Fréttatíminn - 04.11.2011, Qupperneq 56
48 heilsa Helgin 4.-6. nóvember 2011
v
Ath. lAgersAlAn er í kAuptúni (gegnt ikeA, við hliðinA á verslunum tekk-compAny og hAbitAt)
Opið virka daga 13–18, laugardaga kl.10–17 og sunnudaga kl. 13–17 Sími 564 4400
lAger
tekk-compAny
sAlA 50
80
% Afsláttur
til
6 kerti
í pk.
357 kr.
kertAluktir
frá
550 kr.
snAgAhillA
7.560 kr.
6 glös í pk.
1.770 kr.
70%
60%
60% 60%
70%
gjAfAbox
1.960 kr.
4 stk.
sAmAn
F
A
B
R
I
K
A
N
Heilsa Bæta þarf aðgengi að hollustuvörum
s jálfsalar eru að mörgu leyti merkileg fyrirbæri og kostir sjálfsala eru margir út frá viðskiptalegu sjónarmiði. Menn uppgötvuðu það til dæmis
fljótlega að sjálfsalinn hefur það fram yfir starfsfólk að
hann biður aldrei um frí, veikist ekki og getur unnið
allan sólarhringinn sleitulaust.
Hann tekur bara staðgreiðslu, lánar ekki, þarf enga
þjálfun og malar gull á meðan eigandinn sefur. Mark-
aðs- og sölukostnaður er enginn. Hvað er hægt að hafa
það betra? Það eina sem eigandinn þarf að gera er að
finna góða staðsetningu. Það var því ekki að undra
að vöxtur á sölu vöru og þjónustu með sjálfsölum hafi
aukist gríðarlega frá því að fyrirbærið kom fram í
London um árið 1880. Í fyrstu voru það póstkort sem
voru seld í sjálfsölum í Bretlandi en í Bandaríkjunum
færðu menn sig fljótlega uppá skaftið og tóku að selja
sælgæti, sígarettur, áfengi, og aðrar neysluvörur sem
höfðu langan líftíma.
Íslenskir spítalasjálfsalar stútfullur af nammi
Nú er svo komið að sjö af hverjum tíu Bandaríkjamönn-
um eiga í viðskiptum við sjálfsala á hverjum einasta degi
ársins. Japanir slá þó öllum þjóðum við en þar er varla
hægt að þverfóta fyrir sjálfsölum og er einn sjálfsali á
hverja 23 íbúa eða um 7 milljónir sjálfsala!
Sé horft til Íslands eru sjálfsalar víða. Það sem vekur
þó sérstaka athygli hér á landi er að sjálfsalar eru helst
staðsettir á spítölum, heilbrigðisstofnunum, framhalds-
skólum, íþróttahúsum, sundlaugum og háskólum! Það
sem meira er að í þeim er ekkert af vörum sem eru holl-
ar og góðar og í fæstum þeirra er hægt að finna það sem
mætti kalla mat í eiginlegum skilningi þess orðs. Það
er eins og það sé lögmál að eingöngu sé hægt að selja
í þeim vörur sem eiga það sammerkt að innihalda litla
næringu, litlar trefjar, en innihalda mikinn sykur, eða
sætuefni og of mikið salt. Oftast er því þannig háttað að
því lengri sem líftími vara er því meira hefur verið bætt
við af rotvarnarefnum og öðrum óæskilegum efnum í
vöruna. Það er nefnilega að koma betur og betur í ljós að
því lengri sem líftími matvörunnar er sem við borðum
þeim mun styttri verður okkar eigin líftími.
Neysla á mat sem hægt er að fá í sjálfsala mun seint
auka hreysti okkar og heilbrigði. Hugsanlega er vöru-
framboð í sjálfsölum hér á landi ein af stóru skýringum
á því af hverju þjóðin hefur fitnað jafn hratt og raun
ber vitni. Það kemur því á óvart að spítalar og skólar,
oftar en ekki í eigu ríkisins, skuli vera samningsaðilar
rekstraraðila sjálfsala sem bjóða svo óhollt vöruframboð
og raun ber vitni fyrir ungt fólk og sjúklinga.
Fordæmi hins opinbera
Allir vilja að börnin okkar borði holla og góða fæðu en
þegar aðgengi að slíkum mat er ekki til staðar þá er
erfitt að krefjast þess. Það eru ungmenni og veikt fólk
sem þurfa virkilega á því að halda að hafa aðgengi að
hollum mat. Hver ber ábyrgð á að þau hafa ekki val og
þau eru tilneydd að borða það sem er auðvelt og hand-
hægt að ná í?
Ríki og sveitarfélög ættu að ganga á undan með góðu
fordæmi og taka inn hollar vörur í sjálfsala á spítölum
og í skólum. Hvað kemur í veg fyrir að hafa sjálfsala
sem selja, hnetur, möndlur, rúsínur, múslí og lífræna
jógúrt, gulrætur, epli, banana, þurrkaða ávexti, hollustu
samlokur, hreinan ávaxtasafa, döðlur, trönuber, fræ og
svo mætti lengi telja?
Það skiptir máli hvað við borðum – já það skiptir öllu
máli. Við þurfum ekki að efast um það öllu lengur. Við
þurfum að bjóða upp á gott aðgengi að góðum mat sem
byggir okkur upp og gerir okkur gott! Þar geta margir
gert miklu betur, líklega kæmi mörgum á óvart þegar
það kemur í ljós að meiri eftirspurn er eftir betri mat en
margir halda.
Hver ætlar að ríða á vaðið og byrja?
Sykurhúðaðir
spítalasjálfsalar
Sjö af hverjum tíu Bandaríkjamönnum eiga í viðskiptum við sjálfsala á hverjum einasta degi
ársins. Japanir slá þó öllum þjóðum við en þar er einn sjálfsali á hverja 23 íbúa.
Hollara að sofa við lágan hita
Veturinn er kominn. Um leið og kólnar
freistast margir til þess að hækka á
ofnum. Vísir menn benda hins vegar á að
hollara sé að sofa við tiltölulega lágan hita
svo menn ættu að hugsa sig um tvisvar
áður en þeir kynda. Jótlandspósturinn
danski hefur það eftir Mikael Rassmussen
svefnsérfræðingi að menn sofi best þegar
hitinn í svefnherberginu sé á milli 13 og 18
gráður. Hætt er við að Íslendingum þyki
þetta heldur kalt enda yfirleitt heitara í
húsum hér en í Danmörku. Hérlendir færu
væntanlega skjálfandi í háttinn í þrettán
gráðunum.
Rassmussen segir æskilegt að kaldara sé
í svefnherbergjum en í öðrum vistarve-
rum. Ástæðan er sú, að hans sögn, að
innra hitastýringarkerfi mannskepnunnar
virkar ekki í svokölluðum REM-svefni,
sem er hinn létti svefn. Margir vakna því
sveittir ef of heitt er í svefnherberginu.
Hann tekur þó fram að þetta sé einstak-
lingsbundið, 13-18 stiga hiti sé aðeins til
viðmiðunar. Kannanir sýni enn fremur
að konur sækjast fremur eftir meiri hita í
svefnherbergjum en karlar.
Dæmigerður sjálfsali á íslenskri heilbrigðisstofnun: Troðfullur af sælgæti. Ljósmynd/Hari
Kristján Vigfússon
kennari í Háskólanum í
Reykjavík
Þórdís sigurðardóttir
félagsfræðingur og
heilsuráðgjafi hjá IIN
www.kolbrunbaldurs.is
Upplýsingavefur um aðgerðir gegn einelti
og
kynferðislegri áreitni.
Í ínum sporumbb
Frjáls og frír adgangur
ad frædslu
og leidbeiningum
höldum saman
Smáralind 201 Kópavogur
Hverafold 1-3 112 Reykjavík 511 1710
svanhvit@svanhvit.is www.svanhvit.is
Opnunartími
Hverafold:
Virka daga 8:00–18:00 og
föstudaga 8:00–18:30
Opnunartími
í Smáralind:
Virka daga 11:00–19:00 og
laugardaga 11:00–18:00
SKYRTUTILBOÐ!
300 kr. skyrtan
– ef komið er með þrjár eða fleiri í einu.