Fréttatíminn


Fréttatíminn - 04.11.2011, Side 49

Fréttatíminn - 04.11.2011, Side 49
Í HANDH ÆGUM UMBÚÐU M NÝJUNG Í salatið, í nestisboxið, á ostapinnann og út í heita rétti. Það eru nánast engin takmörk fyrir möguleikum ostakubbanna. Leiktu þér með ostakubbana H VÍ TA H Ú SI Ð /S ÍA - A U 37 90 Nú má ekki láta deigan síga. Koma verður stjórnar- skrármálinu í höfn. V itaskuld ekki. Ráðið hefði mátt fá meiri tíma. Margt lá þó til grund- vallar starfi ráðsins svo sem fyrri stjórnarskrár- nefndir, stjórnlaganefnd til undirbúnings þjóð- fundar og ráðgerðs stjórnlagaþings, svo og þjóðfundurinn sjálfur. Spurningin er ekki hvort tillögur stjórnar- skrárnefndar séu full- komnar heldur hvort þær taki núgildandi stjórnarskrá fram. Jafnframt má spyrja hvort tillögur ráðsins megi enn bæta. Svo er efalaust, en brýnt er að það gerist þá með markvissum hætti. Um framgangsmátann skrifaði ég pistillinn „Hvað nú?“ 14. október síðastliðinn. Alþingi hefur þegar haft eina um- ræðu um frumvarp ráðsins að nýrri stjórnarskrá. Þar kom bæði fram lof og last en í heild var umræðan málaefnaleg. Nú hefst umfjöllun um tillögurnar í nýrri fastanefnd þingsins, stjórnskipunar- og eftir- litsnefnd. Þar munu málin efalaust verða krufin. Lítum á þá gagnrýni sem fram kom á þingfundinum 6. október síðast liðinn. Hvað gagnrýna þingmenn? Hér verður ekki hirt um gagnrýni á aðdragandann, stjórnlagaþings- kosninguna, ógildingu Hæstaréttar eða skipun í stjórnlagaráð heldur aðeins fjallað um efnið, frumvarp stjórnlagaráðs að nýrri stjórnar- skrá. Fyrst má nefna atriði almenns eðlis: • Óskýr skil milli stjórnarskrár og laga: Of víða sé sagt að Al- þingi beri að útfæra viss atriði með lögum. Hér er vandrataður meðalvegur. Hefðum við njörv- að hlutina meira niður í stjórn- arskrárákvæðum væri efalaust gagnrýnt að Alþingi hefði ekki nægt svigrúm til að útfæra og laga að þörfum hvers tíma. • Óskhyggja: Sumt sé óskhyggja sem ekki eigi erindi í stjórnar- skrá, einkum vissir þættir félags- legra réttinda. Við teljum okkur vera að fylgja þeirri stefnu um félagsleg réttindi sem mótuð var með stjórnarskrárbreytingum 1995 svo og þróun erlendis með- al annars með vísan til ýmissa al- þjóðasamninga sem Íslendingar hafa undirgengist. • Óljós ákvæði: Nokkur dæmi voru nefnd um óskýrt orðalag eða annað sem mætti mistúlka. Sé svo er það miður. Fátt vildum við í stjórnlagaráði leggja meira kapp á en hafa ákvæðin skýr og þannig að ekki verði út úr þeim snúið. Gott væri að fram kæmu uppbyggjandi ábendingar um bættan texta, ef þess sé þörf. Sértækari gagnrýni var meðal ann- ars þessi: • Auðlindir í almannaeigu: Hér togast á þau sjónarmið sem uppi hafa verið í marga áratugi um auðlindirnar og gjaldtöku fyrir afnot af þeim, hvort sem það eru fiskimið eða orkulindir. Stjór- nlagaráðið tók af skarið í þeim efnum; í takt við það sem fram kom til dæmis á þjóðfundinum. • Vald forseta: Sumir þingmenn segja vald forseta Íslands óljóst í tillögunum og vitna þá til túlk- unar núverandi forseta. Sú túlk- un er mjög vafasöm. Hún skiptir þó ekki meginmáli heldur verð- ur að spyrja hvort þau verkefni sem forsetinn fær séu rétt valin og vel skilgreind, óháð því hvort þau eru meiri eða minni en nú. • Skipun dómara: Spurt var hvað Ný stjórnarskrá Var stjórnlagaráð óskeikult? erindi forseti Íslands eigi að því máli. Fátt var jafn ítarlega rætt í ráðinu eins og aðferð við val á dómurum, enda tilefni ærin. For- setinn fær aðhaldshlutverk í þeim efnum, allt eins og ráðið vill sjá hlutverk hans almennt. • Kosningareglur: Eru sagðar flókn- ar og markmiðin óljós. Þessu hef ég svarað í þremur pistlum í ágúst. Vitaskuld bera ákvæðin þess merki að reynt var að samræma sem flest sjónarmið. Meðvitað var farinn meðalvegur milli þess að fastsetja sumt, eins og jafnan atkvæðisrétt og persónukjör, og hins vegar þess að halda hæfilega miklu opnu fyrir löggjafann. • Vernd stofnana: Gagnrýnd er að vissar stofnanir eigi að njóta sér- stakrar verndar. Í ljósi reynslunn- ar taldi stjórnlagaráð að tryggja yrði tilvist eftirlits- og upplýsinga- stofnana gegn geðþótta stjórn- valda. Útfærsluna má vitaskuld gaumgæfa. • Sanngjörn laun: Ákvæði um rétta til sanngjarnra launa eru sögð óljós óskhyggja. Fyrirmyndin er sótt til alþjóðasamning Samein- uðu þjóðanna sem Ísland hefur undirgengist. Upptalningin er ekki tæmandi. Þó er athyglisvert að einungis um fimmt- ungur lagagreina í stjórnarskrár- drögunum voru tilefni gagnrýni við þessa fyrstu en löngu umræðu á Al- þingi. Nú má ekki láta deigan síga. Koma verður stjórnarskrármálinu í höfn. Fulltrúar í stjórnlagaráði lýstu því yfir í skilaskjali með frumvarpi sínu að þeir væru fúsir til að ljá málinu aftur lið. Þorkell Helgason sat í stjórnlagaráði viðhorf 41Helgin 4.-6. nóvember 2011

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.