Keflavíkurgangan - 19.06.1960, Page 5
horfði nú enn óvænlegar en fyrr um lausn málsins, þar
sem vitað var að þeir stjórnmálaskörungar, sem nú tóku við
völdum, voru auðsveipustu formælendur hins erlenda mál-
staðar. Friðlýst land sá því fáa vænlega útvegi í bili: það
hafði lagt rök málsins ljóst fyrir í rituðu og mæltu máli
og beið nú átekta. Stjórn samtakanna og framkvæmdaráð,
sem skipað er 15 mönnum, hélt alltaf fundi öðru hverju,
fylgdist með þróun mála, reiðubúið að gripa fyrsta tækifæri
til að stugga við mönnum og eggja þá til áframhaldandi
baráttu.
Keflavíkurgangan
Ennþá fagnar ísland vori.
Ennþá verður stolti og þori
gott til liðs, er land vort kallar.
Þá var það einhverntíma á fundi framkvæmdaráðs á út-
mánuðum, að einhver sagði: nú er búið að tala og skrifa
svo mikið um þetta mál, að öllum ættu að vera orðin rök
þess ljós í hverju smáatriði. Þess vegna skulum við næst
g e r a eitthvað, sem vekur athygli og veitir almenningi færi
á þátttöku í jákvæðum aðgerðum. Förum í mótmæla-
göngu frá Keflavík til Reykjavíkur og höldum útifund í höf-
uðstaðnum um kvöldið. Þetta er að vísu 50 km leið og nokk-
ur þolraun óvönum, en ekki ofraun neinum, sem gengur
heill til skógar.
Það var eins og við manninn mælt: menn þutu reyndar
ekki strax af stað, en hugmyndin lét þá ekki í friði. Þeir
urðu því staðfastari í ásetningi sinum sem þeir hugsuðu
málið lengur, og á fundi einhvern tíma í vor þegar veðrátta
var tekin að mildast, sögðu þeir hver við annan: Við förum
í Keflavíkurgöngu einhvern sunnudag í júní. Þó að við verð-
um ekki nema 5, er betur farið en heima setið — en við
verðum miklu, miklu fleiri, sannið þið til. Þar með var það
ráðið, og dagurinn var ákveðinn þegar í stað — sunnudag-
urinn 19. júní.
Við vorum ekki fyrr komin af fundi og farin að ympra á
málinu við kunningja okkar, en hópurinn hafði fimmfald-
azt. Hér var sýnilega þörf skjótra úrræða, við tókum að
búa okkur undir fjöldagöngu. Við völdum nokkra menn úr
okkar hópi til að standa fyrir göngunni, fengum til afnota
herbergi með síma í Mjóstræti 3, og þrír af félögum okkar
tóku að sér að veita henni forstöðu.
Þá var að skýra frá tíðindum. Við höfðum ekki eyri til
framkvæmda, gátum því ekki boðið fréttamönnum upp á
svo mikið sem kaffi í anstöndugu vertshúsi, hvað þá brjóst-
birtu, eins og margir töldu vel þokkað. Varð því að ráði að
kalla saman blaðamannafund á heimili eins göngumanna,
sem lumaði á sinni ögninni af hverju. En við urðum hönd-
um seinni: fréttin var tekin að kvisast um bæinn. Blaða-
mannafundur skyldi haldinn kl. 3 fimmtudaginn 9. júní, en
að morgni þess dags birti Tíminn svohljóðandi skotspóna-
fregn á forsíðu:
Á skotspónum
— Blaðinu bárust í gær lausafregnir af því, að andstæðingar
hernámsins hér í bænum, væru nú komnir í mikinn vígahug.
I vor er talið tuttugu ára afmæli erlendrar hersetu á Islandi,
og er ætlun manna að minnast afmælisins með hópgöngu frá
Keflavík til Reykjavíkur.
Eftir því sem blaðið fregnaði í gær, á gangan að standa 19.
júni n.k. Það er merk tilviljun að einmitt sama dag kemur
Eisenhower Bandaríkjaforseti til Japans, og hafa sósíaldemó-
kratar og róttækir stúdentar skipulagt margvíslega mótmæla-
fundi og göngur þann dag, en þó mun hæpið að álykta, að
„Við tókum að búa okkur undir fjöldagöngu . ..“ Nokkrir forvígismenn bera saman bækur sinar.
Keflavíkurgangan
3