Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.05.2011, Side 52

Fréttatíminn - 06.05.2011, Side 52
32 viðhorf Helgin 6.-8. maí 2011 Austurströnd 3, 170 Seltjarnarnesi. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jón Kaldal kaldal@frettatiminn.is Framkvæmda- stjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is Fréttastjóri: Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettatiminn.is Ritstjórnarfulltrúi: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is. Auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti. Stundum er það þannig að tiltölulega mein- lausar fyrirspurnir fá nýtt samhengi og aukið vægi þegar viðbrögðin við þeim eru einkennileg. Gott dæmi af þessum toga eru svör Sigmundar Davíðs Gunnlaugs- sonar, formanns Framsóknarflokksins, við beiðni Fréttatímans um skriflega heimild til að fá upplýsingar um námsferil hans við Oxford-háskóla. Samkvæmt breskum pers- ónuverndarlögum þarf slík heimild að liggja fyrir áður en skólayfirvöld mega afhenda þessi gögn um fyrrum nem- endur. Ástæðan fyrir ósk Frétta- tímans er misræmi í upplýs- ingum sem Sigmundur Davíð hefur veitt um menntun sína á undanförnum árum. Í viðtali við Morgunblaðið í ársbyrjun 2009 sagðist hann til dæmis hafa lokið við að skrifa doktorsritgerð í skipulagshag- fræði við Oxford-háskóla og biði þess eins að hafa tíma til að verja hana. Á Alþingis- vefnum er hann sagður með framhaldsnám í hagfræði og stjórnmálafræði við sama skóla og á Facebook-síðu sinni skráir Sig- mundur Davíð sig sem skipulagshagfræð- ing með menntun í hagfræði og hagrænni landafræði frá Oxford-háskóla. Í ljósi þess hversu margsaga Sigmundur Davíð hefur orðið, hafði Fréttatíminn hug á að fá úr því skorið hvernig í pottinn væri búið beint frá skólastofnuninni í Oxford. Hófst þá fjörið. Þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir, símtöl og tölvupósta kaus Sigmundur Davíð að hafa að engu erindi Fréttatímans. Eftir margra daga árangurslausar tilraunir til að fá svör var því birt frétt um málið. En eins og gefur að skilja án skýringa frá Sig- mundi. Nema þá brá svo við að sama dag og fréttin birtist barst yfirlýsing frá honum þar sem umfjöllun blaðsins var fordæmd. Engar skýringar voru hins vegar gefnar á misræminu og að sama skapi var beiðni Fréttatímans um heimild til upplýsingaöfl- unar látið ósvarað. Og þar með varð málið fyrst forvitnilegt fyrir alvöru. Viðbrögðin voru orðin merki- legri en fyrirspurnin. Að sjálfsögðu sættir enginn fjölmiðill með sjálfsvirðingu sig við að stjórnmála- menn, eða aðrir þátttakendur í opinberum störfum, handvelji sjálfir þær spurningar sem þeir kjósa að svara og hverjum ekki. Fréttatíminn ítrekaði því óskina til Sig- mundar um að fá umbeðna heimild. Því hafnaði hann loks tæpum þremur vikum eftir að hún var lögð fram. Staðan er því sú nú að um það bil mánuði eftir að Fréttatíminn óskaði eftir heimild Sigmundar til að afla staðfestra upplýsinga um námsferil hans, er enn með öllu óljóst hvað er rétt af því sem hann hefur sjálfur sagt um þann feril. Nú getur verið að Sigmundi Davíð sé uppsigað við Fréttatímann og vilji af þeim sökum ekki veita blaðinu þessa heimild. Honum er þá í lófa lagið að veita öðrum fjölmiðli leyfið. Það hlýtur að vera honum í hag að hið rétta komi fram. Formaður Framsóknarflokksins og Fréttatíminn Viðbrögðin merkilegri en fyrirspurnin Jón Kaldal kaldal@frettatiminn.is F Að sjálfsögðu sættir enginn fjölmiðill með sjálfsvirðingu sig við að stjórnmálamenn, eða aðrir þátttakendur í opinberum störfum, hand- velji sjálfir þær spurningar sem þeir kjósa að svara og hverjum ekki.                                                   ­ € ‚ƒ   „   …  † ‡   ˆ   ‰   Š    Š‹ ‚   Œ    Ž‘   Þ að er fögur og göf-ug hugsjón að efla samhug og metn- að með þjóð sinni, sjálfs- traust og stolt yfir því sem vel er gert og skarar fram úr í menningu, þjóð- háttum og arfi. Það er illt og ómannlegt að tengja þessa viðleitni við til- hæfulausar árásir á aðra, hatur eða fyrirlitningu í garð annarra samfélaga, kynþátta eða menningar- svæða. Hið fyrrnefnda er farsæl og framsækin stefna, en hið síðarnefnda er ótti, vanmetakennd og flótti. Hið fyrrnefnda er eðlileg þjóðerniskennd og þjóðhyggja, en hið síðarnefnda þjóðernisöfgar og ofstæki. Því miður var þessu öllu snúið skakkt í greinum í Fréttatímanum 29. apríl síðastliðinn. Í grein Gunn- ars Smára Egilssonar á matarsíðu blaðsins um „þjóðernishyggju“ var öllu hrært saman í misskilningi og hroka. Slíkt verður að leiðrétta. Þekktur er munurinn á borgaralegri frjálslyndisstefnu og fasisma, á lýð- ræðisjafnaðarstefnu og stalínisma. En sambærilegur munur er á hóf- samri þjóðhyggju (nationalliberal- isme) og hrottahreyfingum þjóðern- isöfgamanna. Á því leikur enginn vafi hvaðan leiðtogar Íslendinga fengu hug- myndir sínar um þjóðfrelsi og sjálf- stæðisbaráttu. Þannig segir Jón Sigurðsson forseti í grein í danska blaðinu Fædrelandet 1. febrúar 1870: „... min skole ligger meget mere hos det danske nationale Parti. Jeg gaar stadig ud fra det samme prin- cip som dette og antager at enhver frisindet dansk mand, og da navn- lig enhver National-Liberal, vil være med til at indrømme os Islændere den samme nationale og politiske ret ...“ Orðanotkun er að vísu óljós í öllum þessum efnum. Þannig leiddi Tomas Masaryk, þjóðhetja Tékka, mannúðlegan, hófsaman og lýðræð- islegan stjórnmálaflokk sem bar nafnið Ceská strana národné soci- álni, en þetta heiti er beint þýtt: „tékkneski flokkur þjóðernisjafn- aðarmanna“. Þýsku af- bökunina þekkja allir. Það er einnig kol- rangt að álykta að allir þjóðhyggjumenn hljóti að vera einangrunar- sinnar í menningar- og viðskiptamálum. Ein- angrunarstefna er ein- mitt ein mynd ótta, van- metakenndar og flótta. Þjóð hörfar ekki frá samskiptum eða viðskiptum ef hún hefur eðlilegt sjálfstraust, traustar eiginforsendur og manneskjulegan metnað til árangurs í drengilegum leik með öðrum. Sama á við um af- stöðuna til Evrópusambandsins og hugsanlegrar aðildar að því. ESB er flókin málamiðlun með marghliða tilliti til aðstæðna og óska þjóðanna. Þjóðhyggjumenn smáþjóða um alla Evrópu eru áhugasamir þátttakend- ur í stofnunum ESB. Á þeim vett- vangi er sífellt leitað sameiginlegra lausna í áföngum, eins og vandræði ESB í gjaldeyris- og bankamálum sýna svo ljóslega. Þess má minnast að það tók Bandaríkjamenn um 150 ár að koma varanlegu lagi á peninga- mál sín. Þjóðin er eðlileg, lífræn og mann- eskjuleg samfélagseining og sam- félagsheild. Þróun í samskiptum þjóða, menningarsvæði, alþjóðavæð- ing og viðskiptaheildir breyta engu um þetta. Sérhver þjóð þarf á því að halda að eiga sér arf og stofnanir, minningar og markmið sem vekja henni stolt og metnað. Þjóðin á rétt og kröfu á slíku. En allt er þetta líka misnotað stundum. Þá grípa óvand- aðir menn til pólitískra fánahyllinga í sjálfhverfri þörf fyrir dýrð og hóp- sefjun á háværum flokksþingum. Um það eru dæmin bæði gömul og ný. En slíkt réttlætir ekki útúrsnún- ingana sem lesa mátti í Fréttatím- anum fyrir skemmstu. Íslendingar þurfa einmitt um þessar mundir vænan skammt af heilbrigðri þjóð- hyggju. Athugasemdir við grein Gunnars Smára Þjóðhyggja og þjóðerniskennd Jón Sigurðsson lektor við HR H inn 19. apríl síðastliðinn komst ríkissaksóknari að þeirri niður-stöðu að starfsmenn lögreglu- stjórans á Suðurnesjum hefðu ekki gerst sekir um refsiverða háttsemi þegar þeir létu ógert að upplýsa verj- endur tveggja sakborninga, sem sátu í gæsluvarðhaldi vegna meints fíkni- efnainnflutnings, um tilvist matsgerðar Háskóla Íslands, dags. 7. janúar 2010. Í matsgerðinni kom fram að efnin, sem flutt voru til landsins, teldust ekki vera ólögleg fíkniefni samkvæmt íslenskum lögum. Starfsmenn lögreglustjórans á Suður- nesjum létu það sömuleiðis ógert að upplýsa Héraðsdóm Reykjaness um tilvist matsgerðarinnar við gæsluvarð- haldsfyrirtöku yfir öðrum mannanna 19. janúar 2010. Þegar af þeirri ástæðu kom ekki til skoðunar hjá dóminum hvort hafna bæri gæsluvarðhalds- kröfunni þar sem ekki væri um ólögleg fíkniefni að ræða. Báðir sakborningar voru síðar sýknaðir í sakamáli Héraðs- dóms Reykjaness nr. 464/2010 á grundvelli niðurstöðu matsgerðar Háskóla Íslands. Í niðurstöðu ríkissaksóknara kemur fram að lög- reglustjórinn á Suðurnesjum hafi upplýst ríkissaksókn- ara um niðurstöður matsgerðar Háskóla Íslands sama dag og hún barst lögreglustjóra, 7. janúar 2010. Það virðist því sem ríkissaksóknari hafi verið þátttakandi í því að halda matsgerðinni leyndri fyrir Héraðsdómi Reykjaness og verjendum sakborninga í málinu. Niður- staða ríkissaksóknara um refsilausa háttsemi starfs- manna lögreglustjórans á Suðurnesjum þarf því ekki að koma á óvart. Hún vekur hins vegar spurningar sem mikilvægt er að ríkissaksóknari og innanríkisráðherra svari: 1. Er ásættanlegt í réttarríki að ákæru- valdið haldi mikilvægum gögnum, sem sanna refsileysi verknaðar sakborninga, leyndum fyrir dómstólum og verjendum við gæsluvarðhaldsfyrirtökur? 2. Geta dómstólar tekið upplýsta og rétta afstöðu til gæsluvarðhaldskrafna ákæruvaldsins ef grundvallargögnum, sem sanna sakleysi sakborninga, er leynt fyrir dómstólnum eða gögnin falin í miklum skjalafjölda málsins við gæslu- varðhaldsfyrirtökuna? 3. Er verjendum mögulegt að rækja lögboðnar starfsskyldur sínar sam- kvæmt lögum um meðferð sakamála og lögmannalögum við gæsluvarðhalds- fyrirtökur þegar mikilvægum gögnum, sem sýna ótvírætt fram á refsileysi verknaðar umbjóðanda þeirra, er leynt fyrir verjendunum? 4. Er samrýmanlegt 37. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og al- þjóðlegum skuldbindingum um réttláta málsmeðferð, að ákæruvaldið leyni verjendur grund- vallargögnum, sem sanna sakleysi umbjóðenda þeirra, við gæsluvarðhaldsfyrirtökur í því skyni að fá dómstóla til að samþykkja gæsluvarðhaldið? 5. Er ríkissaksóknari hæfur til að fara með rannsókn sakamála sem varða nána samstarfsaðila ríkissak- sóknara, s.s. lögreglustjóraembættin? 6. Er ríkissaksóknari hæfur til að fara með rannsókn sakamáls þar sem sakarefnið kann að varða embætti ríkissaksóknara sjálfs, s.s. sökum þess að ríkis- saksóknari hafi tekið þátt eða haft vitneskju um hina refsiverðu háttsemi sem er til rannsóknar? Gögnum leynt Spurningar til ríkissaksóknara og ráðherra Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður og verjandi annars sakborninganna sem sýknaðir voru af öllum kröfum ákæruvaldsins í saka- máli Héraðsdóms Reykjaness nr. 464/2010.

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.