Fréttatíminn


Fréttatíminn - 04.11.2011, Blaðsíða 4

Fréttatíminn - 04.11.2011, Blaðsíða 4
Sápa og varnarkrem til daglegrar umhirðu á kynfæraSvæðinu eftir breytingaSkeið ekki nota hvað Sem er... Fæst í apótekum, Fjarðarkaup og Hagkaup Vill rjúpnavængi til rannsóknar Michelsen_255x50_A_0811.indd 1 04.08.11 15:46 Þ að er rétt. Haldinn verður sátta­fundur milli Wikileaks og Visa 9. nóvember næstkomandi að frumkvæði sendiráðs Íslands í London. Fundurinn verður haldinn í sendiráðinu – á hlutlausum stað,“ segir Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður Wikileaks, um stöðuna á deilum Wiki­ leaks við kortarisana Visa og Master­ card sem spruttu í kjölfar ákvörðunar kortafyrirtækjanna um að loka fyrir möguleika korthafa að styrkja Wiki­ leaks þann 7. desember á síðasta ári. „Við rennum blint í sjóinn með þennan fund en aðilar ætla væntanlega að þreifa hvor á öðrum og sjá hvort flötur sé á að leysa þetta mál án aðkomu dóm­ stóla,“ segir Sveinn Andri. Sveinn Andri segir að Wikileaks og Datacell, sem hýsir vefsvæði Wikileaks og telur sig einnig fórnarlamb aðgerða kortarisanna, hafi lagt inn kæru til framkvæmdastjórnar Evrópusam­ bandsins vegna ætlaðra samkeppnis­ lagabrota Visa og Mastercard í júlí á þessu ári. Síðan hafi málið verið í farvegi. „Menn fá tíma til andsvara en reglan er að stjórnin hafi fjóra mánuði til að ákveða hvort hún heldur áfram með málið. Sá tími er að renna út en mér sýnist á öllu að vegna umfangs málsins muni hún taka sér lengri tíma til að ákveða næstu skref,“ segir Sveinn Andri. Aðspurður um ætlaðan skaða Wikileaks og DataCell vegna aðgerða kortarisanna segir Sveinn Andri að upphæðirnar hlaupi á milljörðum. „Þeg­ ar fyrirtækin ákváðu að skrúfa fyrir Wikileaks voru styrktargreiðslur á dag komnar upp í 130 þúsund evrur eða um 20 milljónir króna og fóru vaxandi. Miðað við að lokað hefur verið fyrir greiðslur í rúma 330 daga er upphæðin að minnsta kosti komin í 6,8 milljarða íslenskra króna,“ segir Sveinn Andri. Lögmaðurinn segir ákvarðanir kortafyritækjanna gerræðislegar og lykta af ótta við Bandaríkjastjórn en skrúfað var fyrir greiðslur á sama tíma og Wikileaks birti viðkvæmar upp­ lýsingar um stjórnkerfið í Bandaríkj­ unum – svokallaða sendiráðspósta. „Þeir halda því fram að það hafi skaðað vörumerkið að fólk væri að styrkja Wikileaks með Visa­korti. Styrkja má Ku Klux Klan með Visakorti sem og Sea Shepard en ég veit ekki betur en að Paul Watson, forsprakki þeirra sam­ taka, sé eftirlýstur glæpamaður,“ segir Sveinn Andri og gefur lítið fyrir þá röksemd. Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettatiminn.is Bakkavör stærst Bakkavör Group var stærsta fyrirtæki landsins í lok síðasta árs, miðað við veltu, að því er fram kemur í samantekt Frjálsrar verslunar yfir þrjúhundruð stærstu fyrir- tækin. Þrjú stærstu voru þau sömu og í fyrra og árið áður. Actavis er númer tvö og Icelandic Group í þriðja sæti. Velta Bakka­ varar Group var rúmlega 293 milljarðar, Actavis 273 milljarðar og Icelandic Group 153 milljarðar. Alcoa Fjarðaál hækkar sig úr 12. sæti í það 7. og jókst velta fyrir- tækisins um 27 prósent milli ára. Nokkur fyrirtæki á listanum hafa aukið veltu sína töluvert. Skýrr hækkar úr 125 sæti í 31 sæti og nær áttfaldar veltu milli ára, meðal annars vegna sameiningar fyrirtækisins og EJS. Starfsmenn Bakkavarar Group eru rúmlega 18.000 en 10.600 hjá Actavis­ jh Hagar í Kauphöllina Stjórn verslunarfyrirtækisins Haga hf. hefur óskað eftir því að hlutir í félaginu verði teknir til viðskipta á aðalmarkaði Kauphallarinar, Nasdaq OMX Iceland. Innan vébanda Haga eru fjölmargar stórversl- anir, meðal annarra Hagkaup, Bónus, Debenhams, Zara og Útilíf, auk dreifingar- fyrirtækisins Aðfanga. Stefnt er að því að viðskipti með hluti í Högum hefjist í Kauphöllinni í næsta mánuði, í kjölfar almenns hlutafjárútboðs. Dótturfélag Arion banka, Eignabjarg, stefnir að því að selja 20 til 30 prósenta hlut í Högum með almennu útboði, sem er beint að fagfjárfestum og almennum fjárfestum. Lágmarksáskrift verður 100 þúsund krónur en hámarksár- skrift er 500 milljónir króna. Áætlað er að sölutímabilið verði 5. til 8. desember. ­jh Miðað við að lokað hefur verið fyrir greiðslur í rúma 330 daga er upp- hæðin að minnsta kosti komin í 6,8 milljarða ís- lenskra króna.  Deilur Wikileaks og Visa Sendiráð í London hýsir sáttafund Sáttafundur verður haldinn að frumkvæði sendiráðs Íslands í London milli Wikileaks og kortarisans Visa í næstu viku. Wikileaks hefur kært Visa til framkvæmdastjórnar Evrópusam- bandsins vegna samkeppnisbrota og krefst milljarða í skaðabætur. Kristinn Hrafnsson er einn af æðstu mönnum Wikileaks. Sveinn Andri Sveinsson er lögmaður Wikileaks. Veiðimenn ganga nú til rjúpna aðra helgina í röð en auk komandi helgar má veiða rjúpu tvær helgar í viðbót; 19. og 20. nóvember og 26. og 27. nóvember. Náttúru- fræðistofnun greinir frá því að hlutfall ungfugla í veiðinni í fyrra hafi verið 75%, eða svipað og árin þar á undan, en alls voru aldursgreindar 5136 rjúpur. Stofnunin hvetur rjúpnaskyttur til að klippa annan vænginn af rjúpum sem þær veiða og senda stofnuninni. Af vængjunum má ráða hvort um er að ræða fugl á fyrsta ári eða eldri fugl. Fuglum af sama svæði eða úr sömu sveit þarf að halda saman í poka þannig að hægt sé að sundurgreina sýnin eftir landshlutum. Þessi gögn eru meðal annars notuð til að reikna út heildarstofnstærð rjúpunnar í landinu og til að rannsaka afföll. ­ jh Veður FöstuDagur laugarDagur sunnuDagur Hlýtt á lAndinu. léttSKýjAð norðAnlAndS, en AnnArS SKúrir eðA rigning. HöfuðborgArSVæðið: HItI ALLt Að 9 tIL 10 StIG OG SKÚrIr yFIr DAGINN. KÓlnAr Heldur, en áfrAm froStlAuSt. rigning um tímA SunnAnlAndS og VeStAn. HöfuðborgArSVæðið: rIGNING OG StrEKKINGur FrAMAN AF DEGI, EN ÚrKOMuLÍtIð SÍðArI HLutA DAGSINS. SlAgVeðurSrigning um nÓttinA og morguninn, en SíðAn SKúrir eðA Slydduél VeStAntil og KÓlnAr. HöfuðborgArSVæðið: SKIL FArA yFIr MEð SLAGVIðrI OG SÍðAr SLyDDuéLJuM. HVASSt. Hlýtt í fyrstu en sviptingar á sunnudag Það er einkar milt í lofti þennan föstudag og hiti kemst vestanlands í um og yfir 10 stig. Á laugardag er von á úrkomubakka norðaustur yfir landið. Í kjölfar hans snýst vindur til SV­áttar og kólnar heldur. En aðeins í bili því spáð er myndarlegri lægð sem stefnir beint á okkur eða öllu heldur rétt vestan við landið. Henni fylgir slagveðursrigning, einkum sunnan­ og vestanlands um nóttina og snemma dags, en síðan snýst vindur til hvassrar SV­áttar og þá verður stutt í mun kaldara loft með krapaéljum. 9 7 8 6 7 5 5 7 6 5 4 3 6 5 5 einar Sveinbjörnsson vedurvaktin@vedurvaktin.is miðborgin okkar! Hundruð verslana og veitingahúsa bjóða vörur og þjónustu. Langur laugardagur í miðborginni. Sjá nánar auglýsingu á bls. 34-35 og á www.miðborgin.is 4 fréttir Helgin 4.­6. nóvember 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.