Fréttatíminn - 06.05.2011, Síða 46
16 viðhald húsa Helgin 6.-8. maí 2011
Vont er þeg-
ar saman
fara sláttu-
ofurkapp og
della fyrir
tækjum og
tólum.
Teppalagt
tækifæri
fyrir
stigaganga.
Verð frá 5.980 kr.
per m2 ákomið.
Vönduð og slitsterk,
þétton teppi sem
auðvelt er að þrífa.
Ármúla 32 · 108 Reykjavík · Sími 533 5060 · Fax 533 5061 · www.stepp.is
Bjóðum heildarlausnir, þegar endurnýja á gólfteppi í stigagöngum
í fjölbýlis- og sambýlishúsum. Við mætum og gerum tilboð í efni
og vinnu. Aðeins eitt símtal og málið er komið í gang.
S
te
fá
n
ss
o
n
&
S
te
fá
n
ss
o
n
E in af plágum sumars og nábýlis eru garðsláttu-menn sem ekki mega grænt strá sjá án þess
að ráðast til atlögu við það með
stórvirkum gereyðingartólum.
Sláttufíkn eða ofvirkni er talsvert
útbreidd og klögumál, sem af því
spretta nokkuð tíð. Menn verða
að gæta hófs og sýna tillitssemi í
garðslætti eins og öðrum athöfn-
um, sem geta plagað nágranna.
En sumir vaxa aldrei úr grasi í því
efni.
Tækjadella – mengun
Vont er þegar saman fara sláttu-
ofurkapp og della fyrir tækjum og
tólum. Margir karlmenn virðast fá
kikk út ú því að djöflast á saklausu
grasi með kraftmiklum og afkasta-
miklum sláttutólum. Þegar fleiri
sláttubersekir eru í námunda hver
við annan leysist úr læðingi met-
ingur og keppni um hver sé með
flottustu, kraftmestu og háværustu
tólin og þá er ekki vært fyrir sak-
lausa nágranna. Horfa menn fram
hjá því að ein skaðræðis sláttu-
vél mengar á við tugi eða jafnvel
hundruð bíla. Eiturframleiðslan er
ótrúleg. Tækjagleðin ber skynsem-
ina algjörlega ofurliði. Ljúf og sæl
kvöldstund með fínu vélina sem
drynur ljúft og karlmannlega spúir
eitri, sem bitnar á sláttumann-
inum, umhverfi hans, fjölskyldu
og nágrönnum í formi hávaða og
eiturs.
Reglur í útlöndum – grenndar-
reglur
Í sumum löndum haf verið settar
reglur sem takmarka þann tíma
sem menn mega slá garðinn sinn
og um þau tól sem nota má. Er full
gaRðsláTTuR Sumir vaxa aldrEi úr graSi
Hamfarir ofvirkra sláttumanna
Sláttufíkn eða ofvirkni er talsvert útbreidd og klögumál, sem af því spretta nokkuð tíð. Menn verða að gæta hófs og sýna tillitssemi
í garðslætti eins og öðrum athöfnum, sem geta plagað nágranna.
þörf á að setja reglur hér á landi
um garðslátt til að fyrir byggja deil-
ur og leiðindi. Hér á landi gilda um
garðslátt óskráðar reglur grennd-
arréttar þar sem umburðalyndi
og tillitsemi leikast á. Það er oft
erfitt að henda reiður á tilvist og
efni slíkra reglna, sem eru nokkuð
í lausu lofti og skrifaðar í skýin.
Flest grenndarmál eru sprottin af
þeim réttarvafa sem leiðir af vönt-
un á skráðum og skýrum reglum.
Hér vantar almenn grenndarlög.
Menn
binda
vonir við að
hinn röggsami um-
hverfiráðherra kýli á
það mál.
Tillitssemi – hagsmunamat
Menn verða og eiga vitaskuld að
slá garðinn sinn á skikkanlegum
tíma sólarhringsins og án óþarfa
tilþrifa og djöfulgangs og kosta
kapps um að valda nágrönnum sín-
um sem minnstu ónæði. Og menn
mega alls ekki fara hamförum við
slátt á þeim tímum sem raskar
nætur- og svefnró fólks í grennd-
inni. Það varðar við lögreglusam-
þykktir. Þá má kalla til lögreglu.
Og menn hafa heldur ekki frítt
spil til að láta illum látum við slátt
á öðrum tímum. Menn verða að
gæta hófs og sýna sanngjarna og
eðlilega tillitssemi á öllum tímum.
Hagsmunmat er rauði þráðurinn.
Mörkin milli athafna og friðar eru
hárfín. Smæstu mál geta á auga-
bragði orðið að allsherjar báli.
skráðar reglur og úrræði
skortir
Það eru sem sagt engar settar
reglur um slátt í þéttbýli. Menn
þurfa hins vegar ekki að una því
nágrannaeignir séu hagnýttar
þannig að þeim sé óhæfilegur bagi
af. Það er hins vegar matsatriði
hvað er óviðunandi bagi. Menn
verða óhjákvæmilega að sætta sig
við ónæði að vissu marki í þéttbýli
frá nágrannaeign. Það er svo að
yfirgangsseggir gefa oft óskráðum
reglum langt nef. Þótt réttleysi
þeirra sé augljóst þá er gjarnan
erfitt að ná lagalega í skottið á
þeim með nægilega afgerandi og
skjótum hætti. Almenn lagaleg
úrræði eru þung í vöfum og kostn-
aðarsöm. Í svona málum vantar
bagalega einföld, ódýr og skilvirk
úrræði til að binda enda á þrætur
og leiðrétta misskilning áður en
í óefni er komið og smámál verða
stór og illvíg.
sláttugen og hylli kvenna
Því hefur verið haldið fram að
sláttufíkn íslenskra sláttumanna
sé geirnegld í gen þeirra með þeim
hætti að þeim sé ekki sjáfrátt. Þeir
séu þrælar gamalla sláttugena sem
séu öllu yfirsterkari. Þegar sláttur
sé á mönnum séu það
skilaboð frá gömlum
genum. Í gamla daga
þótti það mikið mann-
dómsmerki að vera vaskur
sláttumaður. Miklir sláttu-
menn voru settir á stall og áttu
vísa aðdáun og hylli kvenna. Þetta
hefur prentast inn í gen manna og
lengi lifir í gömlum genum.
snorrabúð stekkur
En nú er öldin önnur, Snorrabúð
stekkur og allt það. Sláttuber-
serkir eiga ekki lengur aðdáun
og greiða leið í dyngjur kvenna.
Önnur gildi hafa tekið yfir í því
efni. En frumstæð karlgen hafa
ekki náð að tileinka sér nýjar
aðferðir í takt við tíman, nýja
siði og ný viðhorf. Aumingjans
sláttumönnunum er ekki sjálf-
rátt. Þeir eru þrælar gena sinna,
hlýða kalli þeirra og rjúka út að
slá í tíma og ótíma. Öllum til ama
og leiðinda og kvenhylli þeirra er
nálægt alkuli. Sláttugenin eru hjá
sumum öllu yfirsterkari og buga
gjörsamlega hin veiku og van-
þróuðu gen sem stýra tillitssemi
og náungakærleik.
Maðurinn með ljáinn
Það er spurning hvort ekki eigi
að banna ónæðisvaldandi og
mengandi sláttutól og löghelga
gamla orfið og ljáinn. Þá yrði
friðsælt og þjóðlegt í görðum
þessa lands. Það myndi vera góð
líkamsrækt og gamlar og nýjar
sláttuhetjur myndu öðlast til-
gang án þess að gera allt vitlaust.
Kvenhylli þeirra myndi örugglega
ná nýjum hæðum.
geitur til gagns og gamans
Þeirri hugmynd hefur líka verið
hreyft að menn verði sér út um
geit til að sjá um grasið.
Geitin yrði tjóðruð og þegar
hún klárar grasið á einum stað
yrði tjóðrið fært á annan og svo
koll af kolli. Þetta er umhverf-
isvæn, sjálfbær og ódýr aðferð.
Geitin er sjálfala, étur grasið og
sér um áburðinn líka. Ekkert
dýrt eldsneyti, engin mengun og
enginn hávaði. Geitin er fínasta
þjófavörn og gefur mjólk og ost
og svo má í fyllingu tímans éta
hana. Allt voða Vinstri grænt og
göfugt. Svona fara Færeyingar
að og þeir vita hvað þeir syngja.
Geitur eru til margs nytsamlegar.
Þegar Bill Clinton villtist með
orfið sitt í ógöngur hér um árið,
hringdi Yasser Arafat til hans og
sagði: „Hey Bill, why don‘t you
try Goats, they don´t talk“? Síðan
hefur flötin við Hvíta húsið verið
til fyrirmyndar.
Hófs
verður að
gæta við
garðslátt-
inn.