Fréttatíminn - 29.10.2010, Side 8
1,0%
hækkun
íbúðaverðs
milli mánaðanna
september og október
Hagstofa
Íslands
Stjórnmál Frambjóðendur til StjórnlagaþingS kynntir
Hundrað síðna
kosningadoðrantur
inn á hvert heimili
Dómsmálaráðuneytið biður sveitarfélög að slaka á leynd í kosningaframkvæmd, koma upp skóla-
borðum og skilrúmum til þess að koma í veg fyrir hrikalegar biðraðir. reiknað með að það taki
hvern kjósanda 6-10 mínútur að kjósa.
þ að er at í dómsmálaráðuneytinu vegna stjórnlagaþings enda innan við mánuður þar til kosið verður til
þess. Frambjóðendur eru margir, 523, og
mikið kynningarstarf fram undan. „Fyrst
komum við kynningu á frambjóðendum á
vefinn um leið og við fáum nöfn og einkenn-
istölur frá landskjörstjórn, en við reiknum
með að það verði eftir helgina,“ segir Hjalti
Zóphóníasson, skrifstofustjóri í ráðuneyt-
inu. Þar kynna frambjóðendur sig auk pers-
ónuupplýsinga um menntun og fyrri störf.
Þá mega þeir tilgreina Facebook- eða vef-
síður sem þeir eru á.
Hjalti segir sjálft kynningarritið meira
mál en það fer inn á öll heimili landsins, um
130 þúsund. Hann reiknar með að það verði
um 100 síður að stærð, líklega í lesbókar-
broti og að um sex frambjóðendur verði
kynntir á hverri síðu. Stefnt er að því að
það verði sent út viku eða tíu dögum fyrir
kosningarnar 27. nóvember. „Reynslan er
sú að ef svona kemur of snemma er hætt við
að menn hendi því,“ segir Hjalti og bætir
því við að sýnishorn kjörseðils verði einn-
ig sent hverjum kjósanda, um 225 þúsund
talsins. „Það verða leiðbeiningar vinstra
megin um það hvernig ber að fylla seðilinn
út og hvað þarf að varast. Hægra megin eru
síðan 25 línur með 4 tölustöfum í hverri
og hver frambjóðandi fær 4 tölustafi við
sína auðkennistölu og kjósandinn greiðir
atkvæði með því að skrifa tölu þeirra sem
hann velur.
Þetta er nýtt og svolítið flókið svo við ætl-
um að auglýsa þetta betur og leggja áherslu
á að menn verði búnir að velja og merkja
inn á seðilinn heima. Síðan taki þeir hann
með sér í kjörklefann og færi tölurnar yfir
á kjörseðilinn sjálfan þannig að þetta gangi
sem greiðast fyrir sig. Annars verða þetta
hrikalegar biðraðir. Við höfum varað sveit-
arstjórnir við fyrir löngu og beðið þær að
fjölga kjörklefum. Við höfum látið reikna
út þann tíma sem það tekur fyrir hvern og
einn að kjósa og erum með þrjár útgáfur,
sex, átta og tíu mínútur eftir því hve menn
koma vel undirbúnir.
Þá höfum við beðið sveitarfélögin að
slaka á kosningaframkvæmdinni. Það
mega vera skólaborð með skilrúmum á
milli, svo sitja menn og dunda við að skrifa
enda veit enginn hvern viðkomandi er að
kjósa. Það þarf ekki að vera þessi leynd
sem er í hefðbundnum kosningum.“
Hjalti segir vinnuna vegna kosninganna
mikla og hafa verið önuga í marga staði.
„Það sem tafði okkur var m.a. kjörseðill-
inn en hann þarf að vera með þeim hætti
að auðvelt sé að lesa af honum. Samið var
við breskt fyrirtæki sem kemur hingað og
skannar seðlana og telur rafrænt.“
Hann segir að fyrst hafi verið sett í lögin
að kjörskrá ætti að vera rafræn en frá því
hafi verið fallið. Þá átti kjörseðillinn að vera
með öllum nöfnunum á, þriggja fermetra
kjörseðill, en því var breytt líka. „Við erum
því alveg að verða gráhærð á þessu,“ segir
Hjalti í léttum dúr og bætir við að menn
verði að taka örlögum sínum, koma þessu
frá eða liggja dauðir ella!
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
hjalti Zóphóníasson, skrifstofustjóri borgara-
og neytendaskrifstofu dóms- og mannrétt-
indaráðuneytisins. ráðuneytið mun senda
þykkan kosn inga doðrant inn á hvert heimili fyrir
stjórn lagaþingskosningarnar í næsta mánuði.
Ljósmynd/Hari
Við höfum
látið reikna
út þann tíma
sem það tekur
fyrir hvern og
einn að kjósa
og erum með
þrjár útgáfur,
sex, átta og
tíu mínútur ...
Árvekni gegn streitu
Björgvin Ingimarsson
sálfræðingur
Sími: 571 2681
Árangursrík aðferð gegn síþreytu, krónískum
verkjum og vefjagigt.
Helgarnámskeið 13 . - 14. nóvember
Nánari upplýsingar á www.salfraedingur.is
Frummælendur:
Árni Páll Árnason
Valgerður Bjarnadóttir
Fundarstjóri:
Ýr Gunnlaugsdóttir
Á fundinum verða stutt ávörp og góður tími gefi nn til um-
ræðna. Komið og takið þátt í lífl egum skoðanaskiptum.
Verkefnin
framundan
Opinn fundur í Samfylkingarsalnum Hamraborg 11a
Kópavogi mánudaginn 1. nóvember kl. 20.30
www.xs.isAllir velkomnir
Íbúðaverð hækkaði um 1% í október frá fyrri
mánuði. Fyrstu 10 mánuði ársins hefur íbúðaverð
sveiflast mikið samkvæmt mælingum Hagstofunn-
ar. Íbúðaverð á landinu öllu hefur lækkað um 1,7%
undanfarna 12 mánuði. Tólf mánuðina þar á undan
lækkað verðið um 8,5%. Greining Íslandsbanka
segir ljóst að verulega hafi hægt á verðlækkunum
en of snemmt sé að segja til um hvort botninum
sé náð. Frá því að íbúðaverð náði hámarki í lok árs
2007 hefur það lækkað um 13% að nafnverði og um
rúm 35% að raunvirði. Lunginn af verðlækkunum
kreppunnar er líklega kominn fram, segir Grein-
ingin og reiknar með hægfara viðsnúningi fram
undan. Það sem getur staðið í vegi fyrir áfram-
haldi hans er bakslag í efnahagsbata, óvissa vegna
skuldastöðu heimila og viðvarandi fólksfækkun. -lh
krónan tiltölulega
stöðug
verð evru á innlendum millibanka-
markaði var um 155 krónur í gær, sem
er svipað og var í byrjun mánaðar. Jafn-
framt hefur verð á dollar lítið breyst
það sem af er mánuðinum og kostar
hann nú rúmar 112 krónur. Gengis-
vísitala krónunnar, sem vegur saman
verð gjaldmiðla helstu viðskiptaþjóða
íslands gagnvart krónunni, er svipuð
og var í byrjun mánaðarins. Greining
íslandsbanka segir að sem stendur
sé ekki mikil innistæða til styrkingar
krónunnar á næstu vikum en reiknar
engu að síður með tiltölulega stöðugri
krónu það sem eftir lifir árs. -jh
Fasteignaverð þokaðist upp í október
Í samstarf við Dahl-Sørensen & Partners A/S í Danmörku veitum við viðskiptavinum
okkar víðtæka þjónustu við öflun fjárfesta og aðra M&A þjónustu á norðurlöndunum.
Investis fyrirtækjaráögjöf • Lágmúla 7 • www.investis.is
FYRIRTÆKJAEIGENDUR
Erum með fjárfesta sem vilja taka þátt í yfirtökum,
endurfjármögnun og sameiningum fyrirtækja.
Frekari upplýsingar á skrifstofu okkar
Sími 569 3100 • Stórhöfða 25 • www.eirberg.is
Slakaðu á heima
• Sjálfvirkt og stillanlegt nudd
• Djúpslökun með infrarauðum hita
• Stillanlegt Shiatsu herða- og baknudd
Úrval nuddsæta - verð frá 23.750 kr.
Verið velkomin í verslun okkar
prófið og sannfærist!
Skráning er í fullum gangi.
Upplýsingar á heimasíðu félagsins:
www.sidmennt.is og í símum
567 7752, 557 3734 eða 553 0877.
Skráning í sömu símum eða á eyðublaði
á heimasíðunni. Boðið verður upp á
helgarnámskeið, ætlað landsbyggðarfólki.
Það er dýrmætt fyrir unglinga að eiga val
BORGARALEG FERMING 2010
HELGARBLAÐ
Þú getur nálgast
Fréttatímann frítt á
þjónustustöðvum
N1 um land allt
8 fréttir helgin 29.-31. október 2010