Fréttatíminn - 06.05.2011, Síða 48
18 viðhald húsa Helgin 6.-8. maí 2011
Fólk
elskar
aspirn-
ar sínar
út yfir
gröf og
dauða.
Við bjóðum upp á mikið úrval
af viðhalds- og hreinsiefnum
fyrir parket og flísar.
Parki Interiors • Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • www.Parki.is
H úseigendafélaginu berast margar fyrirspurnir við-víkjandi réttarstöðu og sam-
skipti eigenda aðliggjandi lóða og þá
sér í sér í lagi um aspir og frágang
lóðamörkum.
Grenndarréttur
Þess er fyrst að geta að engin sett
lög eru til um grennd og nábýli og
hvað menn mega og ekki mega
og hvað nágrannar verða að þola.
Nábýlisrétturinn eru ólögfestar
reglur. Ber eiganda að taka sann-
gjarnt og eðlilegt tillit til eigenda
nálægra eigna við beitingu hans.
Eins verður eigandi að umlíða venju-
legar athafnir og hagnýtingu granna
þótt röskun, truflun og ónæðið geti
fylgt. Þegar metið er hvort athafnir
fasteignareiganda séu leyfilegar eða
gangi um of á rétt granna er byggt á
hagsmunamati. Annars vegar réttur
granna til að nýta eign sína á þann
veg sem honum er hagfelldast og
hugnast best. Hins vegar er réttur
granna til að nýta sínar eignir í friði
og án truflunar og óþæginda. Meg-
inreglan er sú, að menn þurfi ekki að
hlíta því, að nágrannaeignir séu hag-
nýttar þannig að þeim sé óhæfilegur
bagi af. Það er hins vegar matsatriði
hvað er óhæfilegur bagi og verður
að taka tillit til atvika og aðstæðna.
Það er ljóst að menn verða að sætta
sig við óþægindi frá nágrannaeign.
Það er hins vegar álitamál hvenær
komið er út fyrir þau mörk. Það er
ennfremur meginreglan að ekki sé
unnt að taka tillit til sérstakrar við-
kvæmni granneigna eða eigenda
þegar mörkin eru dregin.
Aspir eru ört vaxandi vandamál
Það er gömul saga og ný að hávaxin
tré geta verið einum til yndisauka en
öðrum til baga. Mikil tré geta dags-
ljósi í dimmu breytt. Það eru aðal-
lega aspir sem eru til vandræða og
eru með sanni ört vaxandi vandmál.
Þær vaxa hratt og breiða mikið úr
sér bæði ofan- og neðanjarðar. Þær
eru óhemju duglegar og rótarkerfi
þeirra er með eindæmum öflugt.
Þær byrgja nágrönnum birtu og
útsýn og skemma stéttar, malbik og
lagnir og jafnvel húsin. Þær rispa
bíla grannans og gera engan grein-
amun ryðguðum Lödum og dem-
antsvörtum glæsijeppum.
Ástir manna og aspa
Fólki elskar aspirnar sínar út yfir
gröf og dauða. Þær vaxa sem ör-
skot, eru beinvaxnar, háar og tígu-
legar meðan önnur tré hrekjast flöt
í hnjáhæð. Miklar tilfinningar eru
í spilinu og deilur vegna aspa verða
því oft mjög hatrammar og öfgafull-
ar. Nokkur dómsmál hafa sprottið af
öspum og hafa aspareigendur verið
dæmdir til að fella tré sem hafa valið
nágranna óþægindum eða tjóni.
Í sumum löndum hafa aspir verið
bannaðar í húsagörðum í þéttbýli.
Hvergi nema hér eru þær notaðar
í limgerði. Sem slíkar eru þær til
vandræða en þær eru til gagns og
prýði þar sem þær hafa vaxtarrými.
Aspir ganga af göflum
Nú standa aspirnar naktar, frið-
sælar og meinleysið uppmálað en
með vorinu leysast þær úr læðingi,
tryllast og vígbúast og fara mikinn
í vexti og laufskrúða og ræturnar
leggjast í neðanjarðarstarfsemi
og skemmdaverk á öllu sem fyrir
verður, s.s. lögnum og stéttum.
Aspir verða víst ekki gamlar af trjám
að vera. Sagt er að þær verði 40 – 50
ára og þegar þær koma að fótum eða
öllu heldur rótum fram þá renni á
þær stjórnlaust æxlunaræði og þær
vaxi villt og galið út og suður og eiri
engu. Þannig er stóratlaga aspanna
yfirvofandi. Ætli næsta ár verði ekki
“Ár aspanna”, svo “Aspirnar snúa
aftur”, síðan ”Hefnd aspanna”. Þetta
er hrollvekjandi framtíðarsýn.
Grenndarreglur um lóðamörk
Eigendum samliggjandi lóða ber
skylda til að standa saman að frá-
gangi á lóðarmörkum. Skylda í því
efni er rík en nær þó ekki lengra en
til að girða og afmarka af lóðir og til
tilfæringa og ráðstafanna til að koma
í veg fyrir tjón, hættu, vansa eða
óprýði. Ef annar hvor eigenda vill af
einhverjum ástæðum ganga lengra
en hóflegt og venjulegt getur talist
þá getur hann almennt ekki knúið
það fram með lagalegum úrræðum
og fengið hinn eigandann dæmdan
til að taka þátt í kostnaðinum.
Jafnskiptur kostnaðar –
Undantekning
Það er meginregla að kostnaður við
frágang á lóðarmörkum skiptist að
jöfnu á eigendur samliggjandi lóða.
Frá þessari meginreglu er veigamik-
il undantekning þegar svo háttar að
lóðir eru misháar og gera þarf ráð-
stafanir og tilfæringar vegna þess
til að vernda þá lægri fyrir jarðvegs-
skriði, vatni og þess háttar, frá þeirri
hærri. Þegar svo stendur á hvílir
skylda til fyrirbyggjandi aðgerða
og ráðstafana á þeim sem hærri
lóðina á og verður hann einn að bera
kostnaðinn af því nema um annað sé
samið. Engu að síður verður hann að
hafa samráð um útfærslu og frágang
við eiganda neðri lóðarinnar. Þá er
líka ljóst að mannvirki og tilfæringar
í þessu skyni eiga vitaskuld að vera
inn á lóð þess sem þessi skylda
hvílir á.
Slysagildrur
Þá hvílir rík og fortakslaus skylda
á lóðareiganda til að gera tafar-
laust ráðstafanir til að girða fyrir
slysagildrur og fyrirbyggja hættu á
slysum og tjóni á lóð sinni og þá ekki
síst á lóðamörkum. Á það ekki síst
við þegar hætta steðjar að börnum
og óvitum. Einnig má hér um vísa til
reglna skaðabótaréttar og bygginga-
reglugerðar. Getur eigandi bakað
sér bæði skaðabóta- og refsiábyrgð
ef hann vanrækir þessar skyldur
sínar og lætur reka á reiðanum með
úrbætur.
GArðtré AspirnAr ört vAxAndi vAndAmál
Ófriður í grennd – aspir í útrás og grannaglíma
Nú standa aspirnar naktar, friðsælar og meinleysið uppmálað en með vorinu leysast þær úr læðingi, tryllast og vígbúast og fara mikinn
í vexti og laufskrúða og ræturnar leggjast í neðanjarðarstarfsemi og skemmdaverk á öllu sem fyrir verður.
Byggingarreglu-
gerð og samþykkt
um friðun trjáa í
Reykjavík
n Leita skal samþykkis
byggingarnefndar á gerð
og frágangi girðingar ef
hún er hærri en 180 cm.
n Girðing á mörkum lóða
er almennt háð samþykki
beggja eigenda.
n Tré á lóðamörkum
skulu ekki verða hærri en
180 cm. nema um annað
sé samið.
n Ekki má planta
hávöxnum trjátegundum
nær lóðamörkum en 300
cm.
n Ef girðing er óþörf eða
til lýta getur byggingar-
nefnd lagt bann við henni.
n Lóðareiganda er skylt
að halda vexti trjáa og
runna á lóð sinni í skefjum
og innan lóðarmarka.
n Lóðaeiganda er skylt
að gera ráðstafanir til að
yfirborðsvatn af lóð hans
valdi ekki tjóni eða óþæg-
indum á nágrannalóð.
n Óheimilt er að fella tré
sem eru 8 m eða hærri og
eldri en 60 ára nema með
að fengnu leyfi garðyrkju-
stjóra.
Aspir eru umdeild tré í görðum þéttbýlisins. Sumir elska þær en aðrir leggja á þær fæð.
F asteignakerfið er öflugt tölvukerfi á netinu, fyrir fasteigna-eigendur og húsfélög, sem heldur utan um rekstur fasteigna. Í Fasteignakerfinu eru geymdar upplýsingar um fasteignina,
svo sem um hönnuði, byggingarstjóra og meistara hússins, hvenær
það var byggt og úr hvaða byggingarefnum og teikningar hússins.
Þar eru upplýsingar um rekstur fasteignarinna, eigendur, stjórn,
greiðendur gjalda, upphæðir og fundargerðir. Notendur geta haldið
utan um viðhald eignarinnar, gert staðlaða kostnaðaráætlun vegna
viðhalds eða framkvæmda og þá með hjálp BL-kerfisins. Fasteigna-
kerfið geymir líka samþykktir húsfélagsins, húsreglur og eigna-
skiptayfirlýsingar og fleira.
Heildarkerfi og auðvelt í notkun
Fasteignakerfið nær til nánast allra þátta í rekstri fasteigna og um-
sjónar með þeim. Notandinn þarf ekki á möppum að halda eða
öðrum hliðargögnum og þegar nýr aðili tekur við rekstri fasteignar-
innar hefur hann öll gögn hennar uppfærð og aðgengileg.
Með kerfinu fylgja nákvæmar leiðbeiningar fyrir notendur, þannig
að þeir geta nýtt sér kerfið þó að þeir séu ekki sérfræðingar í slík-
um rekstri eða byggingarmálefnum almennt. Leiðbeiningar þessar
eru annars vegar heildarleiðbeiningar, þar sem farið er yfir uppsetn-
ingu og notkun kerfisins lið fyrir lið, og hins vegar styttri leiðbein-
ingar á einstökum síðum þar sem það er talið gagnast notendum.
K
Y
N
N
IN
G
KYNNING
Fasteignakerfið
Heildarkerfi til varðveislu upplýsinga og til að halda utan um
rekstur fasteigna.