Fréttatíminn - 29.10.2010, Qupperneq 55
tíska 55Helgin 29.-31. október 2010
Klassískur innblástur og ný viðmið
Þrátt fyrir þá fjármálakreppu sem ríkt hefur í heiminum er tískan engu að síður spenn-
andi og áberandi í ár. Klassískur innblástur og ný viðmið einkenna tískustraumana og
hönnuðir keppast við að vinna hug og hjörtu okkar tískuunnenda.
Gegnsæ föt hafa verið áberandi alveg
frá ársbyrjun. Alls konar flíkur – al-
gegnsæjar skyrtur, leggings og kjólar
með gegnsæjum ermum – eru mjög
vinsælar og flottar. En fötin öskra á
athygli og klæða kannski ekki alla.
Blazer-jakkar hafa lengi verið vinsælir hér á landi
en nú er tískan aðeins farin að breyta stefnunni og
stærri og víðari jakkar koma sterkir inn í ár, svokall-
aðir kærastajakkar eða boyfriends blazers á ensku.
Þá er tímabært að setja litlu, þröngu jakkana upp í
skáp og fjárfesta í öðrum þægilegri.
Samfestingar eru mest
áberandi nú í haust. Allt
frá glamúr-samfestingum
með skrauti og böndum
yfir í þægilega skrifstofu-
og hippasamfestinga með
litríku blómunum. Frægir
hönnuðir á borð við Stellu
McCartney og Roberto
Cavalli eru brautryðjendur
í þessu tískutrendi og
hanna alls konar týpur af
samfestingum.
Síðastliðin ár hafa hnéhá
stígvél verið mjög áberandi
en nú hafa hnésokkarnir tekið
við. Skærir litir eða jarðlitir,
þykkir eða þunnir; skiptir
ekki máli. Þeir eru allir flottir.
Sokkarnir eru dregnir hátt
upp fyrir hné, yfir leggings,
sokkabuxur eða bera leggina.
Mannasiðir og stíll
Bandaríska tímaritið GQ heldur úti líf-
legri heimasíðu á gq.com. Ein helsta
stjarna síðunnar og tímaritsins er „the
Style Guy“ sem lesendur geta leitað til
með hin ýmsu mál til úrlausnar, hvort
sem þau snúa að stíl, klæðaburði eða
almennum mannasiðum. Sá sem situr
fyrir svörum heitir
Glenn O´Brien,
gamall refur úr
fjölmiðla- og listalífi
New York. Hann var
í gengi Andy Warhol á Factory-árunum,
skrifaði fyrir Interview og hefur um árabil
verið fastur penni hjá GQ. Hér er eitt
dæmi úr stórum bunka skemmtilegra
ráðlegginga hans:
Ég er ungur maður í viðskipta-
lífinu, sterklega af guði gerður. Á
föstudögum sleppum við vinnu-
félagarnir því oftast að mæta
með bindi og erum frjálslegar
klæddir en aðra daga. Ég er ansi
loðinn á bringunni og hef satt að
segja gaman af að sýna það við
þessi tækifæri, hvort sem ég er
í skyrtu eða pólóbol. Ég losa um
efstu töluna (í mesta lagi tvær
efstu) sem er meira en nóg til að
sýna smá af loðfeldinum. Sumt
af samstarfsfólki mínu hefur
kvartað. Er þetta of langt gengið
hjá mér?”
Herra minn, þú ert þróunarsögulegt
afturhvarf. Ég legg til að þú hafir hneppt
upp í háls fram á laugardaga, en þá getur
þú farið að apabúrinu í dýragarðinum
og hneppt eins langt niður og verðirnir
leyfa. Ef þetta land (Bandaríkin) verður
örlítið kærugjarnara en það er nú þegar,
gætir þú endað handan rimlanna.
„
DAUÐANS ALVARA
FYRIRGEFNING EFTIR LILJU SIGURÐARDÓTTIR
Ungur maður er fenginn til þess að skrifa viðtalsbók við fólk sem lifað hefur af ofbeldi eða
hörmungar af annarra völdum. Hann sökkvir sér niður í viðfangsefnið og fyrr en varir er hann
flæktur í rannsókn á dularfullum dauðsföllum sem er eins og tengist á óvæntan hátt.
Spor, fyrsta bók Lilju, hefur nú verið seld til Þýskalands.
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
Bræðraborgarstígur 9
„vel byggð o
g
metnaðarfu
ll“ (Mbl.) –
„spennandi
saga sem
gengur upp“
(Fbl.)
um Spor
BEINT Í
6. SÆTIMETSÖLULISTA EYMUNDSSON