Prentarinn - 01.04.1987, Blaðsíða 26

Prentarinn - 01.04.1987, Blaðsíða 26
Nunnurnar heimsottar Snyrtimennskan í fyrirrúmi Laugardaginn 15. ágúst sl. fóru ellilífeyrisþegar í FBM og makar þeirra í hina árlegu sumarferö. Aö þessu sinni var farið til Stykkishólms. Leiö- sögumaður var Jón Árnason, skólastjóri, en hann erfæddur og uppalinn í Hólminum. Þátt- takendur í ferðinni voru um 50 manns. Lagt var af staö snemma morguns í góöu veöri og var útsýni hiö fegursta. Stansað var í Borgarnesi og drukkið kaffi á vesturleið, en eftir hádegisverö í Hótel Stykkishólmi var fariö í skoð- unarferð í Sjúkrahús St. Fransisku systranna. Systurn- ar reka þarna ýmsa starfsemi m. a. prentsmiðju og barna- heimili, fyrir utan stóra kapellu sem okkur var sýnd, en þar byrjar hver dagur hjá nunnun- um meö morgunandakt eins og siður er í klaustrum. Systir Petra tók á móti okkur og fór meö okkur um ganga spítal- ans inn í sali gamla blýprents- ins. Þarna eru furðu margar vélar í frekar litlum húsakynn- um. Meðalstór Heidelberg- pressa og Intertypesetningar- vél eru stærstu vélarnar, en auk þeirra er þarna minni prentvél, skurðarhnífur, sauma- vél o. fl. Það var eins og að koma inn á prentminjasafn, prentararnir trúðu varla sínum eigin augum, því það sást ekki blettur af óhreinindum neins staðar. En skyldi þá nokkuð vera prentað þarna? Það var nú öðru nær. Nunnurnar sýndu okkur ýmsa prentgripi sína, sem þær höfðu annað- hvort unnið að hálfu eða öllu leyti sjálfar. Þarna var meira að segja hægt að fá keyptar handsettar bækur með gamla laginu. Nunnurnar stofnuðu prentsmiðju sína rétt eftir 1950. Sú sem stóð aðallega fyrir því er af gamalli prentara- ætt í Belgíu og þekkti því vel til í faginu og hafði unnið við það í heimahúsum. Eftir þessa skemmtilegu heimsókn var ekið um kauptúnið og Jón Árnason sagði okkur frá ýms- um gömlum sögulegum hús- um, en endað var við útsýnis- skífu á Bókhlöðuhæð þar sem sást vítt yfir til Breiðafjarðar- eyja. Var síðan haldið heim á leið. Sv.Jóh.

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.