Keflavíkurgangan - 19.06.1960, Síða 46
þar komið í Hafnarfjarðarblágrýtið, en það nær austur
yfir Hamarinn að Hamarskotslæk, sem fellur með suðurjaðri
Hafnarfjarðarhrauns. Það er runnið úr Búrfellisgíg inn af
Helgadal og greinist að nöfnum í Vífilsstaðahraun, Hafnar-
f jarðarhraun, Garðahraun og Gálgahraun. Ef til vill var Alfta-
nes eyja, áður en Hafnarfjarðarhraun rann og fyllti sundið
milli lands og eyjar. Hraunsholtslækur, sem fellur úr Vífils-
staðavatni fylgir norðurbrún hraunsins.
Sagan
Um aldaraðir hafa íslendingar lagt leið sina suður með sjó,
þrammað þar eftir götutroðningum oft með drápsklyfjar í
illri færð um miðjan vetur á leið i verið og haldið til baka með
mikinn eða lítinn afla að vori. Á síðustu öld var ein ferð suð-
ur á nes öðrum frægari. Haustið 1870 fór Oddur Vigfús Gísla-
son prestaskólakandidat gangandi úr Reykjavík suður í Njarð-
víkur eins og margir aðrir og kom þar að Þórukoti til Björns
vinar síns siðla dags. Oddur var 34 ára og hafði lagt gjörva
hönd á margt, meðal annars unnið við lýsisbræðslu suður i
Höfnum. Þar hafði hann kynnzt Önnu Vilhjálmsdóttur, 19
ára heimasætu í Kirkjuvogi, og felldu þau hugi saman. Svo
kom, að Oddur bað meyjarinnar, en Vilhjálmur Hákonarson,
faðir hennar, synjaði honum ráðahagsins, taldi Odd lítinn
reglumann, efnalausan og eigi líklegan til auðsælda. Vilhjálm-
ur var héraðshöfðingi suður þar, þótti ráðríkur og bar ægis-
hjálm yfir sveitunga sína.
Erindi Odds kvöldið góða var að fá Björn í Þórukoti til
þess að aðstoða sig við að nema Önnu í Kirkjuvogi að heim-
an næstu nótt. Björn léði honum tvo röska menn til fararinn-
ar. Þeim tókst að ná Önnu og komast með hana inn í Njarð-
vikur undir morgun. Þegar þangað kom, hafði Björn hrundið
fram sexæringi albúnum til siglingar. Þau Oddur stigu strax
á skip, en í sömu svifum bar þar að eftirreiðarmenn Vilhjálms
bónda, en þeir fengu ekkert að gert. Oddur sigldi með heit-
mey sína til Reykjavíkur og voru þau þar gefin saman af dóm-
kirkjuprestinum á gamlársdag 1870.
Erlendar bækistöðvar, ofríki og orustur
Fæstar ferðir manna suður með sjó hafa verið jafnróman-
tískar og séra Odds. Þótt Suðurkjálkinn sé ekki ýkjafrjósam-
ur, þá hefur hann um langan aldur haft töluvert seiðmagn
sökum auðsældar. Þar og í Vestmannaeyjum hafa erlend riki
og erlendir menn verið ásælnastir og ágengastir á Islnadi, og
eru af því langar frásögur. Á 15. öld settust Englendingar að
í hverri krummavík á Suðurnesjum og sátu þar sums staðar
innan víggirðinga eins og til dæmis í Grindavík. Eftir nær-
fellt 150 ára setu tókst að lokum að flæma þá burt, en það
kostaði blóðfórnir. Hæðin, sem klaustrið i Hafnarfirði stend-
ur á, hét að fomu Ófriðarhæð. Eigi er vitað, hve sú nafngift
sé gert og þetta var nýstárlegt. Við getum ekkert á okkur
lagt, sem er of erfitt til þess að koma hernum úr landi. Ég
trúi á sigur í baráttunni, málstaðurinn hefur styrkzt, — og
ólíklegasta fólk hefur vaknað úr dvala við þetta, — gangan
hefur því haft mikil áhrif í rétta átt.
Hannes Sigfússon, rithöfundur:
— Keflavíkurgangan hefur fært sönnur á, svo að ekki verð-
ur um villzt, að menn af öllum flokkum eru andvígir her-
stöðvunum og reiðubúnir að sýna það í verki. Greinilegt er,
að hún hefur vakið nýjan sóknarhug meðal almennings, en
ótta í röðum hermangaranna: — Hersýningin á Keflavíkur-
flugvelli er glöggt dæmi um það!
Sveinbjörn Beinteinsson:
Eg fór í þessa göngu vegna þess að ég taldi þörf á nýrri
hreyfingu. Og ég treysti því að þetta ágæta fólk hafi ekki
lokið göngu sinni. Enn um sinn verður gengið fyrir þetta mikla
málefni: lausn íslands frá hersetu. Eftir baráttuna mun þessari
göngu ljúka við það sama hlið þar sem fyrr hófst hún. Þá
verður herinn farinn af íslandi og þjónar hans völdum sviftir
á þessu landi. Þá hefst önnur ganga móti nýjum degi og nýjum
vanda.
Sigurður V. Friðþjófsson:
„Það þarf ekki
að ganga fyrir þó"
Piltamir fjórir eru allir á aldrinum 12 til 14 ára. Sá yngsti
verður ekki 13 ára fyrr en í nóvember. Hann heitir Guðlaug-
ur Þórisson og á heima á Klapparstig 20. Hann er fæddur
10. nóvember 1947 og er sonur Helgu Júníusdóttur og Þóris
Jónssonar verkamanns.
Næstur í röðinni er Kristinn Þorbergsson, fæddur 1. júní
1947. Hann á heima á Hverfisgötu 54 og er sonur hjónanna
Kristínar Ásmundsdóttur og Þorbergs Sigurjónssonar kaup-
manns.
Þriðji pilturinn heitir Birkir Pétursson. Hann er sonur Helgu
Tryggvadóttur og Péturs Hraunfjörð bilaviðgerðarmanns og á
heima í Blesugróf. Birkir er fæddur 12. maí 1947.
Elztur f jórmenninganna er Guðmundur Viggósson til heim-
ilis að Bárugötu 7. Hann er 14 ára, fæddur 22. apríl 1946.
44
Keflavíkurgangan