Keflavíkurgangan - 19.06.1960, Page 4
var í málefnasamningi stjórnarflokkanna heitið að fylgja
fram áðurnefndri ályktun Alþingis. Á því hafa ekki orðið
efndir enn. f desembermánuði 1956 tilkynnti ríkisstjórnin,
að viðræðum við Bandaríkin um endurskoðun samningsins
hefði verið frestað. Síðan hefur ekkert gerzt í málinu svo
vitað sé.
Við undirrituð viljum ekki una þessari málsmeðferð. Við
teljum ríkisstjórnina og stuðningsflokka hennar bundin af
ályktun Alþingis frá 28. marz 1956, loforðum stjórnarflokk-
anna í seinustu þingkosningum og málefnasamningi þeim,
sem stjórnarsamstarfið byggist á. Þess vegna krefjumst við
þess, að málið verði þegar í stað tekið upp af nýju, endur-
skoðun fari fram og herinn víki úr landi að lögskyldum fresti
liðnum.
Við heitum á þjóðina að þreytast ekki, en sækja rétt sinn
af einurð og festu. Við heitum á fólkið í landinu að rísa upp,
maður við mann, og fylkja liði í þeirri baráttu fyrir brottför
hersins, sem hafin er að frumkvæði íslenzkra rithöfunda.
Unum engum málalokum öðrum en þeim: að þing og stjórn
standi við heit sín og herinn fari.
Anna Guðmundsdóttir, bókavörður
Anna Sigurðardóttir, frú
Arni Böðvarsson, cand, mag.
Ásgeir Karlsson, stud. mag.
Ásmundur Sveinsson, myndhöggvari
Auðunn Guðmundsson, stud. jur.
Baldur Jónsson, stud. mag.
Barbara Árnason, listmálari
Benedikt Gunnarsson, listmálari
Bjarni Benediktsson frá Hofteigi
Björn Th. Björnsson, listfræðingur
Björn Þorsteinsson, sagnfræðingur
Drífa Thoroddsen, frú
Einar Bragi, skáld
Einar H. Kristjánsson, stud. oecon.
Einar Sigurðsson, stud mag.
Elías Mar, rithöfundur
Emil R. Hjartarson, stud. med.
Finnbogi R. Þorvaldsson, prófessor
Finnur T. Hjörleifsson, stud. mag.
Friðjón Stefánsson, rithöfundur
Geir Kristjánsson, rithöfundur
Gils Guðmundsson, rithöfundur
Grétar Geir Nikulásson, stud. med.
Guðmunda Andrésdóttir, listmálari
Guðmundur Georgsson, stud med.
Guðmundur Guðmundsson, st. med.
Guðmundur Oddsson, stud. med.
Guðrún Guðjónsdóttir, frú
Gunnar Benediktsson, rithöfundur
Gunnar Dal, rithöfundur
Gunnar M. Magnúss, rithöfundur
Gunnlaugur Scheving, listmálari
Gylfi Gröndal, stud. mag.
Halldóra B. Björnsson, rithöfundur
Haukur Helgason, stud. oecon.
Hjörleifur Sigurðsson, listmálari
Hörður Ágústsson, listmálari
Hörður Bergmann, stud. mag.
HösKuldur Björnsson, listmálari
Ingiberg S. Hannesson, stud. theol.
Jóhann Gunnarsson, stud. philol.
Jóhann Hjálmarsson, skáld
Jóhannes Helgi, rithöfundur
Jóhannes úr Kötlum, skáld
Jóhannes Jóhannesson, listmálari
Jóhannes Steinsson, rithöfundur
Jón Haraldsson, stud. philol.
Jón Óskar, skáid
Jón M. Samsonarson, stud. mag.
Jón úr Vör, skáld
Jónas Árnason, rithöfundur
Jökull Jakobsson, rithöfundur
Kjartan Guðjónsson, listmálari
Kristinn E. Andrésson, magister
Kristinn Guðmundsson, stud. med.
Kristinn V. Jóhannsson, stud. philol.
Kristinn Kristmundsson, stud. mag.
Kristján Bender, rithöfundur
Kristján frá Djúpalæk, skáld
Kristmann Eiðsson, stud. jur.
Laufey Vilhjálmsdóttir, frú
Lárus Þorv. Guðmundsson, st. theol.
Magnús Á. Árnason, listmálari
Magnús Bjarnfreðsson, stud. oecon.
Magnús Stefánsson, stud. med.
Málfríður Einarsdóttir, frú
Matthías Kjeld, stud. med.
Nanna Ólafsdóttir, ritstjóri
Ólafur Pálmason, stud. mag.
Ólafur J. Pétursson, stud. philol.
Ólafur Jóh. Sigurðsson, rithöfundur
Páll Lýðsson, stud. mag.
Rannveig Tómasdóttir, rithöfundur
Sigríður Einars frá Munaðarnesi
Sigríður Eiríksdóttir, hjúkrunarkona
Sigurður Róbertsson, rithöfundur
Sigurður Sigurðsson, listmálari
Sigurður Þórarinsson, jarðfræðingur
Sigurjón Ólafsson, myndhöggvari
Skúli H. Norðdahl, arkitekt
Snorri Arinbjarnar, listmálari
Snorri Hjartarson, skáld
Stefán Hörður Grímsson, skáld
Stefán Jónsson, rithöfundur
Svavar Guðnason, listmálari
Sveinbjörn Beinteinsson, skáld
Sveinbjörn Björnsson, stud. polyt.
Sveinn Skorri Höskuldsson, st. mag.
Thor Vilhjálmsson, rithöfundur
Valdimar Örnólfsson, stud. phil.
Valtýr Pétursson, listmálari
Vilborg Dagbjartsdóttir, kennari
Vilborg Harðardóttir, stud. philol.
Þorsteinn Valdimarsson, skáld
Þorvaldur Skúlason, listmálari
Þóra Elfa Björnsson, skáld
Þóra Vigfúsdóttir, ritstjóri
Þórbergur Þórðarson, rithöfundur
Þórunn Elfa Magnúsdóttir, rithöf.
Ávarpið birtist í blaði, sem kom út fundardaginn og nefndist
Herinn burt.
Borgarafundurinn um herstöðvamálið var haldinn í Gamla
Bíói 8. desember og var svo fjölsóttur, að naumur helmingur
fundarmanna komst í sæti, en hinir fylltu ganga og forstofu
út úr dyrum, og fjöldi manns stóð úti á götu.
Að fundinum loknum var farin fjöldaganga að bústað for-
sætisráðherra, Hermanns Jónassonar, og honum færð álykt-
un fundarins, þar sem krafizt var tafarlausra efnda á sam-
þykkt Alþingis frá 28. marz 1956 um endurskoðun hervernd-
arsamningsins með brottför hersins fyrir augum.
Samtökin Friðlýst land
Hinn 20. marz 1958 stofnuðu þeir, sem unnið höfðu saman
að undirbúningi fundarins, með sér samtök til að vinna að
frekari framgangi málsins. Hlutu þau nafnið: „Friðlýst land
— samtök rithöfunda og menntamanna."
Fyrsta verk samtakanna var að boða ásamt Fulltrúaráði
verkalýðsfélaganna í Reykjavík til almenns fundar í Gamla
Bíói, þegar tvö ár voru liðin frá því er alþingissamþykktin
var gerð, og fundarefni enn hið sama: að knýja á um efndir.
Reykvíkingar sýndu sem fyrr hug sinn og alvöru í þessu
máli með því að fylla fundarsalinn.
Um vorið létu samtökin semja og gáfu út bækling, þar
sem safnað var í einn stað öllum helztu staðreyndum, er
styðja hinn íslenzka málstað. Bæklingurinn bar nafn sam-
takanna — Friðlýst land — og var seldur í miklum fjölda
eintaka um allt land.
I júnímánuði 1958 gengust samtökin fyrir fundahöldum
víðsvegar um Suður- og Suðvesturland og í septembermánuði
í flestum bæjum og fjölmennari kauptúnum á Austfjörðum,
Norðurlandi og Vestfjörðum. Fundina sóttu þúsundir manna,
og var sérstaklega áberandi hve stuðningsmenn þeirra flokka,
er á sínum tíma samþykktu hervemdarsamninginn, sýndu nú
miklu meiri áhuga á málinu en stundum fyrr. Þessum fundá-
höldum lauk með fjölmennum fundi í Reykjavík 2. nóvember,
og sama dag gáfu samtökin út blað, Friðlýst land.
Þegar hér var komið, var vinstristjómin að fara frá og
2
Keflavíkurgangan