Fréttatíminn - 29.10.2010, Síða 51

Fréttatíminn - 29.10.2010, Síða 51
Chloe Sevigny er pínu pæja Elísabet Steinarsdóttir Innblásturinn af tísku fæ ég frá flestöllu í kringum mig, vinum og því sem maður sér daglega. Ég myndi kannski ekki segja að ég ætti mér fyrirmynd í tísku en mér finnst Chloe Sevigny alltaf pínu pæja. Ég sæki mest í flóamarkaði þar sem alltaf er hægt að gramsa eftir einhverju flottu. Annars eru Spúútnik, Nostalgía, Kolaportið, Kronkron og Rauðakross-búðin þær búðir sem ég versla mest í hérna heima. tíska 51 Helgin 29.-31. október 2010 Sonja Bent með svölustu fötin Unnar Helgi Daníelsson Ef ég á peninga þá eyði ég þeim meira og minna í föt. Elska að kaupa föt, allt sem mér finnst flott. Sonja Bent er klárlega með svölustu strákafötin hérna á Íslandi. Án efa. Svo versla ég mikið í Kronkron og All Saints hérna heima. Annars kaupi ég fötin mín mest úti í London eða Kaupmannahöfn. Flóamarkaðirnir í Köben eru uppáhalds. Richard Ashcroft er einn svalasti gaur sem ég veit um. Alltaf í nettum fötum og tónlist- in hans er snilld. Sarah Mower, tískublaðamaður hjá enska dagblaðinu Daily Telegraph, segir að rauður sé litur haustsins hjá hinum tísku- meðvituðu. „Við höfum öll nú þegar fengið of stór- an skammt af hlutlausum tónum svo að litasveltar sjónhimnur okkar dragast ósjálfrátt að einhverju af allt öðrum toga,“ segir Sarah í grein í blaðinu sínu í gær. Hún bendir á að hönnuðir á borð við Givenchy og Maison Martin Margiela hafi sýnt klæðnað í rauðu frá toppi til táar á síðustu sýningum sínum. Rauður alklæðnaður er kannski ekki algeng sjón en rauðir skór, fylgihlutir og jafnvel eldrauðar buxur prýða nú fólk sem er ekki vant að láta sjá sig í öðrum litum en svörtu, gráu, bláu eða hvítu. Sarah segir að þetta sé vísir að því sem koma skal næsta sumar, þegar litadýrðin verður enn meiri. Rauður HELGARBLAÐ Sími 531 3300

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.