Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.05.2011, Side 74

Fréttatíminn - 06.05.2011, Side 74
Helgin 6.-8. maí 2011 NORRÆNA HÚSIÐ BÝÐUR ÞÉR Á LAUGARDAGINN 7. MAÍ FRÁ KL. 13 TIL 17 Handverksmarka ður List án landamær a Krítar og sápukúlur Bókamarka ður Hjólafærni ANNAÐ Á DAGSKRÁ: Blómabreiða Ásgarðs / Hljómsveitin Silfurberg / Kynning á friðlandinu í Vatnsmýrinni / Hljóðverkið Áslaug syngur / Finnskar eldfjallamyndir / Stúlknakór Reykjavíkur / Kvintett frá Skólahljómsveit Kópavogs / Íslandshestar / Sandkastalakeppni / Skátarnir Ægisbúar / Leikir og fjör Slipperyterrain Lifandi tónlist Flugdreka r (taktu d rekann þin n m eð ) frá bókasafni NH Opnun á sýningunn i Pylsur á grilli kaffisala hollustunam mi // KYNNINGARFUNDUR Mánudaginn 9.maí Kl. 19 fyrir 10-15 ára Kl.20 fyrir 16-25 ára Ármúli 11, 3. hæð //NÁMSKEIÐ FYRIR 10-12 ÁRA 14.júní – alla virka daga kl.9-13 //NÁMSKEIÐ FYRIR 13-15 ÁRA 24.maí - þriðjudaga og fimmtudaga kl.17-21 //NÁMSKEIÐ FYRIR 16-20 ÁRA 23.maí – mánudaga og miðvikudaga kl.18-22 //NÁMSKEIÐ FYRIR 21-25 ÁRA 23.maí – mánudaga og miðvikudaga kl.18-22 Vornámskeiðin eru að hefjast Æ skuvinkonurnar Dóra Jóhannsdóttir, Mar-grét Bjarnadóttir og Álfrún stofnuðu leik-hópinn „Ég og vinir mínir“ með vinum sínum, mökum og frændum. Samstarfið leiddi til verksins Húmanímal sem sýnt var í Hafnarfjarðarleikhúsinu fyrir tveimur árum og hlaut meðal annars níu Grímutilnefn- ingar. „Við tengjumst öll með einhverjum hætti og erum mikil klíka. Við erum ekkert að fela það,“ segir Álf- rún um hópinn, en vinkonurnar vildu skapa sér verk- efni sem þær gætu unnið að með vinum sínum og fólki sem þeim þótti skemmtilegt. „Það myndast mikil orka því við höfum gaman af því að vinna saman en fyrir vikið getum við líka rifist eins og hundar og kettir.“ Verði þér að góðu er, líkt og Húmanímal, eins konar dansleik- hús sem er líkamlega krefjandi fyrir alla sem að sýningunni koma. Í henni er félagsveran tekin fyrir og dregnar upp ýmsar birtingarmyndir þess hvernig fólk vill koma fyrir og hvernig því líður í samkvæmi og innan um annað fólk. „Við kryfjum samkvæmisveruna og bregðum upp myndum af ólíkum aðstæðum. Sagan er ekki línuleg heldur er hoppað úr einni sítúasjón í aðra. Þetta er eigin- lega þversnið að góðu partíi.“ Álfrún er, líkt og fleiri leikarar í verkinu, mikill dansari en hún gengur með sitt annað barn og er komin rúma sjö mánuði á leið. „Verkið er samið í spuna og ég vann þetta út frá ástandi mínu. Það er oft erfitt fyrir leikkonur að fá vinnu þegar þær eru komnar langt á leið en minn karakter er bara óléttur og þarf ekkert að fela það. Sem betur fer er ég í góðu líkamlegu formi. Þegar sýningum lýkur verð ég gengin rúmlega átta mánuði með þannig að barnið má ekki koma mikið fyrir tímann.“ Leikararnir eru þó misreyndir í danslistinni en það segir Álfrún ekki koma að sök. „Við reynum að virkja það sem hver og einn hefur til hins ýtrasta. Þá skiptir ekki máli hvort það eru fágaðar balletthreyfingar eða mikill frumkraftur, svo lengi sem fólk gefur sig allt í þetta.“ thora@frettatiminn.is  ég og vinir mínir gott partí um helgina Dansar á steypirnum Álfrún Örnólfsdóttir er meðal leikenda í dansleikhúsinu Verði þér að góðu sem frumsýnt verður í Þjóðleikhúsinu á morgun, laugardag. Álfrún er þaulvanur dansari og vílar ekki fyrir sér að koma fram í verkinu ólétt á áttunda mánuði. Ég og vinir mínir „Við tengjumst öll með einhverjum hætti og erum mikil klíka.“ Á sýningunni gefst fólki kostur á að skyggnast inn í hugmyndaheim og feril Einars sem á sér ekki samsvörun í verkum annars íslensks arkitekts. Hugvit Einars Sýningin Hugvit verður opnuð í Hafnarborg á morgun, laugardag, en þar verða sýndar teikningar, líkön, hönnunarmunir og heimildir um byggingar sem Einar Þorsteinn Ásgeirsson, hönnuður og arkitekt, hefur unnið á síðustu áratugum. Áratuga rannsóknir og uppgötvanir Einars á sviði flatar- og rúmfræði skipa honum á bekk með frumlegustu hugsuðum þjóðarinnar enda endurspegla verk hans mikla þekkingu og einstaka sýn á lögmál náttúrunnar og hvernig beita megi þessum lög- málum í arkitektúr, hönnun og myndlist. Einar er sjálfsagt þekktastur fyrir hönnun kúluhúsa til íbúðar og fleiri nota, sem meðal annars risu á Ísafirði, við Hellu, Kópasker og í Hafnarfirði. Hann hefur undan- farin rúman áratug búið í Berlín þar sem hann einbeitir sér að skrifum og rannsóknum á þrívídd. Hann hefur unnið að mörgum verkefnum með myndlistarmanninum Ólafi Elíassyni og eiga þeir að baki langt og farsælt samstarf. Sýningin verður opnuð í Hafnarborg klukkan 15. M yn d/ G od du r

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.