Keflavíkurgangan - 19.06.1960, Síða 10

Keflavíkurgangan - 19.06.1960, Síða 10
Sama veður þegar við skimuðum út um regnvotar rúðurn- ar. Nema það lét ekki eins hátt og belgingslega í regninu. Birta sumarnæturinnar var gráleit þegar við gengum spöl- inn upp Njarðargötuna, frá Laufásvegi að horninu á Berg- staðastræti, þar sem við áttum að biða eftir bílnum. Mann- auðar götur, svefnhljóð hús. Martröð næturinnar virðist ekki aðeins hafa verið martröð: Það bíður enginn maður eftir bíln- um á hominu. Hæ, en þarna kemur maður út úr súldinni og stefnir beint á okkur. Hann er á strigaskóm, í vindúlpu, með bakpoka og staf — það er ekki um að villast! Og jafnskjótt kemur stúlka úr gagnstæðri átt með litla ferðatösku. Og þrjár barnungar stúlkur niður Njarðargötuna. Og þá kemur piltur með sér- „Það var líflegt í skrifstofunni okkar .. .“ hegðun amerískra soldáta á íslandi bæði fyrr og nú, ásamt stuðningi Bandaríkjamanna og vernd þeirra á málstað Is- lendinga í landhelgismálinu, virðast í augum talsmanna vest- ursins að vera með þeim ágætum, að líkja mætti við einn geislandi helgibaug drengskapar og hetjudáð, sem orðið geti Islendingum að andlegu blysi frelsis og réttlætis um ókomna tíma. En menn eru stundum öðru vísi í augum annarra en í sín- um eigin. Við Islendingar lítum ekki á Ameríkana — með sitt herlið, sína vernd ásamt stuðningi þeirra við óvinveitta þjóð eins og Breta — sem vini, verndara eða „velkomna gesti“. I augum okkar eru hinir amerísku soldátar fólk sem okkur stafar hætta af; fólk sem er okkur til leiðinda og skammar, fólk sem sezt upp í húsum manna og ógerningur er að losna við. Þetta er reynslan og hún er ólygnust. Islend- ingar vilja ekki hafa útlendan her í sínu landi, og við erum hvað þessu viðkemur nákvæmlega eins og aðrar þjóðir í öðrum löndum. Og við mótmælum nú í dag, og við munum halda áfram að mótmæla, halda áfram að þrjózkast og hat- ast við átroðning útlendra soldáta. — Og það mun alltaf blakta á skarinu hjá okkur — nú sem fyrr — og þó biðin kunni að verða löng, þó hún kynni að verða þúsund og aftur þúsund sinnum lengri en gangan frá Keflavík. Við munum engu gleyma, en halda — hvernig sem allt kann að velta — fast og óbifanlega við rétt okkar og umráð yfir íslandi. kennilega húfu, og síðan hver af öðrum. Hvaðanæva drífur að fólk. Það hefur þegar myndazt álitlegur hópur ferðafólks þarna á horninu. Pinklar af öllum stærðum og gerðum hall- ast upp að múrveggnum. Svo kemur lítill bíll. I honum eru meðal annarra Sigurður Guðnason fyrrverandi alþingismaður. Hann rennir niður rúð- unni og kallar glaðlega til okkar, að bifreið okkar sé á leið- inni. Mér var kunnugt um, að í undirbúningsnefnd göngunn- ar höfðu verið uppi ráðagerðir um að bjóða honum að vera viðstaddur athöfnina við herstöðvarhliðið sem heiðursgestur. Nú grunar mig ekki, að þarna sé kominn sá maður, sem einna knálegast mun þreyta gönguna til Reykjavíkur, — sjálf hetja þessa nýbyrjaða dags. Ég sé fyrir mér aldraða kempu, gaml- an forystumann íslenzkra verkalýðssamtaka, hýrleitan og kankvísan og furðulega unglegan miðað við aldur — hann skortir aðeins fáeina daga til að fylla 72. aldursárið. En ég sé ekki hvílíka seiglu og þrek og baráttuvilja þessi maður hefur að geyma. Þannig er og um fólkið, sem stendur við hlið okkar hjóna: Við vitum ekki að það á eftir að afsanna illar forspár næturinnar, hverja af annarri, með svo glæsilegum hætti, að ótrúlegt er að þær loði okkur framar í eyrum, hversu langvinn sem barátta okkar kann að verða. Þetta grunar mig ekki þennan síðasta morgun efasemd- anna. Við stöndum þarna á krossgötum, ofurlítill hópur fólks, og tölum varlega saman um veðrið. Einar Bragi: Við systkyni ólumst upp við óbrotin og auðlærð siðalög- mál: að þola ekki órétt andstöðulaust og hafa þolgæði til að bíða hins góða. Þessar lífsreglur voru okkur innrættar með fordæmi fremur en mælgi. Þess vegna sæmir ekki að ég hafi um það mörg orð, hvers vegna ég fylki liði með þeim ,,Að kvöldi 18. júní höfðu 233 látið skrá sig . . .“ 8 Keflavíkurgangan

x

Keflavíkurgangan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Keflavíkurgangan
https://timarit.is/publication/962

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.