meðan hátíðin stendur yfi r. HANNAR Á DÖMUR Guðmundur Jörundsson hefur getið sér gott orð fyrir herralínur sínar en frumsýnir sína fyrstu dömulínu á RFF. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Stílisti söngvarans Chris Brown óskaði eftir jakkafötum frá herrafatalínu Kormáks og Skjaldar í haust. Stílistinn var á höttunum eftir fötum fyrir Brown til að klæðast er hann sótti tískuvikuna í London. Svo fór að söngvarinn ákvað að vera heldur viðstaddur MTV-tónlistarhátíðina og því voru jakkafötin send aftur til baka. Guðmundur segist feginn því að söngvarinn hafi ekki klæðst hönnun sinni. „Ég hafði mjög blendnar tilfinningar gangvart þessu því hann er ekki fyrirmyndin sem ég vil að klæðist fötunum mínum. Ég er því nokkuð feginn að þetta gekk ekki upp,“ segir Guðmundur og vísar þar til ofbeldisfullrar fortíðar söngvarans. Brown gekk í skrokk á kærustu sinni, söngkonunni Rihönnu, árið 2009 og var í kjölfarið dæmdur í fimm ára skilorðsbundið fangelsi, samfélagsþjónustu og skikkaður í meðferð við bræði. Þann 14. júní 2012 lentu Brown og rapparinn Drake í slagsmálum á skemmtistað með þeim afleiðingum að átta manns slösuðust. Nú á sunnudag lenti Brown í slagsmálum við söngvarann Frank Ocean. Feginn að Chris Brown hætti við Verðdæmi: 1.390 ALLUR FISKUR Í FISKBORÐI kr .k g . Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755 Opi ð k l. 7 -18 .15 Lau gar d. 1 0-1 5 Laxaflök marineraður með Lemmon/Butter . . . 1.390 Laxaflök, fersk . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 1.390 Þorskhnakkar . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 1.390 Ýsuflök roðlaus/beinlaus . . . . . . . . . . . . . . . . 1.390 Löngusteikur marineraðar Indversku karrí . . 1.390 Löngusteikur marineraðar á Gríska vísu . . . . 1.390 Rauðsprettuflök glæný . . . . . . . . . . . . . . . . . . 1.390 Allir fiskréttir . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 1.390 28. jan. - 3. feb.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.