Fréttatíminn


Fréttatíminn - 04.11.2011, Side 40

Fréttatíminn - 04.11.2011, Side 40
4 jólahlaðborð Helgin 4.-6. nóvember 2011 M agnús Kjartansson mun halda söngskemmtun sem byggir á hans langa og farsæla ferli sem tónlistarmaður. Magnús hefur verið að í 45 ár og komið víða við, enda tekið að sér mörg hlutverk í gegn- um tíðina; verið flytjandi, hljóðfæraleikari, út- setjari og upptökustjóri. Magnús segir að geng- ið hafi vel að velja lög úr hans mikla safni til að spila á tónleikunum en hann segir mikilvægt að leika lög sem fólk þekkir. Lögin sem leikin verða hafa notið almennra vinsælda. „Þetta er ekkert öðruvísi hjá en hjá Paul McCartney. Það verður að spila lög sem fólk þekkir,” segir hann. Þekkt lög sem leikin verða eru til dæmis: My friend and I, To be grateful, Helga, Einskonar ást, Lítill drengur og Skólaball. Söngskemmtunin verður á Broadway á aðventunni. „Við vonumst til að ná þessari gömlu góðu Broadway stemningu, þar sem fólk getur notið þess að borða góðan mat og fá góða skemmtun,“ segir Magnús. Sýningin er fyrir matargesti en auk þess opin fyrir aðra, þó eru matargestir nær sviðinu. „Þetta er form sem hefur sannað sig víða um heim,“ segir Magnús. Magnús segir að það hafi ekki blundað í honum lengi að halda stóra tónleika til að fagna löngum og miklum ferli sem tónlistarmaður. „Nei, ég hélt alltaf að það væri mitt hlutverk að halda öðrum á lofti en sjálfum mér. En Jóhannes Bachmann á Broadway fannst kominn tími til að ég léti til skara skríða. Ég var lengi mjög tvístíg- andi með það, en nú verður ekki aftur snúið,“ segir hann. Eðli málsins samkvæmt horfir Magnús um öxl á þessum tímamótum. „Það hellast yfir mann minningarnar frá liðnum tíma,“ segir hann, en Magnús varð sextugur í sumar. Hann segist að hafa upplifað væntumþykju og þakk- læti; að hafa fengið að vinna með öllu þessu tón- listarfólki. En líka söknuð, því margir hafi farið of snemma yfir móðuna miklu. Þá segist hann hafa upplifað vonbrigði vegna þess hversu fljót- fær hann hefur verið og látið sjálfan sig mæta afgangi. „En að vera nú neyddur til að horfa til baka hefur verið dýrmætt,“ segir hann. En aftur í núið. Magnús segir að það hafi verið mjög gaman að vinna að því að setja þessa söngskemmtun saman. „Það sem er gaman við þetta er það sama og hefur verið gaman við þetta alla tíð; að vinna með frábæru tónlistar- fólki og fá tækifæri til að njóta krafta góðra manna, sem hjálpa mér við þetta,“ segir Magn- ús. Heill her kemur að þessum tónleikum. Má til dæmis nefna sjálfan Gunnar Þórðarson og söngvarana Jóhann Vilhjálmsson, son Vilhjálms heitins Vilhjálmssonar, Jónsa og Stefaníu Svav- arsdóttur. Hljómsveitin er að grunni til Sálin hans Jóns míns en þó án Stefáns Hilmarssonar söngvara og Guðmundar en að viðbættum þeim Sigurgeir Sigmundssyni gítarleikara, Pétri Val- garð gítarleikara og Þóri Úlfarssyni sem leikur á hljómborð og stjórnar hljómsveitinni.  Magnús Kjartansson Með MiKla söngsKeMMtun á aðventunni Fagnar 45 ára ferli Veislumatur og fjölmargir tónlistarmenn koma fram Kynning Vín á jólahlaðborði Val á vínum með jólahlaðborði er ekki einfalt því þetta er jú – hlaðborð. Þegar fjölbreyttur matur er á disknum er best er að velja sér vín í léttari stíl eins og Búrgundarvín úr Pinot Noir þrúgu eða vín sömu þrúgu frá öðrum löndum. Ástæðan er sú að það vín skyg- gir aldrei á matinn en stelur senunni milli ferða. Munið að Pinot Noir á að drekka við um 16 gráður og verður því að ferskum blæ með annars miklum mat. Biðjið því hiklaust um kælingu ef á þarf að halda því Pinot Noir í 25 gráðum er dapur drykkur. Góður kostur gæti verið Joseph Drouhin Laforet Pinot Noir frá Búrgúndí.

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.