Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.05.2011, Blaðsíða 46

Fréttatíminn - 06.05.2011, Blaðsíða 46
16 viðhald húsa Helgin 6.-8. maí 2011 Vont er þeg- ar saman fara sláttu- ofurkapp og della fyrir tækjum og tólum. Teppalagt tækifæri fyrir stigaganga. Verð frá 5.980 kr. per m2 ákomið. Vönduð og slitsterk, þétton teppi sem auðvelt er að þrífa. Ármúla 32 · 108 Reykjavík · Sími 533 5060 · Fax 533 5061 · www.stepp.is Bjóðum heildarlausnir, þegar endurnýja á gólfteppi í stigagöngum í fjölbýlis- og sambýlishúsum. Við mætum og gerum tilboð í efni og vinnu. Aðeins eitt símtal og málið er komið í gang. S te fá n ss o n & S te fá n ss o n E in af plágum sumars og nábýlis eru garðsláttu-menn sem ekki mega grænt strá sjá án þess að ráðast til atlögu við það með stórvirkum gereyðingartólum. Sláttufíkn eða ofvirkni er talsvert útbreidd og klögumál, sem af því spretta nokkuð tíð. Menn verða að gæta hófs og sýna tillitssemi í garðslætti eins og öðrum athöfn- um, sem geta plagað nágranna. En sumir vaxa aldrei úr grasi í því efni. Tækjadella – mengun Vont er þegar saman fara sláttu- ofurkapp og della fyrir tækjum og tólum. Margir karlmenn virðast fá kikk út ú því að djöflast á saklausu grasi með kraftmiklum og afkasta- miklum sláttutólum. Þegar fleiri sláttubersekir eru í námunda hver við annan leysist úr læðingi met- ingur og keppni um hver sé með flottustu, kraftmestu og háværustu tólin og þá er ekki vært fyrir sak- lausa nágranna. Horfa menn fram hjá því að ein skaðræðis sláttu- vél mengar á við tugi eða jafnvel hundruð bíla. Eiturframleiðslan er ótrúleg. Tækjagleðin ber skynsem- ina algjörlega ofurliði. Ljúf og sæl kvöldstund með fínu vélina sem drynur ljúft og karlmannlega spúir eitri, sem bitnar á sláttumann- inum, umhverfi hans, fjölskyldu og nágrönnum í formi hávaða og eiturs. Reglur í útlöndum – grenndar- reglur Í sumum löndum haf verið settar reglur sem takmarka þann tíma sem menn mega slá garðinn sinn og um þau tól sem nota má. Er full  gaRðsláTTuR Sumir vaxa aldrEi úr graSi Hamfarir ofvirkra sláttumanna Sláttufíkn eða ofvirkni er talsvert útbreidd og klögumál, sem af því spretta nokkuð tíð. Menn verða að gæta hófs og sýna tillitssemi í garðslætti eins og öðrum athöfnum, sem geta plagað nágranna. þörf á að setja reglur hér á landi um garðslátt til að fyrir byggja deil- ur og leiðindi. Hér á landi gilda um garðslátt óskráðar reglur grennd- arréttar þar sem umburðalyndi og tillitsemi leikast á. Það er oft erfitt að henda reiður á tilvist og efni slíkra reglna, sem eru nokkuð í lausu lofti og skrifaðar í skýin. Flest grenndarmál eru sprottin af þeim réttarvafa sem leiðir af vönt- un á skráðum og skýrum reglum. Hér vantar almenn grenndarlög. Menn binda vonir við að hinn röggsami um- hverfiráðherra kýli á það mál. Tillitssemi – hagsmunamat Menn verða og eiga vitaskuld að slá garðinn sinn á skikkanlegum tíma sólarhringsins og án óþarfa tilþrifa og djöfulgangs og kosta kapps um að valda nágrönnum sín- um sem minnstu ónæði. Og menn mega alls ekki fara hamförum við slátt á þeim tímum sem raskar nætur- og svefnró fólks í grennd- inni. Það varðar við lögreglusam- þykktir. Þá má kalla til lögreglu. Og menn hafa heldur ekki frítt spil til að láta illum látum við slátt á öðrum tímum. Menn verða að gæta hófs og sýna sanngjarna og eðlilega tillitssemi á öllum tímum. Hagsmunmat er rauði þráðurinn. Mörkin milli athafna og friðar eru hárfín. Smæstu mál geta á auga- bragði orðið að allsherjar báli. skráðar reglur og úrræði skortir Það eru sem sagt engar settar reglur um slátt í þéttbýli. Menn þurfa hins vegar ekki að una því nágrannaeignir séu hagnýttar þannig að þeim sé óhæfilegur bagi af. Það er hins vegar matsatriði hvað er óviðunandi bagi. Menn verða óhjákvæmilega að sætta sig við ónæði að vissu marki í þéttbýli frá nágrannaeign. Það er svo að yfirgangsseggir gefa oft óskráðum reglum langt nef. Þótt réttleysi þeirra sé augljóst þá er gjarnan erfitt að ná lagalega í skottið á þeim með nægilega afgerandi og skjótum hætti. Almenn lagaleg úrræði eru þung í vöfum og kostn- aðarsöm. Í svona málum vantar bagalega einföld, ódýr og skilvirk úrræði til að binda enda á þrætur og leiðrétta misskilning áður en í óefni er komið og smámál verða stór og illvíg. sláttugen og hylli kvenna Því hefur verið haldið fram að sláttufíkn íslenskra sláttumanna sé geirnegld í gen þeirra með þeim hætti að þeim sé ekki sjáfrátt. Þeir séu þrælar gamalla sláttugena sem séu öllu yfirsterkari. Þegar sláttur sé á mönnum séu það skilaboð frá gömlum genum. Í gamla daga þótti það mikið mann- dómsmerki að vera vaskur sláttumaður. Miklir sláttu- menn voru settir á stall og áttu vísa aðdáun og hylli kvenna. Þetta hefur prentast inn í gen manna og lengi lifir í gömlum genum. snorrabúð stekkur En nú er öldin önnur, Snorrabúð stekkur og allt það. Sláttuber- serkir eiga ekki lengur aðdáun og greiða leið í dyngjur kvenna. Önnur gildi hafa tekið yfir í því efni. En frumstæð karlgen hafa ekki náð að tileinka sér nýjar aðferðir í takt við tíman, nýja siði og ný viðhorf. Aumingjans sláttumönnunum er ekki sjálf- rátt. Þeir eru þrælar gena sinna, hlýða kalli þeirra og rjúka út að slá í tíma og ótíma. Öllum til ama og leiðinda og kvenhylli þeirra er nálægt alkuli. Sláttugenin eru hjá sumum öllu yfirsterkari og buga gjörsamlega hin veiku og van- þróuðu gen sem stýra tillitssemi og náungakærleik. Maðurinn með ljáinn Það er spurning hvort ekki eigi að banna ónæðisvaldandi og mengandi sláttutól og löghelga gamla orfið og ljáinn. Þá yrði friðsælt og þjóðlegt í görðum þessa lands. Það myndi vera góð líkamsrækt og gamlar og nýjar sláttuhetjur myndu öðlast til- gang án þess að gera allt vitlaust. Kvenhylli þeirra myndi örugglega ná nýjum hæðum. geitur til gagns og gamans Þeirri hugmynd hefur líka verið hreyft að menn verði sér út um geit til að sjá um grasið. Geitin yrði tjóðruð og þegar hún klárar grasið á einum stað yrði tjóðrið fært á annan og svo koll af kolli. Þetta er umhverf- isvæn, sjálfbær og ódýr aðferð. Geitin er sjálfala, étur grasið og sér um áburðinn líka. Ekkert dýrt eldsneyti, engin mengun og enginn hávaði. Geitin er fínasta þjófavörn og gefur mjólk og ost og svo má í fyllingu tímans éta hana. Allt voða Vinstri grænt og göfugt. Svona fara Færeyingar að og þeir vita hvað þeir syngja. Geitur eru til margs nytsamlegar. Þegar Bill Clinton villtist með orfið sitt í ógöngur hér um árið, hringdi Yasser Arafat til hans og sagði: „Hey Bill, why don‘t you try Goats, they don´t talk“? Síðan hefur flötin við Hvíta húsið verið til fyrirmyndar. Hófs verður að gæta við garðslátt- inn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.