Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.03.2013, Qupperneq 28

Fréttablaðið - 27.03.2013, Qupperneq 28
Brúðkaup MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 20132 Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmaður auglýsinga: Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal. Brúðartertan og brúðarkjóllinn gegna veigamestu hlutverki í brúðkaupsveisl-unni og nú er vinsælt að gera tertur í stíl við kjólinn. Það kemur mjög skemmti- lega út og þá unnið út frá munstri í kjólnum eða blúndum sem unnar eru í sykurmassa og látnar standa út úr kökunni eins og á brúðar- kjólunum,“ upplýsir Kristín Eik Gústafsdóttir, kaupkona í versluninni Allt í köku. Kristín Eik segir gamaldags rómantík og ljósa vintage-liti vera hæstmóðins í brúðkaups- tertutískunni nú. „Að baka eigin brúð- kaupstertu er í senn raun- hæft og einfalt, ásamt því að vera töluvert ódýr- ari kostur og vekja stolt með bakaranum. Þá eru samverustundirnar yfir tertugerðinni dýrmætar og brúðkaupsterta heiman úr eldhúsi verður bæði gestum og brúðhjónunum ógleymanleg,“ segir Kristín Eik sem í upphafi þurfti að útskýra fyrir við- skiptavinum Allt í köku hvað sykurmassi til kökuskreytinga væri. „Sykurmassi er alls ekki nýr af nálinni en hann var nýjung á Íslandi þegar við opn- uðum veturinn 2010. Fyrir þann tíma var marsípan aðallega notað til tertuskreytinga eða þá í krem. Brúðartertugerð hefur því tekið miklum stakkaskiptum síðan aðgengi að sykurmassa og áhöldum til skreytinga batnaði,“ segir Kristín sem byrjaði með 300 vöru- númer en er nú með þau yfir þrjú þús- und. „Mikilvægustu hrá efnin í brúðartertuna eru ást, hamingja og gleði. Miklu skiptir að hafa gaman af kökugerð- inni því annars verður kakan ekki eins fal- leg og varla jafn bragðgóð ef búið er að bölva henni mikið á meðan hún var búin til,“ segir Kristín Eik hlæjandi. - þlg Fersk sítrónuterta í sumarbrúðkaupið 225 g ósaltað smjör 6 dl hveiti ½ tsk. lyftiduft ½ tsk. matarsódi 1 tsk. salt 1 msk. fínrifinn sítrónubörkur 3½ dl sykur 2 stór egg 3 eggjarauður 30 ml nýkreistur sítrónusafi 240 ml létt ab-mjólk Setjið hveiti, lyftiduft, matarsóda, salt og sítrónubörk í skál og hrærið saman. Þeytið saman smjör og sykur þar til blandan verður létt og ljós. Blandið eggjum og eggjarauðum saman við, einu í einu. Þeytið svo sítrónusafa saman við. Blandið þurrefnum og ab-mjólk- inni saman við. Gott er að setja helming af þurrefnum út í skálina, síðan ab-mjólk og að lokum hinn helming þurrefnanna. Smyrjið tvö kringlótt bökunarmót, 20 cm í þvermál, með smjöri og stráið hveiti yfir til þess að koma í veg fyrir að kakan festist við mótið. Hellið deiginu jafnt í bæði mótin og bakið við 180°C í 35 mínútur. Athugið að bökunar- tími er misjafn eftir ofnum. Kælið í 10 mín- útur áður en kakan er tekin úr mótinu og leggið á kæligrind. Sítrónusíróp: 1¼ dl sykur 120 ml vatn 1 sítróna í sneiðum 60 ml nýkreistur sítrónusafi Setjið sykur og vatn í pott og hitið að suðu. Leggið sítrónusneiðar í sykur- löginn og sjóðið á meðalháum hita í um 25 mínútur. Takið sítrónusneiðarnar upp úr og leggið á smjörpappír. Sítrónusneiðarnar má nota til að skreyta tertuna ef vill. Bætið sítr- ónusafa út í pottinn og sjóðið þar til blandan verður að sírópi. Stingið göt í kökubotnana með tannstöngli og smyrjið sírópi á botnana á meðan þeir eru enn volgir. Kælið botnana alveg áður en kremið er sett á og þeir settir saman. Krem: 3 stórar eggjahvítur 1½-2 dl sykur (fer eftir stærð eggjahvíta) Salt á hnífsoddi 80 ml vatn ¼ tsk. Madagascar-vanilluextrakt Setjið eggjahvítur, sykur, salt og vatn í skál og hitið yfir vatnsbaði. Stillið á meðal háan hita og hrærið í stöðugt þar til sykurinn hefur leyst upp. Hellið blönd- unni í hrærivélaskál og þeytið þar til kremið verður glansandi og stendur í toppi. Varist að þeyta kremið of mikið. Hægið á hræri- vélinni og bætið vanilluextrakt út í. Notið kremið strax. Keimur af gleði, ást og hamingju Íðilfagrar brúðkaupstertur með blúndum og blómum úr sykurmassa hafa stolið senunni í brúðkaupsveislum undanfarið enda stolt hverrar brúðar að hafa bakað og skreytt krúnudjásn veislu sinnar. Kristín Eik Gústafsdóttir segir einfalt að baka brúðkaupstertur. Kristín Eik Gústafs- dóttir í Allt í köku. Kristín Eik Gústafsdóttir á veg og vanda af brúðartertunni og bollakökunum sem hér prýða síðuna. Hún segir vinsælt í dag að bjóða eingöngu upp á fagurskreyttar bollakökur í stað hefðbundinnar brúðkaupstertu. Blómin á kökunum eru handunnin úr sykurmassa. MYNDIR/PJETUR STOFNAÐ 1987 M ál ve rk : K ar ó lín a Lá ru sd ó tt ir einstakt eitthvað alveg Ú r v a l e i n s t a k r a m á l v e r k a o g l i s t m u n a e f t i r í s l e n s k a l i s t a m e n n S k i p h o l t 5 0 a | S í m i 5 8 1 4 0 2 0 | w w w . g a l l e r i l i s t . i s VA XTALAUS
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.