Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.05.2011, Side 76

Fréttatíminn - 06.05.2011, Side 76
56 dægurmál Helgin 6.-8. maí 2011 Warhol í Arionbanka A ndy Warhol er í hópi þeirra listamanna sem eiga málverk af eldgosum á sýningu sem opnuð var í Ar- ion banka í Borgartúni í gær, fimmtudag. Bankinn sýnir um 20 verk frá Eldfjallasafninu í Stykkishólmi og forstöðu- maður þess, Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur, opnaði sýninguna með fyrirlestri þar sem hann ræddi áhrif stórra eldgosa á viðskipti og efnahag með listrænu ívafi. Við þekkjum áhrifin frá Eyjafjallajökli sem tengjast því að það var ákveðið að loka fyrir flug yfir Norður-Atlants- hafið sem var náttúrlega mjög umdeilt,“ segir Haraldur og bendir á að gos eins og í Eyjafjallajökli séu mjög tíð á Kyrrahafssvæðinu og þar hafi þetta ekkert verið að stoppa flug. „Það er bara á Norður-Atlantshafi sem menn eru ekkert vanir þessu. Júrókontról þarna í Brussel sleppti sér alveg.“ Haraldur talaði einnig um stór sprengigos og áhrif þeirra sem geta náð umhverfis jörðina. „Slík gos hafa áhrif á loftslag, landbúnað, samgöngur, símasamband, gervihnetti og allt kerfið í okkar tæknivædda þjóðfélagi. Við erum miklu við- kvæmari fyrir þessu í dag. Við þolum ekki svona. Það var öðru- vísi 1815 þegar allir voru í sveitinni og hver sá um sig. Núna ráðum við ekkert við svona lagað og höfum eiginlega ekkert gert ráð fyrir því. Eyja- fjallajökull er svona smá æfing og kannski þörf æfing að því leyti.“ „Þetta hefur gengið vel og mætingin á fyrirlestrana hefur verið mjög góð,“ segir Klara Stephensen hjá Arion banka en bankinn hefur staðið fyrir listaverkasýningum og fyrirlestrum þeim tengdum. „Við leggjum áherslu á að þetta er ekki listasafn og ekki gallerí. Við erum einungis að kynna myndlist fyrir okkar fólki og viðskiptavinum,“ segir Klara og bætir því við að ýmislegt sé fram undan og meðal annars sé verið að íhuga að sýna verk í eigu bankans. Fjörið byrjar klukkan 13 á morgun, laugardag, og blöðin verða gefin á meðan birgðir endast. Það ætti enginn að fara tómhentur heim en reynslan sýnir þó að það er gott að mæta tímanlega. Það myndast að öllu jöfnu ógnarlöng röð og mikil stemning ríkir yfir daginn. N exus heldur Ókeypis mynda-sögudaginn hátíðlegan á morgun, laugardag, þegar sérútgefin myndasögublöð frá ýmsum útgefendum verða gefin í portinu fyrir framan verslunina á Hverfisgötu. Þúsundir mynda- söguverslana úti um allan heim gefa myndasögublöð á þessum degi sem nú er haldinn hátíðlegur í tíunda sinn. Þórhalli Björgvinssyni, deildar- stjóra myndasögudeildar Nexus, telst til að eitthvað á bilinu 1.200- 1.300 manns hafi mætt í verslunina síðustu þrjú árin til að fá gefins myndasögur. Íslenskar myndasögur verða áberandi að þessu sinni en Nexus og Ókei-bækur gefa blaðið „ÓkeiPiss“, „Neo Blek“ -tímaritið gefur blað til að kynna útgáfuna og „Aðsvif“, nýtt myndasögublað, lítur dagsins ljós en að því standa tíu myndlistarnemar. Þá verður tímaritið „Furðusögur“ á staðnum til að kynna útgáfu sína. „Þetta gekk alveg vonum framar ef ég á að segja eins og er,“ segir Hugleikur Dagsson, myndasögu- maður og prímus mótor Ókei- bóka en fyrr á árinu efndi hann til myndasögusamkeppni með það fyrir augum að fá nýja höfunda til að stíga fram í blaðinu Ókei-Piss sem hann ákvað að gefa út í tilefni myndasögudagsins. „Ég hélt fyrst að það yrði erfitt að fylla blaðið og að maður yrði að teikna mikið í það sjálfur en á síð- ustu dögunum fyrir skilafrest byrj- aði bara að rigna inn eðalsögum. Sem gerði það að verkum að það var nú bara frekar erfitt að velja topp fimm. Og það eru bara nokkrar helvíti góðar sem duttu út og ég vonast til að þeir aðilar sendi aftur inn á næsta ári en ég ætla að reyna að hafa þetta árlegan viðburð.“ Alþjóðleg árshátíð myndasögunörda „Listaverkin eru frá ýmsum löndum og ýmsum tímum. Frá 17. öld til okkar daga og þar á meðal eitt eftir Andy Warhol. Ég ræddi líka um tengslin milli menn- ingarinnar, listarinnar og eldgosanna,“ segir Haraldur Sigurðsson sem skoðar eldgos frá öllum hliðum. M ick Haller er sjálfsöruggur, orðhvatur lögmaður sem sérhæfir sig í að verja glæpahyski og hikar ekki við að fara á svig við reglur og góða siði, verði það honum til fjár eða framdráttar. Þar sem Haller er á stöðugum þeytingi milli dómshúsa og skjólstæðinga notar hann aftursætið í Lincoln-bif- reið sinni, sem gamall skjólstæð- ingur ekur, sem skrifstofu. Haller telur sig heldur betur hafa komist í feitt þegar moldríkur ungur glaumgosi biður hann að verja sig en sá er ákærður fyrir að hafa misþyrmt ungri konu harka- lega í misheppnaðri tilraun til að nauðga henni og drepa. Haller gengur vasklega fram í vörninni, eins og við var að búast, og lætur efasemdir um sekt eða sakleysi ekki angra sig fyrr en skjólstæð- ingurinn fer að sýna á sér verulega skuggalega hliðar. Þá hittir skratt- inn ömmu sína og tveir útsmognir refir takast á upp á líf og dauða. The Lincoln Lawyer er gerð eftir sallafínni spennusögu Michaels Connelly, sem er yfirburðahöfund- ur í bandaríska glæpasagnageir- anum, og þegar hópur toppleikara fær brúklegan efnivið að moða úr er von á góðu. Og þessi mynd svíkur ekki. Hún er áferðarfögur og vönduð, og dálítið meinlaus að því leyti, en spennan er fín og rígheldur til enda. Matthew McConaughey hefur átt frekar mögur ár undanfarið en hann finnur fjölina sína í hlut- verki Hallers og hefur sjaldan verið betri. Ryan Phillippe hefur tekið út þó nokkurn þroska, er einhvern veginn ekki lengur strákur, og er skemmtilega ógnandi sem háska- legur skjólstæðingur Hallers. Ýms- ir aukaleikarar styðja dyggilega við bakið á þessum tveimur í því sem vonandi er bara fyrsta myndin um Mick Haller.  Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is bíó  bíódóMur The LiNcoLN LAwyer Upprisa McConaugheys Mick Haller er tvöfaldur í roðinu og getur sýnt á sér dökkar hliðar þegar honum er ógnað. Matthew McConaughey nýtur sín í botn í hlutverkinu.

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.