Keflavíkurgangan

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat

Keflavíkurgangan - 19.06.1960, Qupperneq 23

Keflavíkurgangan - 19.06.1960, Qupperneq 23
Morgunblaðinu, en mundu ekkert nema tvö gatslitin fúkyrði: Helvítis kommúnistar! Enn dreif að mikið lið í gönguna í Kópavogi og í Fossvogi, og þegar komið var upp á Öskjuhlíðarbrún skiptu göngumenn ekki lengur hundruðum, heldur þúsundum. Því hafði verið spáð, að þessi síðasti tíu kílómetra spölur frá Hafnarfirði til Reykjavíkur myndi verða okkur lang- göngumönnum erfiðastur. En einnig það reyndist tilhæfulaus hrakspá. Nú fannst mér ég gæti hæglega gengið 50 km til viðbótar, ef þess væri þörf. Sérhver nýr liðsmaður, sem fylkti sér undir merki okkar, gaf okkur nýjan þrótt — og nú hafði afl okkar margfaldazt. Gangan lengist óðfluga á leið sinni um Hafnarfjörð Marshalls, gengislækkun og atvinnuleysi. I gegnum herstöð- ina hafa Bandaríkjamenn haft slíkt heljartak á íslenzku at- vinnulífi og efnahagsmálum, að heita má við höfum ekki verið fullvalda þjóð nema að nafniun til. Þegar verkalýðshreyfingin fékk um stund aðstöðu til að hafa áhrif á stjórn landsins miðaði loks nokkuð í rétta átt. Framleiðsla þjóðarinnar var aukin og dýrtíðin stöðvuð í bili. Bjartsýni jókst á að við gætum losnað við herinn og alla þá niðurlægjandi spillingu sem því fylgir að vera hersetin þjóð, ísland yrði ekki lengur herstöð undir það breiða spjót sem bandarískt hervald mundar gegn hinum sósíaliska heimi. Af þessu leiðir, að með því að fara gönguna frá Keflavíkur- flugvelli er hægt að gera margt í einu. Aðallega er það þó þrennt; auk skemmtunar á göngu með frjálslyndu, kjark- miklu fólki er unnt að rækja skyldur við tvo meginþætti verkalýðshreyfingarinnar. Hinn þjóðlega þátt að sýna viljann til að losna við erlendan her úr landi sínu, og samstöðuna með alþýðu annarra landa í hinni alþjóðlegu baráttu gegn er- lendum herstöðvum. Þorsteinn frá Hamri: Island er fótþurrka útlends skríls sem hefur fyrir atvinnu að tortíma mannslífum. Þetta hlutskipti lands síns samþykkja íslenzk stjórnarvöld með glöðu bljúgu geði. Slíkt samþykki á rót sína í fégræðgi þeirra og þýmennsku gagnvart úrkynjuðu dollararíki í vesturátt. Ég mun með þátttöku minni i Kefla- víkurgöngunni n.k. sunnudag sýna reiðan hug minn í garð erlendrar hersetu og þrælslundar nefndra stjórnarvalda; og þeirra tortímingarvopna sem þessar staðreyndir tvær reiða að saklausum börnum. Olafur Jónsson: Er Hildiríðarsonum hafði tekizt að rægja Þórólf Kveldúlfs- son nógsamlega við Harald konung hárfagra, veitti konungur Þórólfi aðför heima á búi hans að Sandnesi við mikið lið. Tókst þar hinn harðasti bardagi og féll margt lið af báðum. Er líða tók á orustuna hljóp fram Þórólfur og hjó til beggja handa, sótti þangað að er fyrir var merki konungs, og er hann kom þar að lagði hann sverðinu gegnum þann sem merkið bar. Þá mælti Þórólfur: — Nú gekk ek þremr fótum til skammt. Þá stóðu á honum bæði sverð og spjót, en sjálfur konung- ur veitti honum banasárið, og féll Þórólfur fram á fætur konungi. Þau eru nú að verða 19 árin sem íslenzk alþýða hefur gengið þrem skrefum of skammt í baráttu sinni við bandarískt hernám, ýmist dulbúið eða opinbert. Sjöunda júlí 1941 kemur bandarískur herskipafloti til fslands með bandarískt herlið. Keflavíkurgangan 21
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Keflavíkurgangan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Keflavíkurgangan
https://timarit.is/publication/962

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.