Fréttatíminn


Fréttatíminn - 04.11.2011, Side 50

Fréttatíminn - 04.11.2011, Side 50
Til eru þeir sem frægir eru fyrir það eitt að vera frægir. Þeirra er linnulítið getið í fjölmiðlum. Reikna verður með því að eftirspurn sé eftir fregnum af þessum ein- staklingum, að minnsta kosti hlýtur það að vera mat þeirra sem stjórna léttmetis- dálkum blaða og ljósvakamiðla. Netið hefur síðan slegið hefðbundnu miðlunum við í þessum efnum, hvort heldur er frétta- flutningur formlegra netmiðla eða annar farvegur tíðinda í þeim flókna furðuheimi. Við fáum okkar skammt af lesefni og myndum af þessu fólki hingað á norður- hjarann því þessari stöðu ná ekki nema örfáir einstaklingar stórþjóðanna. Þeir sem fylgjast með fjölmiðlum komast ekki hjá því að reka augun í frægðarmennin, stundum ungmenni sem hafa farið bæri- lega af stað en misst fótanna vegna frægð- arinnar og verða þá enn frægari, einkum af endemum. Fyrir fáeinum misserum var Paris nokkur Hilton efst á þessum lista, hæfi- leikalítil leik- og söngkona. Einkum var það ættarnafnið sem fleytti henni á for- síðurnar. Hótelkeðjan hékk beinlínis um háls hennar. Fyrst hæfileikana skorti var ekki um annað að ræða en stunda sukk og svínarí af þeim þunga að athygli vekti. Stúlkunni tókst það, náði að hneyksla heimsbyggðina í nokkur misseri þar til hún hvarf í skugga gleymskunnar. Af afrekum hennar á opinberum lista er það eitt talið upp að hún hafi leikið í þáttaröð- inni The Simple Life. Kannski segir það allt sem segja þarf. Heimsfræðgin entist þó um hríð. Sú sem tók við keflinu var söngkonan Amy Winehouse. Frá náttúrunnar hendi var hún hæfileikaríkari en hótelerfinginn, verðlaunuð söngkona, en eyddi þó meiri tíma í dóp og drykkju uns hún gekk á fund feðra sinna fyrr á þessu ári eftir margan og magnaðan skandalinn. Það voru þeir en ekki söngurinn sem héldu nafni henn- ar á lofti á síðari hluta frægðarferilsins. Við ótímabært andlátið bættist Amy í 27 ára klúbbinn svokallaða, lítt eftirsóknar- verðan félagsskap þeirra tónlistarmanna sem horfið hafa yfir móðuna miklu aðeins 27 ára. Þar eru frægastir félagsmanna Jimi Hendrix, Janis Joplin, Jim Morrison og Kurt Cobain. Þessir listamenn stóðu vissulega fyrir sínu en þegar leið á feril þeirra þótti sukkið fréttnæmara en tón- listarafrekin. Sú sem ber hins vegar höfuð og herðar yfir önnur slík frægðarmenni samtímans er bandaríska leikkonan Lindsay Lohan. Misserum og árum saman hefur hún hald- ið dálkahöfundunum við efnið og allt síast það inn í huga okkar, slíkt er fréttafárið. Lindsay byrjaði bærilega en hún hefur verið að frá því að hún var þriggja ára, sungið og leikið. Kvikmyndaferillinn er þó fremur ómerkilegur, fór versnandi og er sennilega alveg dottinn upp fyrir. Frá því er greint nánast daglega. Allt er tínt til meðan frægðin endist. Er á meðan er. Við höfum ekki komist hjá því að lesa að leikkonan var óheppin með foreldra. Karl faðir hennar er fyrrverandi tugthúslimur og móðirin frægðarsjúk. Hún hefði senni- lega getað fengið heppilegri uppalendur. Vegna fréttanna tíðu getum við ekki ann- að en sett okkur inn í líf Lohan-fjölskyld- unnar þótt hún búi ekki beinlínis í næstu götu. Við vitum að tugthúslimurinn heitir Michael og sú fræðgarsjúka Dina. Jafnvel systkini Lindsayar ber á góma í frægðar- sögum af henni, þau Aliana, Dakota og Michael yngri. En Lindsay er ekkert smábarn lengur, orðin 25 ára og ber því ábyrgð á sjálfri sér. Það hefur henni gengið svona og svona, að því er títtnefndir dálkar segja okkur. Af myndum að dæma var ásjóna stúlkunnar falleg og hún prýðilega sköpuð en fölva hefur slegið á fegurðina eftir því sem dóp- og drykkjudögum hefur fjölgað. Ógæfu leikkonunnar eru hins vegar gerð góð skil og því betur sem verr gengur hjá henni. Við komumst ekki hjá því að fræðast um fylliríin, meðferðirnar, skartgripastuld, fangelsun, samfélagsþjónustu og annað Tannholdið er veikt Jónas Haraldsson jonas@ frettatiminn.is HELGARPISTILL S HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA Interstate heilsárs- og vetrardekkin eru umhverfis- vænni kostur. Munstrið inniheldur minna magn af mengandi olíum og uppfyllir evrópska staðla um efnisinnihald hágæða hjólbarða. DUggUvogi 10 RvK AUSTURvegi 52 SeLFoSS piTSTop.iS www HJALLAHRAUNi 4 HFJRAUÐHeLLU 11 HFJ568 2020 SÍMi HeiLSáRS- og veTRARDeKK UMHveRFiSvæNNi KoSTUR FyRiR FÓLKSBÍLA og JeppA viÐ eigUM FLeSTAR STæRÐiR DeKKJA á HAgSTæÐU veRÐi. HAFÐU SAMBAND TiL AÐ Fá veRÐ Í DeKK FyRiR BÍLiNN ÞiNN. 175/65 R14 45.900 kr. 195/65 R15 55.900 kr. 185/65 R14 49.900 kr. 205/55 R16 63.900 kr. 185/70 R14 49.900 kr. 245/75 R16 99.800 kr. 185/65 R15 51.900 kr. 225/45 R17 73.900 kr. DæMi UM FRáBæR TiLBoÐ á iNTeRSTATe HeiLSáRS- og veTRARDeKKJUM veRÐiN eRU FyRiR FJögUR DeKK áSAMT UMFeLgUN Sérstakir gestir verða Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi borgarstjóri og utanríkisráðherra og Guðrún Karlsdóttir, endurhæfingarlæknir á Grensásdeild. Þórir Steingrímssonformaður gefur skýrslu um starfið og á dagskrá verður flutt: Edda Þórarinsdóttir, leikkona, Hjalti Már Þórisson, röntgenlæknir á Landspítala Hjalti Rögnvaldsson, leikari, Þórunn Lárusdóttir, leikkona og söngkona Snorri Petersen, viðskiptafræðingur/gítarleikari Laugardagsfundur HEILAHEILLA verður á Litla sviðinu í Borgarleikhúsinu 5. nóvember n.k. kl.11:00-13:00. Ingibjörg Sólrún www.heilaheill.is Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi borgarstjóri og utanríkisráðherra Guðrún Karlsdóttir, endurhæfingarlæknir á Grensásdeild Önnur mál – Fólkið fær sér kaffi og ræðir saman Dagskrá: það sem fylgir fólki á hraðri leið til andskotans. Fyrr í þessum mánuði fluttu flestir netmiðlar, innlendir jafnt sem erlendir, þau tíðindi að tann- garður gyðjunnar hefði látið á sjá við sukkið. Pabbinn sagði skýringuna krakk- eða amfetamín- neyslu. Ljótt er til að vita og hefðu einhverjir kosið að vera án upplýs- inganna eða þess að sjá tanngarð- inn – en ekki verður við allt ráðið hjá þeim sem fylgjast grannt með. Í kjölfarið fylgdu þau tíðindi að stúlkukindin ætlaði að bera sig fyrir framan myndavélar ljós- myndara tímaritsins Playboy. Bí- lífið kostar sitt og aurar frá Hugh gamla Hefner koma sér væntan- lega vel í harðindunum. Sannast þá hið fornkveðna, að neyðin kennir nakri konu að spinna. Vera kann að þeir sem skoða myndir í því blaði stari á eitthvað annað en tanngarð fyrirsætunnar en auðvitað er skemmtilegra að hann sé ekki átakanlega brunn- inn, hendi það hana að brosa að hugsun sinni meðan á myndatök- unni stendur. Þess var enda ekki langt að bíða að fréttir bærust af Lindsay á tannlæknastofu. Sennilega hefur sá gamli borgað fyrirfram enda dugar ekki að fara auralaus til tannlæknis í Hollywood. Þar eru reikningar háir. Tannlæknir stjörnunnar heitir einmitt Bill, sem vissulega er viðeigandi. Það fylgdi sögnunni, af því að ekkert er okkur óviðkomandi í lífi Lindsayar, að eftir aðgerð Bills verkjaði hana mjög í tannholdið. Te ik ni ng /H ar i Fékkstu ekki Fréttatímann heim? Fréttatímanum er dreift á öll heimili á höfuðborgarsvæðinu. Ef þú fékkst ekki blaðið heim, láttu okkur þá vita með tölvupósti á dreifing@frettatiminn.is Sjáðu blaðið líka á frettatiminn.is 42 viðhorf Helgin 4.-6. nóvember 2011

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.