Fréttatíminn - 06.05.2011, Page 44
14 viðhald húsa Helgin 6.-8. maí 2011
S umarið er helsti tími garðverka. Þar sem lóð er sameiginleg, eins og á við um flestar fjöl-býlishúsalóðir, og lóðinni hefur ekki verið skipt
upp eða einstakir hlutar hennar tilheyra tilteknum
eigendum geta vaknað spurningar um hvernig skuli
staðið af umhirðu lóðar og framkvæmdum og hvernig
kostnaður skiptist milli sameigenda.
Umhirða lóðar
Með umhirðu lóðar ER hér átt við garðslátt, trjáklipp-
ingar og snyrtingu, garðúðun og þrif á lóð. Það er
húsfundar að taka ákvörðun um hvernig þessi verk-
efni eru leyst af hendi. Getur einfaldur meirihluti
á löglega boðuðum húsfundi tekið skuldbindandi
ákvörðun um að kaupa slíka vinnu hjá verktaka eða
fela einum eiganda slíkt gegn greiðslu. Sá kostnaður
sem þannig til fellur og húsfundur hefur samþykkt
skiptist jafnt milli allra eigenda.
Í öðrum tilvikum, þegar þessi vinna er ekki keypt
út, getur húsfundur tekið um það ákvörðun hvernig
beri að skipta þessum verkefnum milli íbúanna
sjálfra. Kveða má á um slíka skiptingu í húsreglum,
þ.e. hvaða verk skuli unnin og hverjir annist þau á
hverjum tíma.
Í þeim tilvikum þar sem húsfundur hefur ekki tekið
af skarið um hvernig haga eigi umhirðu lóðar geta
einstakir eigendur annast þau á eigin spýtur. Þeir
eiga þá hins vegar ekki rétt til að krefja aðra eigendur
um að taka þátt í kostnaði sem þá hlýst af ef einhver
er. Rétt er að taka fram að hafi húsfundur samþykkt
að greiða fyrir garðvinnu eru allir eigendur bundnir
af þeirri ákvörðun og eiga einstakir eigendur ekki
rétt á að sinna sínum hluta þessara verka gegn því að
hlutur þeirra í sameiginlegum kostnaði fyrir verkin
lækki.
Lóðarframkvæmdir
Lögum samkvæmt er það sameiginlegs fundar að
taka ákvarðanir er lúta að fyrirkomulagi, skipulagi,
útliti og breytingum á sameiginlegri lóð. Þær ákvarð-
anir sem fela aðeins í sér hreina endurnýjun, svo sem
á gróðri, girðingum og jarðvegi, getur einfaldur meiri-
hluti eigenda tekið bindandi ákvörðun um á húsfundi.
Sama er að segja um fellingu trjáa enda telst verkið
hluti af venjulegri grisjun eða miðar að því að unnt sé
að nýta garðinn með eðlilegum hætti.
Eigi hins vegar að breyta svipmóti lóðar eða
skipulagi frá því sem gert var ráð fyrir í upphafi og
á samþykktum lóðaruppdráttum getur samþykki
allra eigenda eða 2/3 hluta þeirra þurft að koma til
svo ákvörðun teljist löglega bindandi. Sjónarmið um
kostnað, breytt útlit lóðar eða breytta hagnýtingu
hennar auka sjónarmiða um hvað tíðkast í sambæri-
legum húsum ráða því hvort atkvæði aukins meiri-
hluta þurfi að búa að baki ákvörðun. Aðeins í þeim
tilvikum þegar um mjög verulegar breytingar er að
ræða er talið að samþykki allra eigenda sé nauðsyn-
legt.
Sá kostnaður sem til fellur vegna slíkra ákvarðana,
svo sem vegna gróðurs og gróðursetningar, hellu-
lagnar, girðinga, kaup leiktækja eða hönnuðar garðs
skiptist eftir hlutfallstölum íbúða í lóðinni samkvæmt
eignaskiptayfirlýsingu.
Lóðin GarðSláttur, trjáklippinGar oG SnyrtinG
Sumarið er helsti tími garðverka
Það er húsfundar í fjölbýlishúsum að taka ákvörðun um hvernig verkin eru leyst af hendi.
Sinna þarf garðinum, trjáklippingu, garðslætti og þrifum.
A1 Málun ehf. er fyrirtæki sem sérhær sig í öllu
sem við kemur málaraiðninni, s.s. nýmálun, lökkun,
sandspörtlun, málun friðaðra húsa, viðar- og
marmaramálun, endurmálun inni jafnt sem úti.
660 - 1787
A1 Málun
a1malun@a1malun.is
Tilboð eða tímavinna.
Við gerum þér tilboð
að kostnaðarlausu!
Tryggðu betri árangur og njóttu heildar-
lausnar í þínum framkvæmdum
Sperra ehf
Framkvæmdaráðgjöf & almenn byggingaverktaka
Nýbyggingar, breytingar og viðhald
S: 898 8572
sperra@sperra.is
www.sperra.is