Fréttatíminn


Fréttatíminn - 04.11.2011, Page 12

Fréttatíminn - 04.11.2011, Page 12
MATSEÐILL LEIKHÚS- Aðalstræti 2 / 101 Reykjavík / Sími: 517 4300 / www.geysirbistro.is Fo r r é t t u r Aða l r é t t i r Laxatvenna – reyktur og grafinn lax Bleikja & humar með hollandaise sósu E f t i r r é t t u r Þriggja rétta máltíð á 4.900 kr. Jack Daniel’s súkkulaðikaka Djúpsteiktur ís og súkkulaði- hjúpuð jarðarber Brasserað fennell, kartöflu- stappa og ostrusveppir eða... Grillað Lambafille Með rófutvennu, sveppakartöflum og bláberja anís kjötsósu V erð á áli hefur lækkað um fjórð-ung frá því í maíbyrjun. Þróun þess skiptir íslenska hagkerfið verulegu máli, enda eru framleidd hér um 830 þúsund tonn af áli á ári, sem svarar til nær 2 prósenta heimsfram- leiðslu. Fyrstu átta mánuði ársins nam útflutningsverðmæti áls tæplega 155 milljörðum króna og jókst um tæp 6 prósent á milli ára þrátt fyrir ríflega 4 prósenta samdrátt í útfluttu magni og 2 prósenta sterkari krónu að jafnaði þetta árið en var í fyrra, að því er Greining Ís- landsbanka bendir á. Þar kemur enn fremur fram að verð- mæti útflutnings áls nú er nánast hið sama og útflutningsverðmæti sjávar- afurða. Vægi hvorrar greinar er um 25 prósent af heildarútflutningstekjum. „Eftir lækkunina undanfarið er álverð nú nálægt meðalverði áranna 2001-2010 á heimsmarkaði og er því vart hægt að fullyrða að verðið sé lágt í sögulegum skilningi í dollurum talið þrátt fyrir óhagfelldar aðstæður á markaði þessa dagana. Hins vegar er á það að líta að verðlag hefur almennt hækkað á þess- um tíma. Til að mynda hefur neysluverð í Bandaríkjunum hækkað um u.þ.b. 27% frá síðustu aldamótum, og í ljósi þess er álverð ekki ýkja hátt,“ segir Greiningin. Þróun verðs á áli hefur neikvæð áhrif á rekstur Landsvirkjunar, að því er Ragna Sara Jónsdóttir, yfir- maður Samskiptasviðs Landsvirkjunar, segir: „Landsvirkjun hefur unnið að því undanfarið, og mun halda því áfram, að draga úr álverðstengingu í sölu- samningum. Með endursamningi við Rio Tinto Alcan í fyrra tókst að lækka álverðstengingu í tekjum Landsvirkj- unar úr 72 prósent í 50 prósent. Til skemmri tíma er Landsvirkjun einnig með álvarnarsamninga (afleiðusamn- inga) sem draga úr áhrifum af breyting- um álverðs á rekstur félagsins,“ segir Ragna Sara. Stjórnendur Alcoa bentu á við kynn- ingu á síðasta uppgjöri sínu að líklega væri framboð áls á þessu ári, ef Kína væri undanskilið, um það bil 1 milljón tonna umfram eftirspurn þetta árið. Hins vegar er talið að Kínverjar þurfi á umtalsvert meira ál en framleitt er þar. Fram til þessa hefur umframálinu verið haldið utan markaðar af fjárfestum. Um 4,6 milljón tonn eru geymd í vöru- húsum víðs vegar um heiminn. Þessa geymslu áls þarf að fjármagna, segir Greiningin, og hefur það orðið þyngri róður sem tengist skuldakreppunni í Evrópu sem sett hefur aukið mark sitt á fjármálamarkaði. Gæti sú staðreynd aukið verulega framboð áls á markaði á næstunni. Fréttatíminn leitaði eftir viðbrögðum fjármálaráðuneytisins vegna þessa og hvaða áhrif lækkun álverðs hefði á hag- kerfið? Þrátt fyrir ítrekun fyrirspurna í símtölum og í tölvupóstum í þessari viku og þeirri fyrri hefur ráðuneytið engu svarað.  Verð á áli Fjórðungslækkun Frá í Vor Hefur neikvæð áhrif á rekstur Landsvirkjunar Landsvirkjun hefur unnið að því að draga úr álverðstengingu í sölusamningum og mun gera það áfram. Svör fengust ekki frá fjármálaráðuneytinu um áhrif verðlækkunarinnar á hagkerfið. Milljónir tonna áls eru geymdar í vöruhúsum víða um heim. Álverð hefur lækkað um fjórðung frá í maí. Þetta hefur neikvæð áhrif á íslenskt hagkerfi og á rekstur Landsvirkjunar, en fyrirtækið hefur unnið að því að draga úr álverðs- tengingu í sölusamning- um. Ljósmynd Hari Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Getur þú styrkt barn? www.soleyogfelagar.is l ánasjóður sveitarfélaga stefnir að því að lána Orkuveitu Reykjavík-ur 1,6 milljarða króna og allt að 10 milljónir evra með veði í sköttum Reyk- víkinga, Akurnesinga og Borgnesinga. Lánin munu bera fjögurra prósenta verð- tryggða vexti, og verða tekin til 10 til 25 ára, skemur eða lengur. Óttar Guðjónsson er framkvæmdastjóri Lánasjóðsins. Hann segir lánin ekki verða þau stærstu í sögu sjóðsins, en vill ekki gefa upp hver hafi fengið meira vegna bankaleyndar. Spurður hvort hún eigi einnig við þar sem Lánasjóðurinn sé í eigu fólksins í landinu, það er sveitarfélaga, og láni aðeins í verkefni og stofnunum í eigu þeirra segir hann svo vera lögum sam- kvæmt. Á vef Orkuveitunnar má lesa að samn- ingurinn sé til marks um að fjármálastofn- anir innanlands og utan hafi trú á áætlun- inni sem unnið sé eftir. Þrátt fyrir þetta vildi Norræni fjárfestingabankinn ekki lána Orkuveitunni og á það við um næstu misseri. Það kom fram í minnisblaði for- stjóra og sagt var frá á Vísi í lok mars. Jukke Ahonen, upplýsingafulltrúi Nor- ræna fjárfestingabankans, vill ekki stað- festa að það eigi enn við. Sjóðurinn gefi ekki upp afstöðu til einstakra fyrirtækja. Á síðasta fundi bæjarstjórnar Akraness, sem á um 5 prósent í Orkuveitunni, sam- þykkti hún lánin. Bæjarstjórinn Árni Múli Jónasson segir bæjarfulltrúa hafa áhyggj- ur af skuldastöðu Orkuveitunnar, sem var um mitt ár tæpir 244 milljarðar króna. „Það væri barnaskapur að segja að búið sé að vinna sigurinn,“ segir hann, en miðað við framvinduna hafi hann trú á að aðgerðir skili árangri. Ekki náðist í stjór- nendur Orkuveitunnar. Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@frettatiminn.is  orkuVeitan lánasjóður sVeitarFélaga lánar 1,6 milljarð króna og allt að 10 milljónir eVra Lána milljarða af skattfé með veði í vösum skattgreiðenda Ekki bestu kjörin Hagstæðara væri fyrir Orkuveituna ef Reykjavíkur- borg færi í skuldabréfaútgáfu og léti féð renna til Orkuveitunnar frekar en að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga. Það er mat Davíðs Stefánssonar, hag- fræðings í greiningardeild Arion-banka. „Reykjavíkurborg hefur verið að gefa út ríkis- skuldabréf með 0,7 prósenta álagi á sambærileg ríkisskuldabréf. Þessi kjör sem Lánasjóðurinn býður Orkuveitunni eru hins vegar einu og hálfu til tveimur prósentum ofan við þau sem hinu opinbera bjóðast,“ segir hann. - gag 12 fréttir Helgin 4.-6. nóvember 2011

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.