Fréttablaðið - 27.03.2013, Blaðsíða 61
MIÐVIKUDAGUR 27. mars 2013 | MENNING | 37
Bítillinn fyrrverandi Paul
McCartney hefur tilkynnt um
tónleikaferð um heiminn sem ber
yfirskriftina Out There!. Fyrstu
tónleikarnir verða í Varsjá í Pól-
landi 22. júní en þar hefur hann
aldrei spilað áður.
McCartney hefur einnig til-
kynnt um tónleika í Vín í Austur-
ríki 27. júní. Hann spilar einnig á
Bonnaroo-tónlistarhátíðinni sem
verður haldin í Bandaríkjunum
13. til 16. júní. Bítillinn fyrrver-
andi virðist því hvergi nærri ætla
að slaka á þrátt fyrir að verða 71
árs á árinu.
Tónleikaferð
um heiminn
Í TÓNLEIKAFERÐ Sir Paul McCartney er
hvergi nærri hættur í bransanum.
Poppstjarnan Rihanna var ekki
vinsæl meðal nemenda við Barr-
ington High School í Chicago er
hún mætti fjórum tímum of seint
á tónleika. Skólinn hafði unnið
keppni þar sem verðlaunin voru
tónleikar með söngkonunni vin-
sælu sem kenndi umferðarteppu
í borginni um seinkunina miklu.
Ekki bætti úr skák að söng-
konan var einungis á sviðinu í 15
mínútur áður en hún hvarf inn
í glæsibifreið sína aftur og ók á
brott. Nemendur við skólann létu
hafa það eftir sér að Rihanna
væri dóni og sýndi aðdáendum
sínum enga virðingu með þessari
uppákomu en tónleikarnir höfðu
verið tilhlökkunarefni í skólanum
í marga mánuði.
Fjórum tímum
of sein
OF SEIN Rihanna mætti fjórum tímum
of seint á tónleika fyrir nemendur við
Barrington High School. NORDICPHOTOS/GETTY
Sálin hans Jóns míns, sem
fagnaði 25 ára afmæli sínu
í troðfullri Vodafonehöll
um síðustu helgi, spilar á
Þjóðhátíð í Eyjum um versl-
unarmannahelgina. Einn
vinsælasti tónlistarmaður
landsins, Ásgeir Trausti,
hefur einnig verið bókaður
á hátíðina.
Þessir tveir flytjendur
bætast í hóp Stuðmanna og
Retro Stefson sem einnig
stíga á svið í Eyjum og því
ljóst að gestir hátíðarinnar
munu fá sitthvað fyrir sinn
snúð. Stuðmenn mæta til
leiks með sömu tónleika og
þeir fluttu í október í fyrra
undir yfirskriftinni Með
allt á hreinu.
Forsala miða á Þjóðhátíð
er hafin á Dalurinn.is
og er miðaverð 16.900
krónur. Fólk getur
dreift greiðslunum
vaxtalaust á fjóra
mánuði. Fullt verð
við hliðið í Eyjum
er 18.900 kr. Salan í
Herjólf fyrir Þjóðhátíð er
einnig hafin. - fb
Sálin og Ásgeir Trausti á Þjóðhátíð
25 ára gamla poppsveitin og nýstirnið bætast í hóp Stuðmanna og Retro Stefson.
SPILA Á ÞJÓÐHÁTÍÐ Sálin og Ásgeir Trausti verða á Þjóðhátíð í
Eyjum um verslunarmannahelgina.
Póstlistinn minn heldur utan um heimilisföng boðsgestanna á þægilegan
hátt þegar þú þarft að bjóða í fermingar. Þú getur líka hannað persónulegt
boðskort og sent það með skemmtilegu persónulegu frímerki sem setur
punktinn yfir i-ið.
Fyrir fjarstadda aðstandendur eru persónuleg skeyti sniðug leið til að slá
í gegn hjá fermingarbarninu með ljósmynd úr eigin myndasafni. Við mælum
sérstaklega með því að senda fermingarbörnum myndir af þeim sjálfum.
SKEYTI
www.postur.is
TIL HAMINGJU
MEÐ FERMINGUNA!
Elsku Þórdís okkar
Við sendum þér innilegar hamingjuóskir með fermingardaginn.
Megi þér farnast vel í framtíðinni. Dóri og Lauga
Opið laugard. kl. 10-14