Fréttatíminn


Fréttatíminn - 04.11.2011, Blaðsíða 46

Fréttatíminn - 04.11.2011, Blaðsíða 46
Svört vinna er viðvarandi vandamál hér á landi. Í þeim efnum er þörf viðhorfsbreyt- ingar. Ekki er líðandi að hluti borgara fari á svig við settar reglur, svíni á öðrum þegnum, þiggi dýra samfélagsþjónustu, hvort heldur á er heilsugæsla, menntun eða annað, án þess að leggja sitt af mörkum. Ríkissjóður, sveitarfélög, lífeyrissjóðir og stéttarfélög verða árlega af tæpum 14 millj- örðum króna vegna svartrar vinnu, að því er ný könnun á vegum ríkisskattstjóra, Al- þýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins sýnir. Þá er ótalinn skaði launþega sem verða af lífeyrisgreiðslum, auk annars. Í könnuninni var miðað við veltu fyrirtækja und- ir milljarði þannig að heildar- skaði verður ekki metinn út frá niðurstöðum hennar. Hópur á vegum þessara að- ila kannaði rekstur yfir tvö þúsund lítilla og meðalstórra fyrirtækja og aðstæður yfir sex þúsund starfsmanna þeirra. Niðurstaðan er sláandi. Yfir 12 prósent starfsmanna voru á svörtum launum, borguðu hvorki skatta né önnur launatengd gjöld. Enginn efi er hins vegar á því að þessi hópur geri kröfur um samfélagsþjónustu til jafns við aðra. En það eru ekki bara þeir sem þiggja svörtu launin sem svindla. Það gera líka þeir sem þau greiða. Vilhjálmur Egilsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sagði þegar niðurstaða könnunarinnar lá fyrir að ólíðandi væri að ákveðin fyrirtæki byggju við heimatilbúin skattalög og tækju lögin þannig í sínar hendur. Vilmundur Jósefsson, formað- ur sömu samtaka, sagði grafalvarlegt að fyr- irtæki stunduðu svarta atvinnustarfsemi þar sem slíkt skekkti samkeppnisstöðu þeirra fyrirtækja sem færu að lögum og reglum. Ótaldir eru þá þeir einstaklingar sem kaupa svarta þjónustu og stunda þar með sömu svikin og þau sem snerta í senn launa- skatta og virðisaukaskatt. Svarta hagkerfið veltir því án efa umtalsvert hærri upphæðum en sem nemur fjórtán milljörðum. Samtök iðnaðarins áætluðu fyrir nokkru að heildar- tekjutap hins opinbera vegna svartrar at- vinnustarfsemi gæti numið um fjörutíu millj- örðum króna. Vinnumálastofnun hefur aukið eftirlit með svartri vinnu, eins og fram kom í Fréttatím- anum nýverið. Með því næst til margra sem svarta vinnu stunda en eru samtímis á at- vinnuleysisskrá. Þannig sparast hundruð milljóna króna. Óþolandi er að fólk þiggi at- vinnuleysisbætur en vinni um leið svart. Með því er vegið að samfélaginu en einkum þeim sem eru raunverulega atvinnulausir og njóta hinna mikilvægu bóta. Bjarni Már Gylfason, hagfræðingur Sam- taka iðnaðarins, benti nýlega á einkennilega stöðu á íslenskum vinnumarkaði: Atvinnu- leysi væri mikið en samt kvörtuðu iðnfyrir- tæki í öllum greinum undan skorti á hæfu fólki. Hann skýrði þetta með tvennu, annars vegar að kaupmáttur lágmarksbóta almanna- trygginga hefði hækkað meira en kaupmáttur almennra launa og hins vegar háum sköttum. Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknar- flokksins, talaði á svipuðum nótum í umræðu á þingi um fyrrgreinda könnun en þar sagði hún neðanjarðarhagkerfið blómstra í skatta- píningarkerfi stjórnvalda. Endalaust má deila um skattlagningu ein- staklinga og fyrirtækja, hvort um skattpín- ingu sé að ræða eður ei, en skattlagningin sem slík réttlætir ekki svörtu atvinnustarf- semina; að hluti fólks og fyrirtækja grípi til þess ráðs að leika eftir eigin reglum en ekki samfélagsins. Þegar niðurstaða könnunarinnar lá fyrir til- kynnti ríkisskattstjóri átak til að taka á vand- anum. Í samantekt Alþýðusambandsins kem- ur fram að skortur sé á úrræðum til eftirlits sem beinast að brotum á lögbundnu verklagi við tekjuskráningu, skilum á virðisaukaskatti og launatengdum gjöldum. Þörf er talin á lagabreytingum sem skilað gætu milljörðum króna á hverju ári í sam- eiginlega sjóði. Um slíkt munar í kerfi þar sem velta þarf fyrir sér hverri krónu. Svört atvinnustarfsemi Svínað á samborgurum H Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jón Kaldal kaldal@frettatiminn.is Framkvæmdastjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is Fréttastjóri: Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettatiminn.is Ritstjórnarfulltrúi: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is. Auglýsinga- stjóri: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti. Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Megintilgangur Vistbyggðarráðs er að vera leiðandi vett- vangur á sviði vistvænnar þróunar við skipulag, hönnun, byggingu, rekstur og viðhald mannvirkja á Íslandi. Verslun Spilavinir ehf Kostur lágvöruverslun ehf IKEA Kría Hjól ehf, hjólaverkstæði MacLand Klapparstíg 30 Langholtsvegi 126 Dalvegi 10 Hólmaslóð 4 3 ummæli 3 ummæli 31 ummæli 13 ummæli 16 ummæli 1 2 3 4 5 Efstu 5 - Vika 44 Topplistinn Í liðinni viku stóð Vistbyggðarráð fyrir vel sóttum morgunfundi á KEX hos-tel. Þar jós Árni Friðriksson arkitekt úr reynslubrunni sínum um hönnun og byggingu vistvænna bygginga hérlendis – á Sólheimum í Grímsnesi og víðar. Að framlagi Árna, og annarra þeirra sem voru með stutt innlegg á fundinum, ólöst- uðum vakti þó ekki síst til umhugsunar framlag Péturs Marteinssonar. Í erindi sínu sagði Pétur, sem er einn af eigend- um KEX hostel, frá því hvernig hann og félagar hans hafa meðvitað þróað þennan nýja frumlega og áhugaverða áfangastað í skemmtanalífi og ferðaþjónustu Reykja- víkur með vistvænum brag. KEX hostel er til húsa í gömlu verksmiðjuhúsnæði Kexverksmiðjunnar Frón við Skúlagötu þar sem hráu verksmiðjuhúsnæði er gefið nýtt líf. Þeir félagar hafa á hugvitsam- legan og áræðinn hátt endurnýtt bygginguna sjálfa og endurnýtt byggingarefni og húsgögn annarsstaðar að. Parketið á barnum er búið til úr vörubrettum, parket í sal er gamalt íþróttavallargólf og loftpanellinn í gesta- mótttökunni klæddi áður loft skíðaskála, svo eitthvað sé nefnt. Sannarlega smart og spennandi framlag til ört vaxandi áherslna á sjálfbærar lausnir í byggingar- og skipulagsmálum hér á landi. Framlag þeirra KEX manna minnir okkur kannski líka á að vistvænar áherslur, hvort sem það er í bygg- ingar- og skipulagsmálum eða á öðrum sviðum samfélagsins, mega ekki ein- skorðast við að vera viðfangsefni „fagid- jóta“ og sérvitringa. Vistvænt á og þarf að verða að „mainstream“ nálgun á þessu sviði sem öðrum. Þróun auðlindanýt- ingar og loftslagsmála gerir hreinlega þá kröfu á hendur okkar allra. Fundurinn í síðustu viku er dæmi um eitt lítið skref í þá átt að koma vistvænum málum á dag- skrá í íslenska byggingar- og skipulags- geiranum. Vistbyggðarráð, sem stóð fyrir honum, er vettvangur fyrirtækja og stofnana á sviði byggingar- og skipulags- mála. Megintilgangur Vistbyggðarráðs er að vera leiðandi vettvangur á sviði vistvænnar þróunar við skipulag, hönnun, byggingu, rekstur og viðhald mannvirkja á Íslandi. Langtímamarkmið okkar hlýtur að vera að vistvænar áherslur verði ekki spurning um val hinna umhverfisvænu, heldur að þær verði festar í sessi sem almenn viðmið og meginreglur í mann- virkjagerð og skipulagi hérlendis. Til þess þarf sam- stillt átak stjórnvalda og aðila í atvinnulífinu, en frum- kvæði einstakra aðila eins og þeirra KEX manna er ómetanlegt á þeirri leið. Það sýnir okkur í verki að vistvæn hönnun og hugmyndafræði snýst ekki bara um staðla og hömlur, heldur einmitt, þegar best tekst til, um frumleika og nýsköpun. Húsbyggingar Vistvænt er smart Ásdís Hlökk Theodórsdóttir formaður Vistbyggðarráðs og aðjúnkt við Háskólann í Reykjavík Myndavíxl Í síðustu viku birtist fyrir mistök mynd af Þorgeiri Pálssyni prófessor við tækni- og verkfræðideild HR við greinina „Hjálpaði okkur að losna við danska kónginn“. Höfundar greinarinnar er hins vegar nafni hans Þorgeir Pálsson, sem er rekstrarráðgjafi og stundakennari við Viðskipta- deild HR og er mynd af hér til hliðar. Getur þú styrkt barn? www.soleyogfelagar.is 38 viðhorf Helgin 4.-6. nóvember 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.