Keflavíkurgangan - 19.06.1960, Side 40
Góðir fundarmenn!
Nú höfum við mörg okkar gengið talsverðan spöl í dag.
Við höfum gert það í ákveðnum tilgangi. Þetta hefur verið
nefnd mótmælaganga og kröfuganga. En ég vil líka kalla þetta
minningargöngu.
Ég las í fyrra lýsingu ensks blaðamanns á athöfn, sem fram
fór í Hírósíma í tilefni af því, að 14 ár voru liðin, síðan kjarn-
orkusprengjan sprakk þar. Athöfnin fór fram við minnisvarða,
sem reistur hafði verið á miðju sprengjusvæðinu, fábrotin
athöfn og hljóðlát á austurlenzka vísu. Þegar henni var lokið
fór blaðamaðurinn að skoða minnisvarðann og tók þá eftir
því, að þar á litlum stalli lágu 3 karamellur. Blaðamaðurinn
spurði japanska konu, sem var þarna nærstödd, hvernig stæði
á þessum karamellum. „Þær eiga að friða sálir barnanna okk-
ar, sem fórust í sprengingunni“, sagði konan.
Blaðamaðurinn spurði, hve mörg börn á karamellualdri
hefðu farizt.
,,Þau voru 30 þúsund“, sagði konan.
Ég vildi nú að lokum mega lýsa því yfir, fyrir hönd okkar
allra, að þessi gönguferð okkar hafi einnig verið farin til
minningar um börnin í Hírósíma.
Þorvarður Örnólfsson
Gunnsteinn Gunnarsson, stúdent:
Ég vildi afneita þeim hjáguði, sem ættlerar Islands blóta.
Ásdís Thoroddsen, frú:
Það er eðlilegt fyrir margra barna móður.
Helga Tryggvadóttir, frú:
Ég vil ekki herinn hér, þess vegna fór ég af stað til þess
að styrkja málstaðinn.
Sigurður Jónsson, nemandi:
Þetta, að losna við herinn. Það hefur sýnt sig í öðrum
löndum, að erlendar herstöðvar eru allsstaðar til ills.
Kristmundur Halldórsson, stúdent:
Er reiðubúinn til þess að taka þátt í hverju, sem heppi-
legt þykir, sem liður til þess að losna við herinn, og þetta
er eitt af því.
Halldóra Danivalsdóttir, frú:
Ég fagna því að hafa fengið tækifæri til þess að mótmæla
her í landinu og öllum þeim ósóma, sem honum fylgir.
Atli Magnússon, nemandi:
Mér hefur alltaf sviðið, að stjórnarvöld þeirra tíma skyldu
gera þá svívirðu að samþykkja her í landið. Sérhver þjóð
á að sjá sóma sinn í því að lifa ekki á peningagjöfum erlends
hervalds.
Gunnar B. Guðmundsson, Heiðarbrún:
Ég álít að gangan stuðli að því að vekja þjóðina af þeim
svefndrunga, sem hún hefur verið í. Það er ósk min og trú,
að þetta verði upphaf að nýrri og virkri baráttu gegn erlend-
um herstöðvum á Islandi.
Kári Arnórsson, kennari:
Vil mótmæla hersetunni og hef trú á þessu fyrirtæki til
áhrifa í baráttunni gegn hernum.
Ævar Jóhannesson, trésmiður:
Hef alltaf viljað herinn burt. Þetta ætti að fá fólk til
þess að hugsa um málið.
Hallveig Thorlacius, stúdent:
Mér leiðist að hafa herinn í landinu, leizt vel á gönguna
og því betur sem ég geng lengur.
38
Keflavíkurgangan