Fréttatíminn - 29.10.2010, Page 52
52 tíska Helgin 29.-31. október 2010
Frumkvöðlar
tískunnar
Við sækjum mikinn innblástur í stíl þeirra frægu
og þau eru miklir fulltrúar tískunnar. Oftar en ekki
ráða þau sér stílista sem hjálpa þeim að sjá um
fatnað þeirra og stíl. En til eru þær stjörnur sem
hafa mikla tískuvitund og sjá um fatnaðinn sjálfar,
jafnvel hanna sínar eigin fatalínur.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur breska leikkonan Sienna
Miller náð langt í lífinu. Leiklistarferill hennar er orðinn
langur og mikill og hún er talin vera ein skærasta stjarna
Bretlands. En þrátt fyrir rísandi frægð og frama í leik-
listinni hefur hún einnig skapað sér stórt nafn innan
tískunnar. Árlega eru best klæddu konur heims settar
saman á einn lista hjá flottustu tímaritum heims og er
Sienna ein af þeim sem aldrei detta út af þeim lista. Hún
er algjörlega meðvituð um sína tískuvitund og árið 2006
var hún beðin að hanna fatalínu fyrir tískumerkið Pape
Jeans. Í framhaldi af því ákváðu hún og systir hennar
Savanah að stofna sitt eigið tískumerki, Twenty8Twelve.
Ofurmódelið Erin Wasson var á fimmtánda ári þegar
pabbi hennar sendi hana í fyrirsætukeppnir út um öll
Bandaríkin. Síðan þá hefur hún unnið hörðum höndum
og í dag er hún eitt flottasta og virtasta módel í heimi.
Hún hefur starfað með mörgum stærstu tískufram-
leiðendum í heimi, birst á óteljandi forsíðum hjá flottustu
tímaritum heims og unnið með bestu ljósmyndurum sem
fyrirfinnast. Hún hefur unnið í tískubransanum í mörg
ár og þekkir vart nokkuð annað. Hún hefur skapað sinn
eigin stíl, rokkaralegan og töff og árið 2008 var hún
beðin að hanna skartgripa- og fatalínu fyrir tískumerkið
RVCA sem hefur gengið mjög vel.
Fyrir nokkrum árum var
Nicole Richie ein af þeim
stjörnum sem þótti minnst til
koma. Hún var þekktust fyrir
að vera dóttir söngvarans
Lionel Richie, partíljón
mikið og besta vinkona hótel-
erfingjans Paris Hilton. Það
var árið 2006, þegar Nicole
kynntist stílistanum Rachel
Zoe, sem breytti lífi hennar.
Nicole tók sig saman, hætti
öllu partístandi, eignaðist
sitt fyrsta barn og stofnaði
hjálparsamtök fyrir fátæk ríki
í Afríku. Einnig skildi hún við
gamla fataskápinn sinn, tók
upp sinn persónulega stíl sem
ber mikinn keim af hippa-
tímabilinu og er nú talin vera
ein af mestu frumkvöðlum
tískunnar í Hollywood. Nicole
hefur nýlega komið á fram-
færi fatalínunni Winter Kate
þar sem hægt er að nálgast
hennar stíl og hönnun.
Fyrrverandi Kryddpían Victoria
Beckham er þekkt fyrir að vera
eiginkona fótboltamannsins
Davids Beckham, en þekktust
er hún þó fyrir sitt flotta auga
fyrir tískunni. Hún hefur risið
æ hærra með árunum og er
óhrædd við að feta ótroðnar
slóðir í fatavali, uppgötvar
nýja hönnuði og klæðist þeirra
flíkum og sjálf hannar hún föt,
sólgleraugu og aukahluti fyrir
fatalínu sína sem ber sama nafn
og hún. Victoria var minnst
áberandi í stúlknahljómsveitinni
Spice Girls, en er heldur betur
sú sem hefur skarað fram úr og
tekist að láta nafn sitt lifa lengst.
Lín Design Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is
Er von á barni?
Glaðleg íslensk hönnun
fyrir börnin
Verð 3.900 kr. fyrir félagsmenn ÍMARK
Verð 4.900 kr. fyrir aðra
Skráning á imark@imark.is
íslensku markaðs-
Verðlaunin 2010
Fimmtudaginn 4. nóvember kl. 12 - 13.30
verða markaðsverðlaun íMARK afhent á
Hilton Reykjavík Nordica.
Veitt eru tvenn verðlaun, markaðsfyrirtæki ársins og
markaðsmaður ársins. Í ár eru eftirfarandi fyrirtæki
tilnefnd sem markaðsfyrirtæki ársins:
- Borgarleikhúsið
- icelandair
- Vínbúðin
Forseti Íslands afhendir verðlaun fyrir markaðs-
fyrirtæki ársins
Björn Víglundsson tilkynnir val dómnefndar
á markaðsmanni ársins
Liv Bergþórsdóttir, framkvæmdastjóri NOVA
flytur ávarp
Áki Sveinsson, stjórnarmaður ÍMARK er fundarstjóri