Fréttablaðið - 27.03.2013, Qupperneq 36
Brúðkaup MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 201310
Þegar brúðurin gengur inn kirkjugólfið, eða eftir malar-stígnum, allt eftir smekk,
ættu brúðkaupsgestir að taka and-
köf af aðdáun. Flestar brúðir kjósa
að leigja sér kjóla, sumar fjárfesta í
slíkum en aðrar láta sauma á sig. Þá
er gott að hafa fallegar fyrir myndir
en slíkar var sannar lega hægt að
finna á tískusýningu Marchesa í
október síðast-
liðnum þegar
s ý n d v a r
brúðar-
kjóla línan
fyrir sum-
arið
2013.
Inn kirkjugólfið
Á brúðkaupsdaginn skartar brúðurin sínu fegursta. Hárið er fullkomið,
förðunin náttúruleg og björt en aðalmálið er þó kjóllinn.
Fyrirsætur sýna kjóla úr brúðarkjólalínu Marchesa fyrir sumarið 2013. Hvíti liturinn er að
venju undirstaðan en kjólarnir eru að öðru leyti æði ólíkir; stuttir, síðir, með ermar eða
ermalausir. Blúndum og siffoni er skemmtilega fléttað inn í línuna. NORDICPHOTOS/GETTY
LEYNIST DRAUMAKJÓLLINN
Á NETINU?
Síðustu árin hefur það færst í vöxt að konur
kaupi brúðarkjóla á netinu og hafa þó nokkrar
íslenskar brúðir gert góð brúðarkjólakaup á
eBay. Þar fást kjólar af öllum stærðum og
gerðum, notaðir sem nýir, og kosta þeir
ódýrustu í kringum tuttugu dollara
eða 2.500 íslenskar krónur. Al-
gengt verð er þó 150 dollarar eða
tæplega tuttugu þúsund krónur.
Ofan á það bætist sendingar-
gjald, tollar og virðisaukaskattur en á
heimasíðu tollstjóra, www.tollur.is, er að
finna reiknivél þar sem hægt er að reikna út
heildarkostnað.
Þótt gjöldin séu einhver er engu að síður
hæglega hægt að fá fallegan kjól á innan við
þrjátíu þúsund krónur, sem er mun ódýrara
en að kaupa, leigja eða sérsauma hér heima.
Hins vegar er erfitt að vita nákvæmlega hvort
kjóllinn passar. Þá er gott að kunna eitthvað
fyrir sér í saumaskap eða þekkja einhvern
laghentan svo hægt sé að vinda sér í að
stytta, síkka, víkka eða þrengja gerist þess
þörf.
Á íslensku síðunni brudkaup.is er
einnig töluvert um að brúðarkjólar
séu boðnir til sölu sem og skór og
aðrir fylgihlutir. Það er því ekki
úr vegi að líta þangað inn í leit
að rétta kjólnum.
Að æði mörgu er að hyggja fyrir brúðkaupið. Hér er listi yfir nokkur atriði
sem gott væri að huga að núna ef brúðkaup er fyrirhugað í sumar.
● Ákveða kirkju og panta tíma (eða panta prest og ákveða aðra stað-
setningu).
● Panta veislusal/tjald fyrir veisluna.
● Skipuleggja gistingu á brúðkaupsnóttina.
● Panta tíma á hárgreiðslustofu og snyrtistofu.
● Finna ljósmyndara.
● Ákveða veitingar.
● Búa til óskalista yfir gjafir.
● Búa til gestalista.
● Skoða brúðarkjóla eða ákveða
fatnað.
● Ákveða hvort fara eigi í brúð-
kaupsferð og þá hvert.
● Velja veislustjóra.
● Velja svaramann.
● Þeir sem vilja gera kaupmála
þurfa að ræða tímanlega við lög-
fræðing.
● Panta boðskort og senda út
tveimur til þremur mánuðum
fyrir brúðkaupsdaginn.
● Velja brúðartertu.
● Velja giftingarhringa.
Í MÖRG HORN AÐ LÍTA
Fujifilm Instax mini 8
Verð kr. 15.900.-
Skipholti 31 – ljosmyndavorur.is
Í fermingarpakkann!Í veisluna!