Keflavíkurgangan - 19.06.1960, Side 13

Keflavíkurgangan - 19.06.1960, Side 13
arstað. Og síðan frétt — kærkomin vinakveðja frá Japan, bróðurhönd rétt okkur hinum megin af hnettinum: Öflug bar- átta gegn herstöðvum í Japan — Kishi að hrökklast frá völd- um! íslenzki fáninn og kröfuspjöldin eru tekin fram: „Herinn burt! Ævarandi hlutleysi íslands! Við tökum okkur stöðu „Helgi S. Jónsson, fyrrverandi nazisti og núverandi fréttaritari Morgun- blaðsins“ (lengst til hægri) — til annars en gerast leppar erlends valds, að fordæmi þeirra hefur ekki náð að eitra kynslóð okkar sem heild. Við viljum sýna öllum þjóðum, að sú mynd er ekki rétt, sem þær kunna að hafa gert sér um íslendinga út frá kynnum sínum af viðskiptum íslenzkra valdamanna við Bandaríki Norður- Ameríku. Við viljum sýna þeim íslendingum, sem síðar munu byggja framan við blikkskilti nokkurt, merkt stórum svörtum ein- kennisstöfum Atlantshafsbandalagsins: N A T O — hér er víghreiður þess á íslandi. Einhver í hópnum drepur við því hnúum, og það glymur tómlega í blikkinu eins og hér sé enginn heima. Hermannahyskinu hefur sýnilega verið skipað að fela sig. En niðri á veginum sést nú hvar Helgi S. Jónsson, fyrrverandi nazisti og núverandi fréttaritari Morgunblaðsins, vappar fram og aftur við fjórða mann. Það er á sama veður og í Reykjavík: suðvestan stinnings- kaldi, þokuloft og regnhraglandi. Nokkrir einkabílar hafa komið með fólk úr Reykjavík, Keflavík og Njarðvíkum, sem ætlar að vera viðstatt þegar gangan leggur af stað og taka þátt í henni fyrsta spölinn. Um 250 manns fylkja sér undir fána og kröfuspjöld á berangri þessa ömurlega staðar. Ein- ar Bragi, sem kjörinn hafði verið til að ávarpa göngufólkið áður en lagt yrði af stað, klífur upp á steingnípu og hefur ávarp sitt. Vindurinn dreifir orðum hans yfir regnvota mó- ana, en öll nemum við mál hans, finnum að hann talar fyrir munn okkar allra: Góðir samherjar. Haft er eftir einum þeirra mörgu yfirgangsseggja, sem sag- an kann frá að greina, að engin borg sé óvinnandi, ef asni klyfjaður gulli komist gegnum borgarhliðin. Því miður hefur margsannazt, að hann hafði allt of rétt fyrir sér, þrællinn. þetta land, að okkar kynslóð hafi a. m. k. ekki beðið sitt skipbrot án þess að spyrnt væri við fæti, og það þannig að eftir væri munað. Við skulum vita, að þegar við sjálf heyrum horfnum tíma til, verður um það spurt á íslandi, hverjir lögðust flatir 1960 og hverjir risu upp — hverjir voru í göngunni löngu. Ég vil beina því til þeirra, sem kann að vaxa í augum erfiði þessarar göngu, að minnast okkar fólks á fyrri tíma — vannærðra vermanna á göngu um Suðurnes — kaghýddra kóngsþræla Bessastaðavaldsins og allra fátækra manna, sem geymt hafa lífsneista íslenzkrar þjóðar um langar aldir og þrautafull ár. Björn Þorsteinsson: Herstöðvar eru smánarblettur á Islandi og brot gegn sögu- legri erfð okkar Islendinga og menningu. Þær verða að hverfa af íslenzkri grund, ef íslenzk þjóð á að lifa. Um annað er ekki að ræða í þessu máli. Ég hef beitt mér fyrir því, að mótmælaganga verði farin frá Keflavík til Reykjavíkur, af því að ég er sannfærður um að hún muni vekja ýmsa af sinnuleysissvefni um þetta mál og gæti orðið undanfari frek- ari aðgerða gegn herstöðvum á Islandi. Keflavíkurgangan 11

x

Keflavíkurgangan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Keflavíkurgangan
https://timarit.is/publication/962

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.