Fréttablaðið - 27.03.2013, Síða 8

Fréttablaðið - 27.03.2013, Síða 8
„Ég hef skýr fyrirmæli frá all- stórum hópi útlendinga um að hringja ef Hekla byrjar að gjósa. Þegar eldgos hefst taka þegar gildi pantanir á hótelherbergjum fyrir þetta fólk,“ segir Anders Hansen, ferðaþjónustubóndi í Heklusetrinu á Leirubakka. Rétt fyrir hádegi í gær lýsti Ríkislögreglustjórinn og lögreglu- stjórinn á Hvolsvelli yfir óvissu- stigi Almannavarna vegna jarð- hræringa í Heklu. Sjö jarðskjálftar hafa mælst á undanförnum tveimur vikum, sem eru úr takti við það sem vísindamenn eiga að venjast við Heklurætur. Jarðhræringar eru ekki útilokaðar og er fólki ráðið frá því að ganga á fjallið næstu daga. Anders segir að tilkynning yfir- valda hafi fljótt haft sín áhrif. „ Síminn byrjaði að hringja strax eftir tilkynninguna. Fólk er for vitið um fjallið.“ Anders hefur hins vegar ekkert orðið var við skjálftana að undan- förnu og segir heimilisfólk aldrei finna þessa litlu skjálfta. „Við fylgjumst samt með, eins og flestir sem hér búa og horfa til Heklu nokkrum sinnum á dag.“ Hótelhaldararnir á Leirubakka hafa lista af áhugafólki um Heklu, þar sem krafan er að hringja ef nokkuð öruggt er að Hekla sé að fara að gjósa. „Þetta er fólk frá Evr- ópu og Ameríku, en það hefur ekki reynt á þetta enn þá. Þessi hópur á frátekið herbergi þegar eitthvað gerist. Það eru þúsundir manna sem koma til Íslands vegna Heklu. Margir hafa lesið um fjallið sem börn, sem hefur mikið aðdráttar- afl,“ segir Anders. Sverrir Haraldsson, 85 ára bóndi í Selsundi, hefur á langri ævi séð fimm Heklugos, það fyrsta árið 1947. „Ef þið takið af mér mynd, þá hendi ég ykkur út. En ég skal segja ykkur frá Heklu,“ segir Sverrir og lýsir stóra gosinu 1947 sem „eina gosinu sem vert er að minnast“. Sverrir, þá um tvítugt, vaknaði við snarpan jarðskjálfta og leit þá út um norðurglugga íbúðar hússins, sem sneri að fjallinu. „Þá var eldurinn að koma upp. Ég hef aldrei skilið í sögnum af upphafinu á því gosi. Ég sá svartan mökk standa úr fjallinu norðaustanverðu en ekki úr toppnum, eins og menn segja. En það gos var helvíti svakalegt. Um RENAULT KANGOO DÍSIL EYÐSLA 4,9 L / 100 KM* VINSÆLIR ENDA SPARNEYTNIR ATVINNUBÍLAR RENAULT TRAFIC DÍSIL EYÐSLA 6,9 L / 100 KM* RENAULT MASTER DÍSIL EYÐSLA 8,0 L / 100 KM* E N N E M M / S ÍA / N M 5 6 5 6 4 * E yð s la á 1 0 0 k m m ið a ð v ið b la n d a ð a n a k s tu r. BL ehf. Sævarhöfða 2 / 525 8000 Bílahúsið / Reykjanesbæ / 421 8808 – Bílasalan Bílás / Akranesi / 431 2622 Bílaverkstæði Austurlands / Egilsstöðum / 470 5070 – Bílasala Akureyrar / 461 2533 www.renault.is RENAULT – Í LIÐI MEÐ ATVINNUREKENDUM Í 100 ÁR. Það er ekki að undra að Renault sé stærstur á sviði sendibíla í Evrópu. Eftir meira en 100 ár í bransanum vita þeir hjá Renault hvað skiptir máli þegar bíllinn er vinnustaðurinn þinn: áreiðanleiki, sveigjanleiki og ekki síst þægindi. TRAFIC STUTTUR VERÐ FRÁ: 3.418.327 KR. ÁN VSK. 2,0 DÍSIL - 115 HÖ VERÐ: 4.290.000 KR. M. VSK. MASTER MILLILANGUR VERÐ FRÁ: 4.292.821 KR. ÁN VSK. 2,3 DÍSIL - 125 HÖ VERÐ: 5.390.000 KR. M. VSK. KANGOO II EXPRESS VERÐ: 2.541.833 KR. ÁN VSK. 1,5 DÍSIL - 90 HÖ VERÐ: 3.190.000 KR. M. VSK. 23 HEKLUGOS FRÁ LANDNÁMI HEIMILDIR: ANNÁLAR HEKLUGOSA (WWW.ISLANDIA.IS/HAMFARIR/JARDFRAEDILEGT/ELDGOS/HEKLA.HTML) / WIKIPEDIA.ORG– HEKLA. Um 7.500 kindur drepast af fl úor- eitrun. Öldugígar hlóðust. 1693 1725 1766 1845 1878 1913 1947 1970 1980 1991 2000 Eitt skaðsamasta gosið Gífurleg gjóskumyndun varð fyrstu stundir gossins. Talið er að 90% gjósk- unnar hafi fallið í fyrstu hrinunni. Aska lá yfi r öllu landinu og barst til Noregs. 55 jarðir á Suðurlandi urðu fyrir varan- legu tjóni. Búfé og villt dýr drápust. Þjófnaðir fylgdu sökum harðæris. Eft ir 102 ára hlé Vatnsmagn Ytri-Rangár varð tvöfalt meðalrennsli Þjórsár. Gosdrunur heyrast í Grímsey. Búfé fellur og einn vísindamaður lést þegar á hann féll glóandi hraunhella. Fyrsta eldgosið sem þaulrann- sakað var hér á landi. Ásjóna Heklu breyttist og hækkaði um 50 metra. Eitt lengsta Heklugos sem sögur fara af. Svo kraft mikið að björg þeyttust nokkurn spöl frá fj allinu. Vikur fall svo mikið að Ytri-Rangá stífl aðist. Drunur heyrðust norðanlands og búfé drapst. Gos á svipuðum slóðum og 1878. Mundafellshraun myndaðist. Hraun- fl æðið stífl aði ána Helliskvísl. Gos í topp- gígnum. Enn hækkar fj allið um 20-30 metra. Nokkur eyðilegging. Gos úr sprungu 10 km austur af Heklutindi. ■ Hekla gaus síðast árið 2000, 26. febrúar 2000, og stóð í tólf daga. ■ Hálftíma áður en gosið hófst sýndu skjálftamælar Veðurstofu Íslands þenslubreytingar í fjallinu sem virtust örugg vísbending um að kvika væri að þrýsta sér upp í gegnum gosrás Heklu. Almannavarnir voru látnar vita að gos myndi hefjast eftir 20 til 30 mínútur, sem gekk eftir. ■ Eldgosið var öflugast fyrstu tvær klukkustundirnar og náði þá gos- strókurinn í um níu kílómetra hæð. ■ Gosið var fremur lítið á mæli- kvarða Heklugosa. ■ Fjölmargir lögðu af stað frá höfuð- borgar svæðinu og víðar til að berja gosið augum. Í það minnsta 1.500 manns sátu fastir í bílum sínum í Þrengslunum og voru aðgerðir björgunarsveita einhverjar þær mestu síðan í Vestmannaeyja- gosinu árið 1973. SÍÐASTA HEKLUGOS VARÐI Í TÓLF DAGA Skal hringja í Heklu- geggjara ef gos hefst Ferðaþjónustubóndi hefur skýr fyrirmæli um að hringja í hóp útlendinga ef eldgos hefst í Heklu. Fólk við rætur fjallsins hefur ekki fundið fyrir jarðskjálftum undan- farnar vikur. Gamall bóndi, sem hefur séð fimm Heklugos, óttast fjallið ekki. Bandarísku hjónin Stephen og Giulia Hamacher, og sonur þeirra Adam, gripu andann á lofti þegar þeim var færð sú frétt að Hekla, fjallið á bak við þau, gæti hugsan- lega byrjað að gjósa hvað úr hverju. „Á hverju getum við átt von?“ spyr Giulia og fær það staðfest að engin yfirvofandi hætta sé á ferðum. „Við vorum í fyrra á Havaí undir stóru eldfjalli, svo þetta fer að verða alvanalegt fyrir okkur.“ Fjölskyldan dvelur á Íslandi í nokkra daga. „Þetta er mjög spenn- andi staður að heimsækja, þar sem við komum frá stórborg eins og New York. Við erum að leita að lítt byggðum stöðum og kynnast fólki sem býr á eldfjallaeyju. Það er eitt- hvað heillandi við sálarlíf fólks sem sættir sig við það,“ segir Giulia. Stephen játar að það myndi sannar lega gera ferðalagið eftir- minnilegt að sjá fyrstu eldhræring- arnar í Heklu í þrettán ár. „Ég er strax kominn með góða sögu fyrir vini mína heima,“ segir Adam og lítur til fjallsins sem fjöl- skyldan hafði bæði heyrt og lesið um áður en hún kom. - shá Bandarísk fjölskylda heimsækir eldfjallaeyjur til að kynnast sérstöku fólki: Havaí í fyrra, Ísland þetta árið HÓTELHALDARI Síminn byrjaði að hringja stuttu eftir tilkynningu Almannavarna. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SEFUR ENN Drottningin sýndi engin merki þess í gær að eitthvað stæði til. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM hádegi fórum við út að Rangá og þá var rétt ratljós, svo dimmt var orðið. Það var óhugnanlegt. Þá gaus hún 29. mars og fjallið heldur kannski upp á það á föstudaginn. En mér hefur aldrei verið illa við Heklu, það eru frekar jarðskjálftarnir sem gera usla. Mér er illa við þá,“ segir Sverrir. svavar@frettabladid.is ELDFJALLAEYJUR Í UPPÁHALDI Stephen, Giulia og Adam Hamacher voru grunlaus um að Hekla væri tekin að bæra á sér. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM | FRÉTTASKÝRING | 27. mars 2013 MIÐVIKUDAGUR8 HEKLA BÆRIR Á SÉR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.