Keflavíkurgangan - 19.06.1960, Síða 2
Þróun úraiðnaðarins
„Poljot"
í stálkassa.
Verð með leðurbandi
kr. 975.00
,,Raketa“
í gullhúðuðum kassa
(20 micron)
með stálbaki.
„Zarja“
kvenúr í gullhúðuðum
kassa með stálbaki
„Majak“
í gullhúðuðum kassa
með stálbaki, gyllt skífa.
„Majak“
í gullhúðuðum kassa
með stálbaki
kr. 1025.00
er orðin löng, þrotlaust starf og leit margra kynslóða að full-
komnun þessara mælitækja, sem hefur gert þau að tákni mestu
nákvæmni á sviði iðnaðar. Jafnvel Spútnikar og eldflaugar
væru óhugsandi í landi, sem ekki hefði háþróaðan úraiðnað.
Getur það átt sér stað að þessi skilyrði séu þegar fyrir hendi
í Sovétrússlandi, aðeins 30 árum eftir að fyrsta úraverksmiðj-
an þar tók til starfa?
Þróun rússnesks úraiðnaðar hófst árið 1930 með rekstri
tveggja verksmiðja í Moskvu, önnur smíðaði úr en hin klukk-
ur. Auk verksmiðjanna var komið á fót rannsóknarstofnun til
gæðamats og samanburðar á því, sem framleitt var í heimin-
um á þessu sviði til úrvinnslu á því er bezt reyndist til hlið-
sjónar við eigin framleiðslu. Ákveðið var að eingöngu skyldi
nota innlent efni til framleiðslunnar, þar með talið steinar og
fjaðrir. I byrjun var við mikla erfiðleika að etja og gekk fram-
leiðslan stirðlega. Áætlað hafði verið að fyrsta árið yrðu smíð-
uð 70.000 úr, en aðeins helmingur þess náðist. Næsta ár 1931
var áætlunin aftur miðuð við sömu tölu, en komst þá upp í
77.000 stykki. Síðan hefur framleiðslumagn stöðugt aukizt og
á síðastliðnu ári framleiddu úraverksmiðjurnar í Moskvu
ásamt þremur nýjum verksmiðjum í öðrum borgum Sovétríkj-
anna um þrjátíu milljónir úra.
Fyrstu áratugina seldu Sovétríkin úr sín aðallega innanlands,
en síðustu árin í vaxandi mæli til Vesturlanda og tvö s.l. ár
hafa'þau líka fengizt hér. I fyrstu gætti hér nokkurrar tor-
tryggni, bæði vegna þess að alla reynslu vantaði á gæðum
þessara úra og svo voru fyrstu úrin, sem innflutt voru, ekki
valin með þekkingu á því sem hér hæfði. Nú er allur innflutn-
ingur þessara úra á hendi fagmanna og aðeins valdar þær teg-
undir, sem bezt hæfa okkar staðháttum, jafnframt glæsilegu
ytra útliti. Að fenginni tveggja ára reynslu má staðhæfa að
úr þessi hafi reynzt mjög vel. Gangnákvæmni og styrkleiki
er mun meiri en annarra úra í sama verðflokki og fjölbreytni
á útliti, einkum karlmannsúra, er mikil.
Hjá undirrituðum fást karlmannsúr ,,Poljot“ í stál- og gull-
plettkössum 20 micron og ,,Raketa“ í gullplettkössum, ýmsar
gerðir, ennfremur ,,Zarja“ í gullplettkassa. Öll þessi úr eru
höggvarin og vatnsþétt. Aðrar gerðir fást einnig, svo sem
Sjálfvindur. Úr með vikudagatali og síðar nýjar gerðir, sem
væntanlegar eru.
Úr þessi fást hjá ýmsum úrsmiðum, bæði í Reykjavík og
annars staðar.
Sendi í póstkröfu um allt land.
SIGURÐUR TÓMASSON úrsmiður
Skólavörðustíg 21 - Reykjavík
Sími 13445
Öll þessi úr eru högg- og vatnsvarin