Fréttablaðið - 27.03.2013, Síða 10
27. mars 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 10
Komnir í Arababandalagið
1KATAR Fulltrúar sýrlenskra stjórnarandstæðinga eru á meðal fulltrúa annarra ríkja á leiðtogafundi Arabandalagsins, sem hófst í Katar í gær. Ákvörðun
um að bjóða þeim til fundarins var tekin í framhaldi af utanríkisráðherrafundi
Arababandalagsins fyrr í vikunni. Mouaz al Katib, fyrrverandi forseti Sýrlenska
þjóðarbandalagsins, er aðalfulltrúi Sýrlands á fundinum. Hann segir þetta styrkja
stöðu sýrlensku þjóðarinnar á alþjóðavettvangi.
Sýknunin ógilt
2ÍTALÍA Áfrýjunardómstóll sakamála á Ítalíu hefur ógilt sýknun í máli hinnar bandarísku Amöndu Knox, sem
sökuð var um að hafa myrt herbergisfélaga sinn, Meredith
Kercher, árið 2007 í borginni Perugia. Knox var dæmd í 26 ára
fangelsi á Ítalíu og sat inni í nærri fjögur ár, en fór heim til
Bandaríkjanna eftir að hún var sýknuð í október 2011. Ítalir
geta ekki krafist framsals hennar. Dómstóllinn sneri einnig
við sýknu þáverandi kærasta hennar, Raffaele Sollecito.
3NORÐUR-KÓREA Her N-Kóreu sendi út tilkynningu í gær þar sem hann sagði flugskeyta- og þungavopnsdeildir sínar vera í sem allra bestu formi um þessar
mundir. Jafnframt sendu Norður-Kóreumenn frá sér myndir frá heræfingum, þar
sem vígbúnaður landsins er óspart notaður. Suður-Kóreumenn og Bandaríkjamenn
túlka þetta sem enn eina hótunina frá Norður-Kóreu, sem nýverið hótaði kjarn-
orkuárásum á Bandaríkin. Litlar líkur þykja þó á því að Norður-Kórea geri alvöru úr
hótunum sem þessum, að minnsta kosti ekki næsta mánuðinn meðan sameigin-
legar heræfingar Bandaríkjanna og Suður-Kóreu eru haldnar í næsta nágrenni.
NORDICPHOTOS/AFP
FANGELSISMÁL Leyfilegur há-
markstími fyrir fanga í ein-
angrun er mun lengri hér á landi
en tíðkast víða erlendis. Sam-
kvæmt lögum má vista fólk í
einangrunar klefum í hámark
fjórar vikur, en lengur ef brot
varðar að minnsta kosti tíu ára
fangelsis vist.
Gísli Guðjónsson réttarsál-
fræðingur segir þetta verulega
langan tíma ef miðað sé við lög í
Bretlandi, þar sem hámarkstími í
einangrun er fjórir dagar.
„Það þarf að rökstyðja svona
ákvörðun vel og huga að afleiðing-
unum. Einangrun getur haft mikil
áhrif á sálarlífið og jafnvel fram-
burð einstaklings,“ segir hann.
„Þetta er alltaf spurning um hvers
vegna hún er notuð. Það er alltaf
hægt að segja að það sé verið að
leita að gögnum, en hún er líka
notuð til að mýkja menn aðeins.“
Hann bendir á að leyfilegur
hámarkstími hér sé margfalt
lengri en í Bretlandi. „Það þarf
alltaf að hugsa hvort þetta sé
nauðsynlegt, en mér finnst þetta
mjög langt,“ segir hann.
Fram kemur í umsögn hinnar
svokölluðu Pyntinganefndar Evr-
ópuráðsins frá árinu 1999 um
aðstæður íslenskra fanga að lítil-
lega hafi dregið úr beitingu ein-
angrunarvistar síðan í síðustu
heimsókn árið 1993, en það sé
enn áhyggjuefni hversu mikið
úr ræðinu sé beitt hér á landi. Þá
mælir nefndin með því að lög-
reglu sé gert að sýna gæsluvarð-
haldsföngum skriflegan rökstuðn-
ing um hvers vegna þeir séu settir
í einangrun.
Í u m s ög n
Trúnaðarráðs
fanga á Litla-
Hrauni vegna
breytingar á
lögum um refs-
ingar árið 2004
segir að einangr-
un sé „hættuleg
andlegri og lík-
amlegri heilsu
manna og algjör-
lega árangurslaus í hegningar-
skyni. Hið eina sem af því hlýst eru
auknar þjáningar og einangrun
sem leiðir til þess að fanginn er
mun líklegri til að brjóta af sér
á nýjan leik“. Þar segir einnig að
fangar sem sæti áralangri ein-
angrun geti orðið andfélagslegir,
einrænir, bitrir, jafnvel geðveikir
og hættulegir. sunna@frettabladid.is
Íslenskir fangar eru
lengur í einangrun
Hámarkstími einangrunarvistar er mun lengri á Íslandi en víða annars staðar.
Réttarsálfræðingur segir að rökstyðja þurfi ákvörðun um langa einangrun vel og
huga að afleiðingunum. Þekkist að einangrun sé notuð til að mýkja fanga upp.
FANGELSI Réttarsálfræðingur segir einangrunarvist hafa áhrif á sálarlífið og jafn-
vel framburð. Trúnaðarráð fanga telur einangrunarvist hættulega andlegri og
líkamlegri heilsu. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
GÍSLI
GUÐJÓNSSON
Einangrunarvist getur haft marg-
þættar og alvarlegar afleiðingar.
Gísli segir að afar sterk rök þurfi að
liggja fyrir áður en einstaklingur er
settur í slíka vist.
Meðal afleiðinga eru:
● Svefntruflanir
● Rugluð hugsun
● Neikvæð áhrif á sálarlífið
og líðan
● Stress
Þá getur einangrun gert það að
verkum að fangar breyti fram-
burði sínum og segi jafnvel ósatt
til að losna úr vistinni.
Afleiðingar
einangrunarvistar
HEIMURINN
12 3