Fréttablaðið - 27.03.2013, Side 30
Brúðkaup MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 20134
Birgitta og tónlistarmaðurinn og ljóð-skáldið Örvar Smárason giftu sig í Súða-víkurkirkju 11. ágúst 2007. „Þegar ég
var níu ára var ég á ferðalagi um Vestfirðina
með mömmu og pabba og við fórum að skoða
kirkjuna sem þau giftu sig í og ég hugsaði: „Ég
ætla að gifta mig hérna,“ segir Birgitta Birgis-
dóttir um ástæður þess að hún giftist í Súða-
vík. Þó um saklausan æskudraum hafi verið
að ræða á sínum tíma þá gekk hann samt eftir.
„Það var heldur ekki erfitt að fá Örvar til að
gifta sig í Súðavík enda eigum við bæði ættir
að rekja þangað.“
Heimilislegt brúðkaup
Brúðkaupið og allt í tengslum við það var mjög
heimilislegt en gestir þurftu að leggja á sig tölu-
vert ferðalag og fljúga eða keyra vestur. Vin-
konur Birgittu sáu að mestu um að skreyta
kirkjuna og félagsheimilið þar sem veislan fór
fram. Á endanum voru það þó ekki þær einar
sem skreyttu því flestallir sem mættu enduðu á
því að flétta blómakransa og skreyta kirkjuna.
„Þegar við komum svo í kirkjuna og ég sneri
mér við og leit yfir salinn frá altarinu þá gat ég
ekki annað en grátið; kirkjan var þakin allavega
löguðum blómakrönsum og blómum.“
Týndur hringur
Veislan var svo haldin í Félagsheimili Súða-
víkur þar sem dansað var fram á rauða nótt
en margir af vinum brúðhjónanna léku fyrir
dansi, enda mikið um hæfileikafólk í kringum
þau. „Vinur okkar, Númi Þorkell Thomasson,
kokkur á Snapsi, var yfirkokkur veislunnar og
margir veislugestir hjálpuðu til við að skera
og undirbúa matinn með honum daginn fyrir
brúðkaupið.“ Þannig lögðust allir á eitt, bæði
við skreytingar og matargerð.
„Þegar líða tók á brúðkaupsnóttina ákváðu
nokkrir að skella sér í sjósund, þar á meðal
Örvar.“ Í köldum sjónum í Súðavík tapaði
Örvar hringnum sem Birgitta hafði dregið
á fingur hans nokkrum klukkutímum áður.
Upphófst þá mikil leit þar sem kafað var
eftir hringnum. „Hringurinn fannst auð-
vitað ekki og ég var alveg miður mín, en í dag
þykir mér bara vænt um þennan atburð. Þykir
vænt um að vita af hringnum á þessum stað
sem á sér sögu í fjölskyldunni.“ Einhver kom
með þá uppástungu að kalla staðinn þar sem
hringurinn týndist Örvarsbaug sem Birgittu
fannst einstaklega falleg og rómantísk hug-
mynd. „Eiginlega langar mig ekkert að hring-
urinn finnist lengur þó mér hafi vissulega
brugðið í fyrstu.“
Vildu engar gjafir
Birgitta segir þau hjónin hafa stílað inn á
að brúðkaupsgjöfin frá gestum væri sú að
þeir mættu í brúðkaupið, enda töluverður
kostnaður fólginn í því að f ljúga eða keyra
vestur á firði ásamt því að kaupa gistingu. Þau
sluppu samt ekki við það að fá gjafir og segir
Birgitta að sú sem sé henni hvað kærust sé
rúmteppi sem tengdamóðir hennar saumaði.
„Það er saumað saman úr alls konar bútum;
koddaverum, blúndum og dúkum sem eiga sér
jafnvel sögu í fjölskyldunni. Það er til dæmis
koddaver með upphafsstöfum Örvars, saumað
af ömmu hans í þessu teppi.“
Gjöfult hjónaband
Rúmu ári eftir giftinguna í Súðavík eignuðust
þau Birgitta og Örvar dótturina Öldu og er
Birgitta nú ófrísk að öðru barni þeirra. „Það er
svona það sem á hug minn allan þessa dagana,
að bíða eftir barni,“ segir Birgitta en það mun
vera von á stúlku í maí. „Hjá Örvari er svo nóg
að gera en hann er að klára BA-gráðu í kvik-
myndafræði og að gefa út sína sjöttu plötu
með hljómsveitinni Múm.“ Sumarið verður því
fullt af bleyjum og barnadraumum hjá þeim
hjónum og ekki ólíklegt að þeim muni bregða
fyrir á gangi með nýfædda stúlku í barnavagni
í miðborg Reykjavíkur. - vg
Missti giftingarhringinn í
sjóinn á sjálfa brúðkaupsnóttina
Leikkonan Birgitta Birgisdóttir var aðeins níu ára þegar hún sagðist ætla að gifta sig í sömu kirkju og foreldrar hennar, sem giftu sig
í Súðavíkurkirkju. Tuttugu árum síðar stóð hún við það heit er hún giftist Örvari Smárasyni.
Birgitta og Örvar á leiðinni inn í Félagsheimilið í Súðavík í blíðskaparveðri, 11. ágúst 2007.
Einstakar brúðargjafir
Einhver stakk upp á því að kalla staðinn þar sem hringurinn týndist Örvarsbaug. MYND/PJETUR