Fréttatíminn - 04.11.2011, Blaðsíða 37
Jólahlaðborð Helgin 4.-6. nóvember 2011
N
ítjánda veitingastaður nýtur
þeirrar sérstöðu að vera á tveim-
ur efstu hæðunum í hæstu bygg-
ingu Íslands, í Turninum við
Smáratorg í Kópavogi, og því má
til sanns vegar færa að það finnast fáir staðir á
Íslandi með jafn óviðjafnanlegt útsýni. „Já, það
er víst mikið rétt en við njótum þess auðvitað
allt árið um kring hérna í Turninum en þegar
myrkrið skellur á og það fer að líða nær jólum
með tilheyrandi ljósadýrð og jólaskreytingum
þá eru fáir staðir sem standa okkur snúning
hvað það varðar að njóta þeirra,“ segir Þórey
Ólafsdóttir, sölu- og markaðsstjóri Veisluturns-
ins/Nítjánda veitingastaðar.
„Ég hlakka mikið til jólanna enda algjört
jólabarn,“ segir Þórey og hlær við en jólin í
Turninum hefjast miðviku daginn 16. nóvem-
ber en þá verða fyrstu jólakræsingarnar born-
ar á borð þetta árið. „Jólin og undirbúningur
þeirra eru alltaf svo yndislegur tími og það
yljar okkur alltaf um hjarta rætur að sjá sömu
fjölskyldurn ar, vinahópana og vinnustað ina
koma hingað ár eftir ár.“ Hún segir veitinga-
staðinn sérlega vel búinn að taka á móti
hópum af öllum stærð um enda vítt til veggja á
báðum hæðum, gott aðgengi að húsinu og næg
bílastæði. „Nú, síðan er það okkar frábæra
starfsfólk, kokk arnir í eldhúsinu, sem galdra
fram þessi óviðjafnanlegu hlaðborð hvert á eft-
ir öðru og þjónar í sal sem njóta þess að stjana
við gesti okkar,“ segir Þórey full tilhlökkunar.
Fjölbragða forréttaveisla
„Jólahlaðborðin okkar sívinsælu eru auðvi-
tað alveg óviðjafnanleg,“ segir Þórey og hlær
„en meðal þess sem boðið verður upp á er
blóðbergsgrafinn lambavöðvi með sætri val-
hnetudressingu, reykt hunangsskinka með
trönuberja sultu, smjörsteikt kalkúnabringa
með brasseruðum sætum kart öflum, léttreykt
grísalæri á beini með sætum sinnepsgljáa og
heil steikt nauta Rib Eye með krydd aðri rauð-
vínssósu sem eflaust einhver kannast við, al-
gjörlega ómótstæðilegt. Það er líka gaman að
segja frá fjölbragðaveislunni okkar sem skapar
alveg einstaka stemningu en við setjum sem
sagt upp forréttahlaðborð á glersnúningsplatta
sem fer á hvert og eitt borð. Þar er öllum for-
réttum komið fyrir á skemmtilegum bökkum
og stöndum sem búið er að bera fram þegar
gestir mæta og því verður umgjörðin öll miklu
heimilislegri og kósí og gestir geta strax byrj-
að að gæða sér á gómsætum forréttunum. Um
helgar verðum við með lifandi tónlist í anda
amerísku snillinganna Frank Sinatra, Bing
Crosby, Dolly Parton og fleiri en það eru Ólöf
Jara & félagar sem munu syngja ljúfa jólatóna
fyrir gesti okkar.“
„„Jólabrunchinn“ okkar er allt af jafn vinsæll
og þá er það stór fjölskyldan sem kemur til að
eiga saman hátíðlega samverustund og gæða
sér á gómsætum veit ingum,“ segir Þórey og
bendir á að þá sé mikið mikið líf í hús inu. „Þá
kemur mikið af börnum enda vita foreldrar af
því að hing að kíkja jólasveinar í heimsókn á
hverju ári sem kæta börn á öllum aldri. Disney
leikherbergið er líka á sínum stað en það hef-
ur sann arlega slegið í gegn hjá krökkun um og
þar erum við líka með tvær yndislegar stúlkur
sem hafa auga með þeim meðan börnin leika
sér.“ Þórey segir um að gera að huga fljótlega
að borðapöntunum. „Það er strax orðið mjög vel
bókað og ég get því bara hvatt fólk til að setja
sig í samband við okkur sem fyrst til að tryggja
sér borð í tíma því jólin eru bara rétt handan
við hornið.“
Að lokum má nefna að einn ig verður boðið
uppá hefðbundið hádegisverðarhlaðborð með
jóla legu ívafi alla virka daga í desember en allar
frekari upplýsingar má finna á www.veisluturn-
inn.is eða í síma 575 7500.
JólauNdirbúNiNgur á NítJáNdu
Hóparnir eiga heima hjá okkur
Veitingastaðurinn Nítjánda í Turninum í Kópavogi hefur fyrir nokkru hafið jólaundirbúninginn en eins og undanfarin ár verður boðið upp á gómsætan „jólabrunch“
allar helgar og hið sívinsæla jólahlaðborð staðarins öll kvöld frá miðvikudegi til sunnudags.
Kynning