Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.05.2011, Page 78

Fréttatíminn - 06.05.2011, Page 78
Hún er harðlokuð, hálffull af grjóti ... “ S tefán Pálsson, sagnfræðingur og friðarsinni, leiðir spenn- andi könnunarferð um Öskjuhlíð á laugardag. Viðfangsefnið er stríðs- minjar sem leynast hér og þar um hlíðina, sumar hverjar komnir á kaf í gróður. Leiðsögn Stefáns er hluti af mik- illi dagskrá á Öskuhlíðardaginn, en hann er haldinn í fyrsta sinn í tilefni af undirritun samkomulags um stofnun starfshóps sem ætlað er að móta samstarf Reykjavíkur- borgar, Háskólans í Reykjavík og Skógræktarfélags Íslands um útivist- arsvæðið í Öskjuhlíð. Stefán hlakkar til dagsins enda kominn á gamlar leikslóðir frá því hann var barn. „Það er merkilegt en Öskjuhlíðin er einn af fáum stöðum á landinu þar sem hægt er að skoða mannvirki frá hernámsár- unum,“ segir hann og bætir við að því miður hafi þessum minjum svo til ekkert verið sinnt. „Þetta hefur verið látið drabbast niður í mörg ár og orðið frekar ömurlegt. Auðvit- að á að merkja þetta og koma upp söguskiltum til útskýringar á því hvaða byggingar þetta eru.“ Stefán nefnir sem dæmi hina gömlu neyðarstjórnstöð flugvall- arins, sem er skammt fyrir ofan Keiluhöllina. „Hún er harðlokuð, hálffull af grjóti og útkrössuð. Þarna þyrfti að hreinsa út, koma upp lýsingu og laga aðgengið. Þá gæti fólk með söguþekkingu kom- ið þarna og fílað sig eins og Hitler í bönkernum.“ Leiðangur Stefáns hefst klukkan 11 og er lagt af stað frá húsnæði Háskólans í Reykjavík. Dagskrá Öskjuhlíðardagsins má sjá á oskju- hlid.is.  öSkjuhlíðardagurinn haldinn hátíðlegur í fyrSta Sinn  ómálaða málverkið 21 milljón á Striga Guð á Sæbraut opin- berast almenningi Mikil leynd hvíldi yfir nafni kaup- andans á sínum tíma og kenningar voru á kreiki um að Jón Ásgeir Jó- hannesson eða Hannes Smárason hefðu tryggt sér myndina ómáluðu. Magnað afmælistríó Helga Söngvarinn Helgi Björnsson er á haus þessa dagana við undirbúning hátíðar- tónleika í Eldborg, stóra sal Hörpunnar, þar sem hann ætlar að syngja íslenskar dægurperlur ásamt einvala liði tónlistar- fóks hinn 17. júní. Eivör, Högni Egilsson, Bogomil Font, Mugison og Ragnheiður Gröndal syngja með Helga við undirleik landsliðs tónlistarmanna. Við undirbún- inginn fékk Helgi þá frábæru hugmynd að láta Sigtrygg Baldursson (Bogomil Font), fyrrum trommuleikara Sykurmol- anna, til þess að syngja sykurmolalagið sígilda, Afmæli. Sigtryggur tók í fyrstu fálega í þetta en Helgi telur að Sigtryggur hafi ekki treyst sér í hæstu tóna Bjarkar Guðmundsdóttur í laginu. Eftir að Helgi lagði til að Eivör og Ragnheiður Gröndal tækju lagið með Bogomil og sæju um skrækina þykja góðar líkur á að þau þrjú syngi afmælissönginn á „afmæli lýðveldisins“ eins og Helgi orðar það. á meðan allt lék í lyndi í íslensku efnahags- og viðskiptalífi söfnuð-ust miklar upphæðir á fjáröflunar- kvöldverði hjá UNICEF. Þau fyrirtæki sem flugu einna hæst á útrásartímanum, FL- Group, Baugur og Fons, gáfu 135 milljónir til uppbyggingar skóla og þjálfunar kennara í Gíenu-Bissá. Þá var hitt og þetta áhugavert og sniðugt boðið upp, þar á meðal ómálað verk eftir Hallgrím Helgason, gítar árit- aður af sjálfum Sting og tækifæri til þess að kynna veðurfréttir á sjónvarpsstöðinni sálugu NFS. Allt það fé sem aflaðist yfir kvöldverðinum var notað til að bæta hag fátækra barna í Afríku. Málverk Hallgríms, sem þá var varla a n n a ð e n auður strigi, var slegið Þor- steini M. Jóns- syni, Steina í Kók, á 21 milljón og Hallgrímur hefur greint frá því að þessi háa upphæð hafi sett sig út af laginu þannig að hann dró það í lengstu lög að mála mynd upp í upphæðina. Hann gekk loks í málið síðla árs 2007 og málaði myndina Guð á Sæbraut sem er 170x110 sentimetrar að stærð. Mikil leynd hvíldi yfir nafni kaupandans á sínum tíma og kenningar voru á kreiki um að Jón Ásgeir Jó- hannesson eða Hannes Smárason hefðu tryggt sér mynd- ina ómáluðu. Síðar kom á daginn að það var Þorsteinn sem tryggði sér verkið en hann hefur ekki viljað ræða málverkið og baðst undan viðtali um myndina þegar Fréttatím- inn hafði samband við hann fyrir helgi. Verkið hefur hingað til ekki komið fyrir sjónir almennings en það er eitt af rúmlega 60 verkum á sýningunni Jór – Hestar í ís- lenskri myndlist sem opnuð verður á Kjar- valsstöðum á morgun, laugardag. Eins og nafnið bendir til er íslenski hesturinn í há- vegum hafður á sýningunni og þar má sjá hvernig hesturinn hefur birst helstu lista- mönnum þjóðarinnar í rúm hundrað ár. Um fimmtíu listamenn eiga verk á sýningunni. Lista- og hestamaðurinn Baltasar á nýjasta verkið sem hann kláraði fyrir skömmu en elsta verkið er olíumálverk frá 1900 eftir Þór- arin B. Þorláksson. toti@frettatiminn.is Hægt að fíla sig eins og Hitler í bönkernum Árið 2005 var ómálað málverk eftir Hallgrím Helgason slegið á 21 milljón króna á góðgerðaruppboði UNICEF. Kaupandinn var Þorsteinn M. Jónsson, jafnan kenndur við Kók. Hallgrímur hummaði fram af sér í drjúgan tíma að mála myndina sem nú kemur fyrir almenningssjónir í fyrsta sinn á sýningu sem opnuð verður á Kjarvalsstöðum á laugardaginn. Skottúr á Old Trafford Sjónvarpsstjarnan og sparkspekingurinn Hjörvar Hafliðason skellti sér í dags- ferð til Manchester ásamt þeim Auðuni Blöndal og Huga Hall- dórssyni til þess að fylgjast með leik Manchester United og Schalke á Old Trafford í Meistaradeildinni. Þríeykið kom aftur heim á fimmtudag en taldi stutt ferðalagið ekki eftir sér enda allir grjót- harðir United- menn og nutu þess að sjá sína menn leggja þýska and- stæðinga sína, 4 -1. Steini í Kók átti hæsta boðið en kærði sig ekki um að það kæmi fram opinberlega. Góðgerðargóðverk Hallgríms skilaði UNICEF vænni upphæð sem rann beint til fátækra barna í Hallgrímur Helgason beið lengi með að vinda sér í að mála verkið sem seldist á 21 milljón, ómálað, og afraksturinn er Guð á Sæbraut. Stefán Pálsson við hina gömlu neyðar- stjórnstöð hernámsliðsins. Lj ós m yn d/ H ar i Gói og Þröstur í þrívídd Leikaratvíeykið Gói (Guðjón Davíð Karlsson) og Þröstur Leó hyggjast sigla stíft á ævintýramið- in á næstu árum og horfa langt fram í tímann. Þeir leika saman í sýningunni Gói og eldfærin í Borgar- leikhúsinu um þessar mundir og stefna að því að ferðast með sýninguna um allt land í sumar auk þess sem unnið er að upp- setningu verksins Gói og baunagrasið að ári. Að því loknu sjá framleið- endur sýningarinnar fyrir sér að uppsetningu þriðja verksins, líklega Hans og Grétu. Þegar þrjár sýningar eru að baki vilja þeir steypa sögunum saman í kvikmyndahandrit og gera þrívíddar-kvikmynd sem tekin yrði upp árið 2014. Þess má geta að dvd-diskur með leikritinu Gói og eldfærin kom út í vikunni. Viðurkenndar stuðningshlífar í úrvali Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is Í sumar er opið virka daga frá kl. 9 -18 58 dægurmál Helgin 6.-8. maí 2011

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.