Fréttatíminn


Fréttatíminn - 04.11.2011, Blaðsíða 36

Fréttatíminn - 04.11.2011, Blaðsíða 36
13,8 milljarða tap Tap samfélagsins vegna svartrar atvinnu er metið á 13,8 milljarða króna á ári. Þar af eru glötuð réttindi launafólks metin á 8 milljarða. Ríkisskattstjóri, Alþýðusam- band Íslands og Samtök atvinnulífsins draga þessa ályktun af niðurstöðum könnunar á svartri atvinnustarfsemi hér- lendis. Fulltrúar þeirra heimsóttu 2.000 lítil og meðalstór fyrirtæki um allt land til að kanna skattskil. Í ljós kom að 12 prósent starfsmanna þeirra vinna svarta vinnu. Fáir þeirra þiggja hins vegar atvinnuleysisbætur á sama tíma. 39 slík tilvik komu upp af þeim tæplega 6.200 starfsmönnum sem könnunin tók til. Fréttamaður sýknaður Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði fréttamann Ríkisútvarpsins, Svavar Halldórsson, af kröfum Jóns Ásgeirs Jó- hannessonar athafnamanns, sem sakaði Svavar um ærumeiðingar. Er Jóni Ásgeiri gert að greiða Svavari eina milljón króna í málskostnað. Jón Ásgeir krafðist þess að ummæli sem birtust í fréttatíma Sjón- varpsins 6. desember síðastliðinn yrðu dæmd dauð og ómerk. Hann krafðist þess enn fremur að Svavar yrði dæmdur til refsingar og vegna ummælanna og birtingar þeirra. Auk þess að honum yrði gert að greiða 3 milljónir króna í miskabætur. Samið við Sinfóníuna Fulltrúar starfsmannafélags Sinfóníu- hljómsveitar Íslands og samninganefnd ríkisins undirrituðu nýjan kjarasamning á miðvikudagskvöld eftir rúmlega tólf klukkustunda samningafund. Verkfalli hljómsveitarmanna var frestað fram yfir atkvæðagreiðslu um samninginn. Tónleikar hljómsveitarinnar hafa því verið haldnir samkvæmt áætlun. Vill breyta kirkjunni Ríkisendurskoðun vill róttækar breytingar á starfsemi þjóðkirkjunnar og biskupsstofu. Að mati hennar þarf að skapa meiri festu í fjármálum og takmarka völd biskups þannig að hann sinni ekki fjármálaumsýslu. Ríkisendur- skoðun vill að trúarlegir og rekstrarlegir þættir biskupsstofu verði aðskildir og að biskup verði ekki lengur æðsti yfir- maður veraldlegs hluta kirkjustarfsins. Hann er formaður kirkjuráðs sem tekur ákvarðanir um rekstur og fjármál þjóð- kirkjunnar. IE verður flugfélag Iceland Express hefur sótt um flug- rekstrarleyfi til Flugmálastjórnar Íslands og hyggst í framhaldinu kaupa flota af nýjum flugvélum. Félagið hefur til þessa leigt flugvélar frá breska félaginu Astraeus, sem er í eigu eignarhaldsfélags Pálma Haraldssonar eins og Iceland Express. Slæm vika fyrir Ingvar Vilhjálmsson, fyrrverandi yfirmann verðbréfaviðskipta hjá Kaupþingi Góð vika fyrir Magnús Geir Þórðarson leikhússtjóra 11 Fjöldi vikna í röð sem hljómsveitin Of Monsters and Men hefur átt topplagið á Lagalistanum, lista yfir mest spiluðu lögin í útvarpi á Íslandi. Fyrst var það lagið Little Talks og síðan er það King and Lionheart sem trónir nú á toppnum. 53.346 Fjöldi eintaka sem bókaþyrstir Þjóðverjar höfðu keypt af Ég man þig, nýjustu bók glæpa- sagna- drottningar- innar Yrsu Sigurðardóttir. Bókin var næstsöluhæsta bók ársins í fyrra á Íslandi og einnig það sem af er ári. 39 Fjöldi stiga sem íslenski körfuboltakappinn Helgi Már Magnússon skoraði fyrir lið sitt 08 Stockholm í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta. Hann hefur aldrei skorað fleiri stig á ferlinum að eigin sögn. 202 Fjöldi marka sem argentínski galdramaður- inn Lionel Messi hefur skorað fyrir Barcelona á ferlinum. Eng- inn leikmaður hefur verið jafn snöggur til að ná þeim áfanga en Messi tókst það í 286 leikjum. Margfaldari endurráðinn Stjórn Borgarleikhússins hafði snör handtök í vikunni og framlengdi starfssamning Magnúsar Geirs Þórðarsonar leik- hússtjóra við húsið um fjögur ár. Skal engan furða. Magnús hefur átt fantagóð ár við Listabrautina. Friður og ró hefur ríkt innanhúss, sem er alls ekki gefið því drama þar innan dyra hefur á stundum náð langt út fyrir sviðið. En mestu skiptir að starfsemin hefur verið hallalaus undir hans stjórn. Er það nýbreytni hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Á síðustu þremur árum hefur fjöldi kortagesta Borgar- leikhússins ríflega tuttugufaldast sem er, eins og menn geta ímyndað sér, meiri aukning en áður hefur sést. Tæpir þrír milljarðar á gjalddaga Þetta var slæm vika í lífi Ingvars Vilhjálmssonar, fyrrverandi yfirmanni verðbréfaviðskipta hjá Kaupþingi. Héraðsdómur Reykja- víkur dæmdi hann í vikunni til að greiða 2,6 milljarða til Kaupþings eftir að niðurfelling persónulegra ábyrgða hans á milljarða kúlulánum bankans til hans var rift. Ingvar skutlaði hlutabréfaeign sinni í Kaup- þingi og skuldum með inn í eignar- haldsfélagið Ingvar Vilhjálmsson ehf. tveimur dögum fyrir hrun árið 2008 en héraðsdómur telur að um málamynda- gjörning sé að ræða. Hæstiréttur á eftir að fjalla um málið en staðfesti hann dóminn gæti reynst erfitt fyrir Ingvar að borga skuldina, meðal annars sé til þess litið að hann flutti eignarhlut sinn í tveimur einbýlishúsum í Skerjafirði yfir á konu sína og tengdamóður. 16 vikan í tölum Svavar hvítskúraður í héraði Svavar Halldórsson, fréttamaður, var sýknaður í héraðsdómi í meiðyrða- máli sem Jón Ásgeir Jóhannesson höfðaði gegn honum. Víða var fagnað á Facebook en Jón Ásgeir ætlar ekki að una dómnum, ætlar að áfrýja til Hæstaréttar til þess að fá úr því skorið hvor Svavar „megi vera ónákvæmur í fréttaflutningi sínum,“ eins og hann orðaði það á Pressunni. Andrés Magnússon Góð dómsniðurstaða, en ekki alveg nógu traustur dómur. Hilmar Þór Guðmundsson Jón Ásgeir - þú fórst illa að ráði þínu og þarft að fara að sýna iðrun en ekki gagga eins og frekt hænsn ef fólk talar um þig. Lára Hanna Einarsdóttir Það er ótrúlegur léttir í hvert sinn sem blaða- og fréttamenn eru sýknaðir af ærumeiðingarásök- unum. Jafnskítt finnst manni þegar þeir eru sakfelldir og það gjarnan á ótrúlegum forsendum. Ég vona að a.m.k. Blaðamannafélagið haldi öllum dómunum saman og rýni rækilega í forsendur þeirra, beri þá saman og veki athygli á þessari til- raun til þöggunar í kjölfar hrunsins. G. Pétur Matthíasson Var kominn á skynsemi í þessum málum frá dómsstólum: „Skoða verði fréttina í heild sinni en ekki út frá einstökum ummælum. Jafn- framt beri að líta til þess jarðvegs sem ummælin spruttu úr og til nauðsynlegrar umræðu í þjóð- félaginu um orsakir og afleiðingar bankahrunsins og jafnframt hafa í huga að einhverrar ónákvæmni geti gætt þegar fjallað er um flóknar lánveitingar og viðskipta- fléttur.“ Hanna Birna sýndi spilin Á fimmtudaginn eyddi Hanna Birna Kristjánsdóttir loks þeirri rafmögn- uðu óvissu sem leikið hefur á um hvort hún myndi taka slaginn um formennsku í Sjálfstæðisflokknum við Bjarna Benediktsson. Nú liggur fyrir að það verður fjör á lands- fundi flokksins síðar í mánuðinum. Mani Pétursson haha 1-0 fyrir bestaflokkinn. Hanna birna er nógu undirförul til þess að fara í Landspólitíkina. Getur ekki staðið í slag við flokk eins og besta flokkinn. Flokk sem er í heiðarlegri pólitík. ... Greyið Einar Bardarson Þetta er mjög sterkt fyrir Sjálf- stæðisflokkinn, tveir sterkir leið- togar í boði. Ef Bjarni vinnur, styrkir hann sig sem formaður. Ef Hanna Birna vinnur þá er kominn fram nýr sterkur leiðtogi. Kannski kominn tími til að kona taki formanns sætið. Allavega tapar flokkurinn aldrei þessum kosningum. Borgar Þór Einarsson Jæja, þá er að koma sér makinda- lega fyrir, fá sér popp og kók og fylgjast með. Ragnar Hilmarsson Mun leiða flokkinn til sigurs? humm... hún er á móti ESB og vill hætta aðildarviðræðum. Er það ekki það sama og Bjarni hefur sagt. hver er þá munurinn? kona vs karl. Ekki viss um að hún sé betri en BB. Hvað segja Evrópu sinnaðir Sjálf- stæðismenn um þetta, ekkert pláss fyrir þeirra hugmyndir. Hvernig fleka skal íslenska konu Furðuritið Bang Iceland er nú fáan- legt í rafrænni útgáfi hjá Amazon. com en samkvæmt innihalds- lýsingu er um leiðbeiningarit um hvernig lokka megi íslenskar konur í bólið með sem minnstri fyrirhöfn og tilstandi. Höfundurinn virðsit þó fullviss um að hvergi á byggðu bóli sé þetta jafn auðvelt og einmitt hér þannig að í því ljósi er óljóst hvað rak hann til þess að færa vísindi þessi í letur. Fáum á Facebook er skemmt yfir þessu uppátæki. Nanna Elísa Snædal Já! Þetta er nú fræðirit sem á heima á hillum allra landsmanna. Baldur Hermannsson Lauslæti íslenskra kvenna vekur heims athygli. Trúlega eykst ferða- manna straumurinn um allan helm- ing eftir útkomu þessarar bókar. Hildur Knútsdóttir WHAT? Sveinn H. Guðmarsson WTF! „Dirty Weekend in Iceland“ áróðurinn hefur skilað sér. Egill Örn Jóhannsson Ætli þessi bók verði þýdd? HeituStu kolin á Ísraelskur hermaður (til vinstri) býður hina 27 ára gömlu Mayanda Abud (fyrir miðju til hægri) og hinn þrítuga Munjed Awad (fyrir miðju til vinstri) velkomin þegar þau ganga yfir landamæri Sýrlands og Ísrael á Golan-hæðum. Abud yfirgaf fjölskyldu sína í Sýrlandi til giftast Awad sem býr á yfirráðasvæði Ísraels- manna, því sem þeir náðu af Sýrlendingum í sex daga stríðinu árið 1967. Ljósmynd/ Nordic Photos/AFP Sony Center býður 5 ára ábyrgð á sjónvörpum án aukakostnaðar 5 ÁRA ÁBYRGÐ 40” Sony gæði á góðu verði 199.990,- Tilboð Sparaðu 50.000.- Kringlunni 588 7669 www.sonycenter.is Fjöldi mála sem háttvirtur þingmaður Sjálf- stæðisflokksins, Árni Johnsen, stóð að í þinginu á miðvikudag. Hann átti 73 prósent af öllum málum sem tekin voru á dagskrá þann daginn. 36 fréttir vikunnar Helgin 4.-6. nóvember 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.