Fréttablaðið - 27.03.2013, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 27.03.2013, Blaðsíða 2
27. mars 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 2 Hermann, eru glæpir þá bara grín? „Ja, grín er nú dauðans alvara.“ Hermann Jóhannesson gaf nýlega út glæpa- söguna Olnbogavík. Hann segir margar glæpasögur því marki brenndar að vera húmorslausar. Íslandskex er bragðgott kex sem hentar í öll mál fyrir þig. LÖGREGLUMÁL Maður á þrítugs- aldri sem grunaður er um að hafa valdið dauða fimm mánaða gamall- ar dóttur sinnar með því að hrista hana var í gær úrskurðaður í far- bann til 23. apríl að kröfu lögregl- unnar á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglan rannsakar andlát stúlkubarnsins. Í tilkynningu frá lögreglu segir að nánari bráða- birgðaniðurstöður rannsóknar réttarlæknis renni stoðum undir að andlátið megi rekja til svo- kallaðs „shaken baby syndrome“. Er talið að stúlkan hafi verið hrist svo harkalega að það hafi orsakað blæðingar inn á heilann. Faðirinn hafði setið í gæsluvarðhaldi frá því um síðustu helgi en ekki þótti ástæða til að halda honum lengur. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins neitaði maðurinn staðfast- lega sök í yfirheyrslum sem fram fóru á mánudaginn í síðustu viku. Hann sagðist ekki hafa hugmynd um hvað komið hefði fyrir dóttur sína. Útför stúlkunnar fór fram í kyrrþey í gær. - bj Grunaður um að hafa orðið valdur að dauða 5 mánaða gamals barns síns: Faðirinn úrskurðaður í farbann FARBANN Maðurinn hefur verið úrskurðaður í farbann og má ekki yfir- gefa landið fyrir 23. apríl næstkomandi. FRÉTTABLAÐIÐ/ÞORGILS DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur dæmt íslenska ríkið til að greiða verktaka 400 þúsund krónur fyrir gæsluvarðhald sem hann sætti í tengslum við rannsókn á man- salsmáli árið 2009. Héraðsdómur hafði sýknað ríkið af kröfum mannsins og taldi að hann hefði sjálfur átt sök á því að hann var hnepptur í varðhald með því að svara ekki spurn ingum. Maðurinn sat í varð- haldi í 22 daga og Hæstiréttur telur að síðustu sex dagarnir hafi verið óþarfir. Þá hafi hann ekki fengið nauðsynleg lyf allan tímann sem hann sat inni. - sh Fær 400 þúsund í bætur: Sat of lengi í haldi og fékk ekki lyfin sín UTANRÍKISMÁL Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í gær að veita fimm milljónir króna til uppbyggingar tónlistarhúss í Kulusuk á Grænlandi. Tónlistar- hús barnaskóla bæjarins brann til grunna 8. mars, en það var notað til tónlistarkennslu, tón- leikahalds og fyrir almennar samkomur. Hópurinn „Vinir Grænlands á Íslandi“ hefur undanfarið staðið fyrir söfnun svo koma megi upp nýju tónlistarhúsi í bænum. - bj Stjórnvöld styðja Kulusuk: Fimm milljónir í tónlistarhús KÖNNUN Framsóknarflokkurinn mælist með 29,5 prósenta fylgi í nýrri skoðanakönnun MMR, og mælist langstærsti stjórn- málaflokkurinn á Íslandi. Fylgi flokksins hefur aukist mikið á síðustu vikum. Fylgi Sjálfstæðisflokksins virðist í frjálsu falli og mælist nú 24,4 prósent. Samfylkingin mælist með 12,5 prósenta fylgi og Björt framtíð með 12 prósent. Stuðningur við Vinstri græn mælist 8,7 prósent. Önnur framboð ná ekki fimm prósenta fylgi. Næst því komast Píratar með 3,9 prósent og Hægri grænir með 2,5 prósent. - bj Ný könnun á fylgi flokkanna: Framsókn með tæp 30 prósent SPURNING DAGSINS DÓMSMÁL Leikarinn Ásgeir Þórðar son, betur þekktur sem Damon Younger, segist óvanur því að standa í handalögmálum og hann efist þess vegna um að hann hafi getað greitt manni sem kærði hann fyrir líkamsárás svo þungt högg að það hafi valdið heilaskaða. Þetta kom fram við aðalmeð- ferð líkamsárásarmálsins á hendur honum í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær þar sem Ásgeir neitaði sök. Salur 201 í dómshúsinu var þéttsetinn og rúmlega það, og þurftu nokkrir áhorfenda að standa á meðan á réttar höldunum stóð. Í salnum var stór hópur blaðamennskunema frá Háskóla Íslands, auk eiginkonu Ásgeirs og vinafólks þolandans. Sá sem fyrir árásinni varð, 36 ára Reykvíkingur, hlaut „heila- hristing, staðbundinn heila- áverka, rifbrot, mar á augnloki og augnsvæði vinstra megin, sár á innanverðri vör og eymsli í vinstri síðu“, að því er segir í ákærunni. „Ég er enginn boxari,“ sagði Ásgeir, þegar dómari lýsti fyrir honum afleiðingum árásarinnar. Ásgeir sagðist efast um að eitt högg af hans hendi gæti valdið af leiðingum sem þessum. Þolandinn hafi hins vegar fallið í jörðina og gæti hafa hlotið höfuð- högg af því. Ásgeiri og hinum manninum laust fyrst saman snemma kvölds 17. ágúst 2011 á reyksvæðinu á Kaffibarnum. Allir voru sam- mála um að þolandinn og vinir hans hefðu verið með almenn leiðindi við Ásgeir og kunningja- konu hans, sem hafi orðið til þess að þeir fóru að ýta í kvið hvor annars. „Ég var með „six-pack“ á þessum tíma eftir mikið æfinga- skeið,“ sagði Ásgeir, sem var þá að búa sig undir hlutverk sitt sem hrottinn Brúnó í kvikmyndinni Svartur á leik. Hann hafi því ekki fundið mikið fyrir því að fá hönd kærandans í magann. Maðurinn sló Ásgeir því næst í andlitið og í kjölfarið yfirgáfu Ásgeir og vinur hans barinn. Þeir sneru aftur síðar um kvöldið og vildi Ásgeir þá fá að ræða málin við manninn sem hafði ráðist á hann. „Ég spurði hann hvort hann ætti ekki inni hjá mér högg – eins kjánaleg spurning og það er,“ sagði Ásgeir, sem ber þó að hann hafi aðeins slegið til hans í vörn. Ásgeir segir málið hafa haft miklar afleiðingar fyrir hann. „Ég hef þurft að sæta andúð í samfélaginu,“ sagði hann og bætti við að kjaftasögur gengju um að hann hefði beitt hjólabretti við atlöguna. Aðalmeðferðinni verður fram haldið síðar. stigur@frettabladid.is „Ég er enginn boxari“ Leikarinn Damon Younger segist hafa sætt andúð í samfélaginu eftir að hann var kærður fyrir alvarlega líkamsárás fyrir utan Kaffibarinn. Þolandinn hlaut vægan heilaskaða af árásinni. Leikarinn segist aðeins hafa slegið manninn í vörn. FRIÐARMERKI? Damon Younger bar hönd fyrir höfuð sér í Héraðsdómi Reykja- víkur í gær. Í humátt á eftir honum fylgir nýbökuð eiginkona hans, kvikmynda- gerðar konan Vera Sölvadóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Þolandi árásarinnar bar fyrir dómi að hún hefði haft mikil áhrif á hann. Hann hefði verið frá vinnu í heilan mánuð og varla getað sofið dúr á nóttunni. Þá hefði hann verið á hálfum krafti í tvo mánuði til viðbótar sökum heilaskaðans sem hann hlaut. Maðurinn kvaðst ekkert muna eftir árásinni sjálfri– hann hafi fyrst rankað við sér þegar kærastan hans kom að honum þar sem hann var að skríða inn um gluggann heima hjá sér síðar um nóttina. Frá vinnu í heilan mánuð SAMKEPPNISMÁL Samkeppniseftir- litið sektaði í gær Skipti, móður- félag Símans og Mílu, um 300 milljónir króna vegna brota á sam- keppnislögum. Sektir sem Skipti og dótturfélög hafa þurft að greiða á undanförnum árum eru nú komnar í 1,2 milljarða króna. Samkeppniseftirlitið og Skipti hafa nú gert heildarsátt um að ljúka þeim málum sem eftirlitið hefur verið með til rannsóknar. Auk þess að greiða 300 milljóna króna stjórn- valdssekt samþykkja forsvarsmenn Skipta að gera umfangsmiklar breytingar á skipulagi samstæð- unnar til að efla samkeppni, að því er fram kemur í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu. Markmiðið með breytingunum er að keppinautar Símans sitji við sama borð og Síminn varðandi Samkeppniseftirlitið sektar Skipti, móðurfélag Símans, um 300 milljónir: Sektir komnar í 1,2 milljarða Skipti og Síminn sektuð aðgang að grunnfjarskiptakerfum Mílu með auknu sjálfstæði Mílu frá Símanum. Í tilkynningu Sam- keppniseftirlitsins segir að með því sé gengið lengra í aðskilnaði fyrr- verandi einokunarfyrirtækis en tíðkast hafi í nágrannalöndunum. Skipti viðurkenna ekki að hafa brotið gegn samkeppnislögum, og segir í yfirlýsingu frá fyrirtækinu að elstu málin, sem nú sé lokið með þessu samkomulagi, eigi rætur að rekja til ákvarðana sem teknar hafi verið þegar Síminn hafi enn verið ríkisfyrirtæki. Samkeppniseftirlitið telur sýnt fram á að Síminn hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína. - bj Júlí 2010 400 milljónir Janúar 2012 60 milljónir Ágúst 2012 390 milljónir Desember 2012 50 milljónir Mars 2013 300 milljónir Samtals 1.200 milljónir BANDARÍKIN, AP Hæstiréttur Bandaríkjanna hóf í gær að hlýða á mál- flutning í tveimur málum er varða réttindi samkynhneigðra til að ganga í hjónaband. Málflytjendur reyna að sannfæra dómarana níu um að ógilda bann nokkurra ríkja við hjónaböndum samkynhneigðra, og lýsa því jafn- framt yfir að alríkið þurfi að heimila hjónabönd samkynhneigðra. Nýjar skoðanakannanir sýna að verulegar breytingar hafa orðið á afstöðu Bandaríkjamanna til hjónabands samkynhneigðra. Nú er nærri helmingur fylgjandi. - gb Málflutningur um hjónabönd samkynhneigðra í Hæstarétti: Vilja ógilda bann við hjónabandi MÓTMÆLA Andstæðingar þess að samkynhneigðir fái að ganga í hjónaband mót- mæltu við byggingu hæstaréttar í Washington í gær. NORDICPHOTOS/AFP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.