Fréttablaðið - 27.03.2013, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 27.03.2013, Blaðsíða 20
27. mars 2013 MIÐVIKUDAGUR| SKOÐUN | 20 Grein Elínar Hirst, frambjóðanda í Kraganum, í Fréttablaðinu 21. mars um mikilvægi Vatnsmýrar- flugvallar vekur furðu. Svona skrifa landsbyggðarþingmenn í kjördæmapoti eða aðilar með sér- hagsmuni í fluginu. Elín hefur greinilega ekki kynnt sér skýrslur um miðstöð innan- landsflugs, sem gerðar voru 2007 fyrir Sturlu Böðvarsson sam- gönguráðherra. Þar kemur fram að þjóðhagslega mjög arðsamt sé að flytja miðstöðina á Hólmsheiði eða á Keflavíkurflugvöll. Tvennt skyldi Elín hugleiða vilji hún starfa lýðræðislega í pólitík: A. Reykvíkingar kusu flugvöllinn burt í lýðræðislegum kosningum 2001. B. Sveitarfélög hafa skipu- lagsvaldið í lögsögu sinni. Samkvæmt Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024 fer flug- völlurinn úr Vatnsmýri 2016. Þá rís þar þétt og blönduð miðborgar- byggð. Ríkið verður að flytja mið- stöðina úr Vatnsmýri. Hvert hún fer er ríkisins og því höfuðverkur þess ef ekki má meta veðurfar á Hólmsheiði með heiðarlegum og sómasamlegum hætti. 1946 var Vatnsmýrarsvæðið tekið af Reykvíkingum með blygð- unarlausri valdbeitingu ríkisins í skugga margfalds atkvæðamis- vægis, án lóðarleigu og skaðabóta þau 67 ár sem liðin eru. Um leið og borgarbúar glötuðu kjörlendinu og yfirráðum yfir lofthelginni vestan Elliðaáa misstu þeir stjórn á fram- tíðarþróun höfuðborgarinnar. Skipulagsóreiðan í kjölfar- ið smitaðist yfir borgarmörkin til norðurs og suðurs. Þá varð til fyrsti vísir glænýs þéttbýlis í Mos- fellshreppi, Kópavogi og Garða- hreppi, sem auðveldaði síðan landsbyggðarflutninga á mölina. Þar búa nú 25% landsmanna, en hlutfall Reykvíkinga hefur hald- ist óbreytt í 67 ár, um 38%. Þjóðhagsleg arðsemi ráði för SKIPULAGSMÁL Gunnar H. Gunnarsson verkfræðingur Örn Sigurðsson arkitekt ➜ Stjórnlaus útþensla byggðar er þjóðarböl. Eina leiðin til að stöðva hana er að Reykvíkingar taki for- ystu um framtíðarþróun byggðar … Þjóðarböl Stjórnlaus útþensla byggðar er þjóð- arböl. Eina leiðin til að stöðva hana er að Reykvíkingar taki forystu um framtíðarþróun byggðar fyrir mannvænt, vistvænt og skilvirkt höfuðborgarsamfélag. Miðborgarbyggð í Vatnsmýri í stað dreifðrar úthverfabyggðar minnkar akstur um a.m.k. 20%. Árlegur aksturskostnaður lækkar þá um a.m.k. 1% eða 2 milljarða kr. fyrsta árið, 4 milljarða annað árið o.s.frv., alls um a.m.k. 400 milljarða á 20 árum. Þá fyrst skapast góð skil- yrði fyrir almannasamgöngur, nær- þjónustu, göngur og hjólreiðar. Með eðlilegri uppbyggingu Vatnsmýr- ar er virði ríkislandsins a.m.k. 70 milljarðar kr. og borgarlandsins 140 milljarðar. Ríkishluturinn nægir fyrir nýjum flugvelli, ytra vega- kerfi Vatnsmýrarbyggðar og a.m.k. þremur landsbyggðarjarðgöngum. Langstærsta hagkerfið Höfuðborgarbyggðin er með strjál- býlustu borgum heims með 14 íbúa á hektara og 700 bíla á hverja 1.000 íbúa, tvöfalt á við evrópskar borgir. Hún þekur 150 km², meira en París og Manhattan samanlagt. Höfuðborgarsamfélagið er lang- stærsta hagkerfi Íslands. Óskil- virkni þess vegna stjórnlausrar útþenslu byggðar af völdum Vatns- mýrarflugvallar gætir í þjóðarhag. Og þrátt fyrir háar þjóðartekjur á mann skilar sá árangur sér m.a. þess vegna ekki í pyngjur lands- manna. Það er sandur í gírkass- anum. Sem upprennandi stjórnmála- maður ætti Elín að einbeita sér að ábyrgri pólitík í stað þess að ganga hugsunarlaust í smiðju gömlu flug- vallarsinnanna, sem aldrei hafa þurft að færa fram rök fyrir orðum sínum, hvorki í ræðu né riti, held- ur hafa þeir beitt útúrsnúningum, ósannindum, og annarri rökleysu í krossferð fyrir einkahagsmunum en gegn almannahag. Fáðu þér áskrift | 512 5100 | stod2.is | Verslanir Vodafone | Verslanir og þjónustuver Símans 800 7000 F ÍT O N / S ÍA Dagskráin hefur sjaldan, eða aldrei, litið eins vel út. Miðvikudagarnir lofa sérstaklega góðu og það er óhætt að hlakka til að horfa í kvöld! ÚTLIT FYRIR FRÁBÆRT SJÓNVARPSKVÖLD Kalli Berndsen snýr aftur með litríkan og smekklegan þátt sem hjálpar þér að líta betur út og skemmtir þér vel í leiðinni. Í KVÖLD KL 20:30 KALLI BERNDSEN Í NÝJU LJÓSI 22:30 GIRLS Pínlega fyndnir þættir um Hönnu og vinkonur hennar sem slógu í gegn á síðustu Golden Globe hátíð. 21:00 GREY Ś ANATOMY Dramatíkin vex í hverri viku í vinsælustu þáttum Stöðvar 2. 21:45 RED WIDOW Æsispennandi þættir um konu sem leggur allt í sölurnar til að bjarga fjölskyldunni. NÝTTU ÞÉR NETFRELSI OG MISSTU EKKI AF NEINU! Með Netfrelsi Stöðvar 2 getur þú séð uppáhalds þáttinn þinn í tölvunni, snjallsímanum eða spjald- tölvunni hvar og hvenær sem er. Vertu með Stöð 2, 4 aukastöðvar og Netfrelsi fyrir 265 krónur á dag Evra tekin upp í laumi Júlíus Sólnes verkfræðingur er greindur maður með athyglis- gáfuna í lagi. Var í Tyrklandi og tók eftir að Tyrkir hafa tekið upp evru á laun án þess að spyrja kóng eða prest. Allt verð á vörum og þjónustu er auglýst í evrum þar í landi. Þegar Júlíus reyndi að borga með tyrkneskum lírum, settu menn upp svip og reiknuðu honum óhagstætt gengi. Það er sem sagt ódýrara að borga þar með evrum en lírum. Allir nota evru, auglýsa bíla og lausamuni í evrum og semja um laun sín í evrum. Þetta sama eigum við að gera hér, taka í ró og mag upp alvöru evru samhliða krónunni án þess að biðja evrugreifana leyfis. http://www.jonas.is/ Jónas Kristjánsson Framrás Framsóknar Er fylgisaukning Framsóknar- flokksins lest sem verður ekki stöðvuð? Þunginn virðist vera að aukast fremur en hitt– og það er aðeins mánuður til kosninga. Sjálfstæðisflokkurinn gæti þurft að horfast í augu við það að vera ekki stærsti flokkurinn– tvennar kosningar í röð. Það er einsdæmi. Á þeim bæ hlýtur að ríkja skelf- ingarástand– viðmiðunartalan hjá Sjálfstæðisflokknum var löngum 36 prósent, nú nálgast flokkurinn 23 prósentin sem hann var með í síðustu kosningum. http://eyjan.pressan.is Egill Helgason AF NETINU
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.