Fréttatíminn - 29.10.2010, Page 22

Fréttatíminn - 29.10.2010, Page 22
É g var kallaður dr. Evil og Svarthöfði af bankamönnum. Ég var svona leið- inlegi gaurinn í partíinu sem hringir á lögguna þegar allt er á fullu,“ segir Heiðar Már Guðjónsson um viðtökur við þeim spádómum hans árin 2005 og 2006 að íslenska bankakerfið stæði á brauðfótum vegna lélegs gjaldeyris og of mikilla erlendra lána. „Það hlustaði enginn. Ég talaði um að krónan væri of hátt skrifuð, bankarnir væru komnir fram úr sjálfum sér með alltof mikið af lánum, sérstak- lega erlendum, og það kæmi að því að leiðrétting ætti sér stað. Ég ráðlagði til að mynda Sigur- jóni Þ. Árnasyni, bankastjóra Landsbankans, að draga saman seglin en hann, eins og aðrir, lét það eins og vind um eyru þjóta. Menn gerðu akk- úrat öfugt við það sem ég sagði. Á næstu tveimur árum á eftir tvöfaldaðist bankakerfið að stærð og afganginn þekkja allir. Það er ekkert gaman að vera svartsýnn því það er „lose/lose-staða“. Ef maður hefur rétt fyrir sér gerast slæmir hlutir en ef maður hefur rangt fyrir sér er maður kjáni,“ segir Heiðar Már og bætir við að krónan sé full- komlega galinn gjaldmiðill. „Það væri farsælla að taka upp sígarettur ein- hliða sem gjaldmiðil, svona svipað og er í fang- elsunum. Þær eru í það minnsta gjaldgengar á alþjóðlegum mörkuðum, ólíkt krónunni sem eng- inn vill eiga viðskipti með,“ segir Hreiðar Már. Felldi aldrei krónuna Hann hefur verið sakaður um það í DV að hafa fellt krónuna með skortstöðutökum gegn henni fyrir sjálfan sig og félög tengd Björgólfi Thor Björgólfssyni. Hann segir þær ásakanir raka- lausan þvætting. „Ég hef sagt það áður og segi það aftur. Ég tók aldrei þátt í því að fella krónuna. Þessir tölvupóst- ar og minnisblöð, sem vitnað hefur verið til í fjöl- miðlum, snúast á engan hátt um að fella krónuna. Novator, félagið sem ég vann fyrir, átti eignir á Ís- landi fyrir hundruð milljarða og það sem ég lagði til voru í fyrsta lagi eðlilegar gengisvarnir fyrir Novator fyrir um tíu prósent af verðmæti eigna- safnsins og síðan varnir fyrir Landsbankann sem voru eðlilegur hlutur í bankastarfsemi. Að taka skortstöðu í fyrirtækjum, sem bankar eru með mikil útlán á, hefur tíðkast í alþjóðlegu banka- umhverfi lengi og snýst um að takmarka eigin áhættu en ekki að græða,“ segir Heiðar Már og vísar til minnisblaðs sem birt hefur verið bæði í DV og á Stöð 2. Minnisblaðið lagði hann fyrir tvo bankaráðsmenn í Landsbankanum, þá Þór Krist- jánsson og Björgólf Guðmundsson. Fram kom í DV á miðvikudag að einn bankaráðsmanna, Þor- geir Baldursson, hefði ekki séð minnisblaðið og stangast það á við yfirlýsingu Heiðars Más um að minnisblaðið hafi verið lagt fyrir bankaráðið. „Ég lagði þetta fyrir tvo bankaráðsmenn og veit til þess að nokkrir starfsmenn Landsbankans sáu það. Ef bankaráðsmennirnir hafa hins vegar ekki lagt það fyrir bankaráðið þá er það mjög skrýtið. Ég er þess fullviss að það hefði hjálpað bankan- um mikið,“ segir Heiðar Már um minnisblaðið en þar kemur meðal annars fram að bankinn ætti að taka skortstöðu í bréfum félaga eins og FL Group og Dagsbrúnar til að minnka áhættuna af háum útlánum til félaganna. Í mál við DV á alþjóðlegum vettvangi Heiðar Már hefur lýst því yfir að hann ætli í meiðyrðamál við DV vegna umfjöllunar blaðsins um árásir hans á krónuna. „Ég ætla að leita réttar míns í þessu máli – það er ljóst. Margir sögðu mér að láta kyrrt liggja og láta þetta ganga yfir en mér finnst brotið á mér. Ég vil ekki sitja undir því að vera kallaður landráðamaður vegna lyga í DV. Ég mun sækja málið af hörku og skoða meðal annars hvort hægt sé að stefna blaðinu og blaðamönnum í Bretlandi, Bandaríkjunum og Sviss þar sem ég vinn. Bloomberg-fréttaveitan tók þessa frétt upp og hún var skaðleg fyrir mig í hinu alþjóðlega viðskiptaumhverfi. Ég ætla því að skoða hvar ég get stefnt í þessu máli,“ segir Heiðar Már. Helmingi hærra tilboð í Sjóvá Heiðar Már og viðskiptafélagar hans gerðu tilboð í tryggingafélagið Sjóvá og bíða eftir svari. Hann staðfestir að það eina sem vanti sé undirskrift Más Guðmundssonar seðlabankastjóra og segist ekki vita hverju sæti. „Ég treysti því að Már sé fagmannlegur. Við vitum að tilboðið okkar er sanngjarnt því það var helmingi hærra en næst- hæsta tilboðið,“ segir Heiðar Már. Aðspurður vill hann ekki gefa upp hvað tilboðið hljóðar upp á. „Það er trúnaðarmál.“ Heiðar Már er í félagi við Ágúst Valfells, hluta af Sjóla-genginu og lífeyrissjóðina með tilboðið í Sjóvá. Hann segir alla koma með eigið fé inn í tilboðið. „Það verður ekkert lánsfé heldur koma aðilar með peninga. Ég hef sjálfur aldrei tekið lán á ævinni og ætla ekki að fara að gera það núna. Við höfum mikla trú á félaginu, teljum það traust og gott og með mikinn vaxtarbrodd. Við viljum hlúa að viðskiptavinum okkar og bjóða upp á lausnir sem veita þeim öryggi. Við viljum fjölga tryggingamöguleikum einstaklinga þannig að þeir geti horft fram á áhyggjulaust ævikvöld,“ segir Heiðar Már. Aðspurður hvort hann hyggist setjast sjálfur í forstjórastól Sjóvár, verði tilboð- inu tekið, hristir hann hausinn. „Ég má bara ekki segja neitt. Þetta er allt trúnaðarmál,“ segir hann sposkur á svip. Eftirlitsstofnun EFTA skoðar nú hvort íslenska ríkið hafi gerst brotlegt við lög þegar það endur- fjármagnaði Sjóvá í fyrra. Heiðar Már segir að kaupendahópurinn sé að einhverju leyti tryggður fyrir því ef í ljós kemur að íslenska ríkið hafi brot- ið lög en þó ekki öllu. „Við munum finna fyrir því en það er ekkert sem heldur fyrir okkur vöku,“ segir Heiðar Már. Framtíð Íslands er björt Þegar talið berst að framtíð Íslands fer Heiðar Már allur á flug. „Í bókinni The World in 2050, sem kemur út núna í nóvember, heldur prófessor- inn Lawrence Smith því fram að hnattræn hlýnun – sem á sér stað í dag án þess að hann geti skýrt það – að Norðurskautslöndin Ísland, Grænland, Noregur og Kanada muni græða mest. Það bendi allt til þess að lífskjör muni batna þar. Ástæðuna telur hann vera þríþætta. Í fyrsta lagi mun vanta vatn þegar hlýnar og þessi lönd eiga öll nóg af vatni. Í öðru lagi mun fólk færa sig norðar þegar hlýnar og öll þessi lönd eiga endalaust af jarð- næði. Í þriðja lagi þarf meiri orku þegar hlýnar eins og til dæmis fyrir loftræstingu og öll þessi lönd eiga nóg af orku,“ segir Heiðar Már með glampa í augunum. „Ef ég set þetta upp ótrúlega abstrakt þá er það þrennt sem fólk mun þurfa í framtíðinni: Í fyrsta lagi vatn, og Ísland á nóg af því. Í öðru lagi er það orka fyrir fólk, og þá helst prótein í fiski sem er mesta úrvalsorka sem mannskepnan getur í sig látið, miklu betra en kolvetni. Í þriðja lagi er það síðan orka fyrir tæki og vélar og Ísland á enda- laust af þeirri orku, er ein stór orkustöð. Staða Íslands, úti í hafi, með nóg af æti, vatn og háhita, er því öfundsverð. Það þarf hins vegar að breyta hugarfarinu hérna og komast upp úr hjólförum fortíðarinnar. Það þarf að horfa til þessarar framtíðar og endurbyggja Ísland með bjartsýnu hugarfari. Ef við horfum alltaf í baksýnisspegil- inn búum við til aumingjasamfélag sem enginn vill búa í,“ segir Heiðar Már. Kallaður dr. Evil og Svarthöfði af bankamönnum Það væri far- sælla að taka upp sígar- ettur einhliða sem gjald- miðil, svona svipað og er í fangelsunum. Þær eru í það minnsta gjaldgengar á alþjóð- legum mörk- uðum, ólíkt krónunni sem enginn vill eiga viðskipti með. Heiðar Már Guðjónsson er umdeildur. Fæstir vissu hver hann var áður en hann var bendlaður við árás á krónuna. Ljósmynd/Hari Hagfræðingurinn Heiðar Már Guðjónsson er um- deildur maður. Honum hefur verið gefið að sök að hafa fellt krónuna og verið kallaður landráða- maður fyrir vikið. Heiðar Már, sem var náinn sam- starfsmaður Björgólfs Thors Björgólfssonar, vill kaupa Sjóvá í félagi við aðra fjárfesta og bíður eftir lokasvari við tilboði sínu. Hann segist sjálfur vera áhættufælinn maður sem hafi aldrei tekið lán á ævinni og eyddi drjúgum hluta tíma síns undanfarin ár í að vara banka- og ráðamenn landsins við hættunni sem að steðjaði. Óskar Hrafn Þorvaldsson ræddi við Heiðar Má. Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@ frettatiminn.is 22 viðtal Helgin 29.-31. október 2010

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.