Fréttatíminn - 29.10.2010, Page 66
Ævintýraleg
samsetning
Rihanna fer ekki troðnar
slóðir þegar hún velur
sér föt. Appelsínubleikar
æfingabuxur, fjólublá
prjónuð naflapeysa og gylltir
skór, hljóma sannarlega ekki
vel á prenti, en söngkonunni
tekst hins vegar á einhvern
ótrúlegan hátt að láta
þessa samsetningu ganga
upp. Kannski er það rauða
hárið sem saumar þetta allt
saman? Rihanna er í New
York þessa dagana að taka
upp tónlistarmyndband við
væntanlega smáskífu með
laginu What’s My Name. Ljós-
mynd/Getty
Dagskrá
Föstudag 5. nóvember
20:00 – 22:00 Setning og móttaka
Laugardag 6. nóvember
9:00 – 12:00 Yfirlit
Dorothee Kirch, stjórnandi Kynningarmiðstöðvar
íslenskrar myndlistar.
Marita Muukkonen, sýningarstjóri, Finnlandi.
Anette Østerby, stjórnandi The Danish Arts
Agency’s Visual Arts Centre, Danmörku.
Cecilia Widenheim, stjórnandi Swedish Arts
Grants Committee’s International Program (Iaspis),
Svíþjóð.
Marianne Zamecznik, sýningarstjóri, Noregi.
Stjórnandi: Karlotta Blöndal, listamaður, Íslandi.
13:30 – 16:30 Norræn samvinna
Jonas Ekeberg, ritstjóri Kunstkritikk, Noregi.
Bergljót Jónsdóttir, stjórnandi Nordic Culture
Point, Finnlandi.
Umræðum stjórnar Ólafur Sveinn Gíslason,
listamaður.
Sunnudag 7. nóvember
9:00 – 12:00 Ólíkir fletir í norrænni myndlist
Maria Lind, sýningarstjóri, Svíþjóð.
Judith Schwarzbart, sýningarstjóri, Danmörku.
Aura Seikkula, sýningarstjóri og fræðimaður,
Finnlandi.
Markús Þór Andrésson, sýningarstjóri, Íslandi.
Solveig Øvstebo, stjórnandi Bergen Kusthall,
Noregi.
Umræðum stjórnar Hanna Styrmisdóttir,
sýningarstjóri, Íslandi.
14:00 – 16:00 Óhefðbundin rými, óhefðbundin
í hvaða skilningi?
Henriette Bretton-Meyer, stjórnandi
Overgaden Institute of Contemporary Art
Copenhagen, Danmörku.
Birta Guðjónsdóttir, stjórnandi
Nýlistasafnsins, Íslandi.
Mats Stjernstedt, stjórnandi Index-The Swedish
Contemporary Art Foundation, Svíþjóð.
Umræðum stjórnar Jón Proppé, sýningarstjóri og
listheimspekingur, Íslandi.
16:15 – 17:30 Lokahóf í Kling & Bang
Málþing um samtímalist
á Norður löndum
Listasafn
Reykjavíkur
Hafnarhús
Alternative
North
5.– 7.
nóvember
2010
Málþingið er ókeypis og opið öllum en nauðsynlegt
er að skrá sig fyrir fram. Þátttakendum gefst kostur
á hádegisverðar tilboði á Súpu barnum í Hafnar-
húsinu.
Fyrir skráningu og nánari upplýsingar hafið samband
við Sirru Sigurðardóttur. Netfang:
sirra.sigurdardottir@reykjavik.is, sími 590-1200.
Virtir safnstjórar, listgagnrýnendur, sýningar-
stjórar og fagfólk frá Norðurlöndum beina sjónum
að nýjum straumum í myndlist, gagnrýnni umræðu
og sýningarýmum fyrir tilraunalist á málþingi
Listasafns Reykjavíkur helgina 5.-7. nóvember.
Málþingið fer fram á ensku.
66 dægurmál Helgin 29.-31. október 2010
Stonesdóttir og fyrir-
sæta eins og mamma
Hún er af aristókratískum rokkættum en er
sjálf vinsæll plötusnúður og fyrirsæta. Alex-
andra Richards er dóttir gamla slarkarans og
gítarleikarans Keith Richards og eiginkonu
hans, leikkonunnar Patti Hansen, sem var eft-
irsótt fyrirsæta á sínum tíma. Alexandra er 24
ára og hefur verið að klífa upp stjörnustigann
undanfarin ár. Systir hennar Theodora er ári
eldri og starfar líka sem fyrirsæta. Á síðunni
stylecaster.com er glænýr myndaþáttur og við-
tal við Alexöndru.
Lady GaGa
á latex-naríum í Ósló
Poppdrottningin og furðufuglinn Lady GaGa gerði allt
vitlaust í Spectrum-höllinni í Ósló á dögunum þegar hún
hélt þar tónleika fyrir troðfullri höll. Tónleikarnir eru hluti
af Monsters Ball-tónleikaröðinni sem hefur staðið yfir allt
þetta ár. Lady GaGa kom fram í brjóstahaldara og latex-narí-
um með gula hárkolla og gaf sig alla í verkið eins og mynd-
irnar bera með sér. Hún vinnur að gerð nýrrar plötu sem
ber heitið Born This Way og greindi tónleikagestum frá því
að hún gæti varla beðið eftir því að leyfa aðdáendum sínum
að heyra nýja efnið. Margir hafa furðað sig á dugnaði stúlk-
unnar sem semur lög á sama tíma og hún er á tónleikaferða-
lagi en á því er einföld skýring að hennar mati. „Ég get ekki
látið aðdáendur mína bíða lengi eftir nýrri plötu. Ég verð að
halda þeim hamingjusömum. Ég fæ mikinn innblástur þegar
ég er á sviðinu og dett svo í það með flösku af Jameson,“
sagði Lady GaGa við tónleikagesti í Ósló.