Keflavíkurgangan - 19.06.1960, Side 22

Keflavíkurgangan - 19.06.1960, Side 22
Að Straumi var áð. Og enn vorum við röskan klukkutíma á undan áætlun. Göngustjórarnir höfðu af því þungar áhyggj- ur og brýndu fyrir okkur að ganga hægar næsta áfangann. En til þess var of mikill hugur í fólkinu, og þreytan latti okk- ur ekki farar. Nú stóð bíll við bíl, hvar sem útskot var á veginum. Og þegar við eygðum brekkubrúnina fyrir ofan Hafnarfjörð, sá- um við að þar hafði myndazt heil bílaborg. Við gerðum stuttan stanz ofarlega í þeirri brekku. Og hér bættist okkur talsverður liðsauki: Fólk úr Reykjavík og Hafn- arfirði, sem komið var til að fylkja sér undir fána okkar og kröfuspjöld. Nei, það varð ekki við því spornað: Við komum klukkutíma á undan áætlun til Hafnarfjarðar, og við urðum að bíða þar rúman stundarfjórðung eftir lúðrasveitinni, sem lofað hafði að leika fyrir göngunni gegnum bæinn. Meðan við biðum margfaldaðist fylkingin, endaþótt fjölmargir Reykvíkingar, sem höfðu ákveðið að fylkja sér þar í gönguna, yrðu of seinir til leiks og yrðu að sætta sig við að mæta henni í Kópavogi. Allar gangstéttir voru svartar af fólki, þar sem gangan fór um í Hafnarfirði, og alltaf var fólk að bætast inn í raðir okk- ar. Þegar haldið var út úr bænum munu hafa verið rúmlega átta hundruð manns í göngunni. Bíll við bíl á báðum vegbrúnum eins langt og augað eygði. Og nú voru háðsbrosin orðin að sýfrulegri grettu. Nokkrir stráklingar reyndu að rifja upp fyrir sér barnalærdóminn úr og tortímingu alls mannkyns. Móðurhlutverkið er ekki ein- ungis fólgið í því að fæða mannveru í heiminn, heldur engu að síður að vernda og varðveita það líf sem borið er. Hefjum sókn fyrir friði og bræðralagi í heiminum og tengj- um það göfuga hlutverk kvennadeginum. Ef allar konur heims sameinuðust um að vernda friðinn í heiminum, ef allar mæður heims sameinuðust um að vernda börn sí nog hverrar annarrar fyrir drápsvélum stríðsæðisins, myndi friðarvon mannkynsins fá byr undir báða vængi og hinn gullni draumur um frið á jörðu rætast. Pétur H. Pétursson: Síðastliðin 20 ár hefur baráttan gegn hernáminu verið ann- að aðalbaráttumál verkalýðshreyfingarinnar, samfara beinu kjarabaráttunni. Þetta mál hefur komið inn í kjarabaráttuna * og stundum orðið beinlínis kjarabaráttan sjálf. Má þar til nefna þegar brezkur her hélt verndarhendi yfir verkfallsbrjót- um og reyndi þannig að brjóta á bak aftur verkfall okkar. Síð- an bannaði herinn aðalblað verkalýðsins, hertók ritstjórnina og flutti af landi burt í fangelsi. Síðar meir, þegar svindlað hafði verið inn á okkur þessum tyggigúmmíjórtrandi byssuberum frá guðs eigin landi, varð þessi barátta gegn hernum samofin baráttunni gegn mútufé Þrír ættliðir: Frú Áslaug Thorlacius Cstandandi) og Kristín dóttir hennar með dóttur sína, sem kom til móts við gönguna. kvennadaginn 19. júní. Konum er mikill sómi sýndur með því að sá dagur skuli hafa orðið fyrir valinu. Þannig verður þessi sögulegi atburður tengdur kvennadeginum órjúfandi böndum um aldur og ævi. Og ættu konur að sýna það í verki og láta ekki sitt eftir liggja að gera þessa göngu eins fjöl- menna og kostur er. Engum stendur það nær en konum að mótmæla djöfladansi vígbúnaðarins, sem felur í sér dauða 20 Keflavíkurgangan

x

Keflavíkurgangan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Keflavíkurgangan
https://timarit.is/publication/962

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.